Fotbolti.net
Besta deildin
@mattimattMatthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Besta-deild karla
Samsungvöllurinn
Hálfskýjað og 11 stiga hiti.
Stjarnan
Stjarnan
4 - 0
KA
KA
Eggert Aron Guðmundsson 29'1 - 0Ísak Andri Sigurgeirsson 51'2 - 0Hilmar Árni Halldórsson 62'3 - 0Emil Atlason 83'4 - 0
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Drengir léku sér í Garðabæ

Hvað réði úrslitum?

Kraftur, hraði, hæfileikar og bullandi sjálfstraust ungu drengjanna í Stjörnunni gerði það að verkum að liðið lék sér að hægum og illa spilandi KA mönnum í kvöld og sigruðu 4 - 0 sanngjarnt eins og Hallgrímur Jónasson þjálfari KA sagði í viðtali eftir leik

Bestu leikmenn

1. Ísak Andri Sigurgeirsson

Hvað er hægt að segja um þennan dreng sem ekki er búið að segja nú þegar. Mark og stoðsending og kom einnig að þriðja marki Stjörnunnar. Ef Ísak Andri klárar tímabilið fyrir Stjörnunna yrði ég hissa.

2. Eggert Aron Guðmundsson

Valið um hvor yrði maður leiksins og hver yrði nr 2 var á milli Ísaks og Eggerts og eiga þeir í raun báðir það skilið. Ísak fær það vegna þess að hann kveikti í Stjörnunni. Eggert Aron hinsvegar var líka gjörsamlega frábær og fjórða mark Stjörnunnar er algjörlega hans þótt Emil Atla hafi skorað og þurft vissulega getu og hæfni til þess að gera það, en þessi sprettur Eggerts upp völlinn, í gegnum nokkra leikmenn KA og sendinging á Emil var gulls ígildi.

Atvikið

Eggert Aron klúðrar dauðafæri á 28 mínútu leiksins eftir undirbúning frá Ísaki Andra og við það kviknaði á Stjörnumönnum. Mínútu seinna kom fyrsta markið og eftir það var þetta aldrei spurning.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan lyftir sér upp í 9. sæti með 10 stig. KA er enn í 5. sætinu en komnir með - 7 í markatölu. Næst er undirbúningur beggja liða fyrir leik í bikarnum.

Vondur dagur

Það er enginn leikmaður KA sem sýndi einhvern vott af því að vilja sigra þennan leik. Ætla ekki að gera einhverjum einum það að taka hann út fyrir sviga.

Dómarinn - 8,5

Vel dæmdur leikur hjá Pétri.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.