Fotbolti.net
Besta deildin
Matthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Besta-deild karla
Samsungvöllurinn
Hálfskýjað og 11 stiga hiti.
Stjarnan
Stjarnan
4 - 0
KA
KA
Eggert Aron Guðmundsson 29'1 - 0Ísak Andri Sigurgeirsson 51'2 - 0Hilmar Árni Halldórsson 62'3 - 0Emil Atlason 83'4 - 0
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 503
Leik lokið!
Leiknum er lokið með sanngjörnum yfirburðasigri Stjörnumanna 4 - 0. Er þetta þriðji leikurinn af síðustu fimm sem KA tapar 4 - 0.

Viðtöl og umfjöllun koma innan skamms
90. mín
Tvær mín í uppbót
Að minnsta kosti
89. mín
Sending frá Sigurbergi á Emil inn í teig KA en Emil hittir boltann ekki nægilega vel og skotið yfir markið.
89. mín
Þetta er að fjara út
Stjörnumenn fá aukaspyrnu nærri vítateignum vinstra meginn á vellinum.
Stjarnan
85. mín
InnSindri Þór Ingimarsson
ÚtKjartan Már Kjartansson
Stjarnan
83. mín
LITLA SÓKNIN!

Emil Atlason (stoðsending: Eggert Aron Guðmundsson)

EGGERT ARON GUÐMUNDSSON!!!

Hann vinnur boltann á sínum vallarhelming, geysist upp völlinn í gegnum þrjá (amk) leikmenn KA og leggur boltann fyrir Emil Atlason sem var við D-bogann og á geggjað skot í vinstra hornið. Óverjandi!
KA
79. mín
InnPætur Joensson Petersen
ÚtHallgrímur Mar Steingrímsson
KA
73. mín
Gult spjald

Birgir Baldvinsson

69. mín
Áhorfendur rísa úr fætum
Klappa Ísaki Andra lof í lófa fyrir frábæran leik.
Stjarnan
69. mín
InnEmil Atlason
ÚtRóbert Frosti Þorkelsson
Stjarnan
69. mín
InnSigurbergur Áki Jörundsson
ÚtÍsak Andri Sigurgeirsson
68. mín
Þrjú skot að marki
Held ég sé búinn að vera að telja þetta rétt og KA menn eru búnir að eiga þrjú skot að marki og það þriðja var að koma rétt í þessu.

Ekki beisin framistaða það.
KA
67. mín
InnBirgir Baldvinsson
ÚtÞorri Mar Þórisson
KA
67. mín
InnSveinn Margeir Hauksson
ÚtDaníel Hafsteinsson
65. mín
Áður en markið kom var ég að fara að skrifa að það væri eitthvað að lifna yfir KA-mönnum en nú er ég hræddur um að þetta sé game over fyrir þá. Sé þá ekki koma til baka úr þessu.
Stjarnan
62. mín
Er þetta komið hjá Stjörnunni?

Hilmar Árni Halldórsson

Frábær sókn Stjörnumanna. Eggert Aron með stórgóða fyrirgjöf á Ísak sem nær illa til boltans en kemur honum að marki í loftinu. Adolf var á leiðinni í boltann en fellur í teignum, boltinn berst út til Hilmars Árna sem er við teigslínuna og nær góðu skoti að markinu og í netið.
KA
60. mín
Gult spjald

Harley Bryn Willard

57. mín
Hallgrímur Mar með bakfallsspyrnu í átt að marki en skotið ekki nógu fast og Árni ekki í vandræðum með að grípa boltann.

Hinum meginn á vellinum fékk Kjartan geggjaða sendingu frá Hilmari og óð að marki KA og náði skoti en Jajalo varði það og Ísak Andri svo stuttu seinna með gott skot sem Jajalo varði í horn.
56. mín
Haddi búinn að fá nóg
KA gerir hér tvöfalda sóknarsinnaða skiptingu. Þjálfarateymið greinilega búnir að fá nóg af leik sinna manna það sem af er.
KA
55. mín
InnHarley Bryn Willard
ÚtJakob Snær Árnason
KA
55. mín
InnÁsgeir Sigurgeirsson
ÚtElfar Árni Aðalsteinsson
Stjarnan
51. mín
LITLA MARKIÐ!

Ísak Andri Sigurgeirsson (stoðsending: Kjartan Már Kjartansson)

ÍSAK ANDRI SIGURGEIRSSON HNEIGÐU ÞIG DRENGUR!

Kjartan Már sendir boltann fyrir markið og Ísak Andri hælspyrnir boltann í netið. Ekki fast en virkilega lúmskt!
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Seinni hálfleikur hafinn.
Stjarnan
46. mín
InnHilmar Árni Halldórsson
ÚtGuðmundur Kristjánsson
Hilmar Árni er kominn inn á og með bandið. Gummi Kristjáns væntanlega eitthvað tæpur.
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur. Stjarnan er verðskuldað yfir. Leikurinn var hundleiðinlegur fyrstu 30 mín eða svo. KA menn eru arfaslakir og hafa varla skapað neitt. Eitthvað sem segir mér að Haddi Jónasar láti sína menn heyra það í klefanum.
45. mín
+6
Dauðafæri hjá Stjörnunni þar sem Ísak Andri fíflaði varnarmann KA og lyfti boltanum yfir höfuðið, aftur fyrir sig. Geystist upp völlinn og sendi boltann fyrir og þar var Eggert Aron mættur inn í teig en náði ekki nógu góðu skoti að marki.
45. mín
+4
Daníel Hafsteins með góða sendingu inn í teig þar sem Rodri fær boltann en hittir hann illa, besta og eina færi KA í leiknum.
45. mín
6 mínútur í uppbót
Að minnsta kosti!
45. mín
Rangstaða
Stjörnumenn koma boltanum í netið eftir hornspyrnu, Guðmundur Baldvin tók skæri, Jajalo varði boltann út, Ísak renndi sér í boltann og inn í netið en dæmdur rangstæður
42. mín
Leikurinn heldur áfram eftir smá stopp og Þorri er kominn aftur inn á eftir aðhlynningu á hliðarlínunni.

Það verða einhverjar mínútur í uppbótartíma, það er ljóst.
41. mín
Nú liggur Þorri Mar niðri
Hann fékk högg í andlitið að mér sýndist og liggur eftir og fær aðhlynningu.
39. mín
Hallgrímur Mar fær stungusendingu inn fyrir vörn Stjörnunnar og er næstum því búinn að ná til boltans en sendingin of föst og Árni Snær vel vakandi og kemur fljótt út til að ná til boltans.
32. mín
Stjörnumenn eru búnir að ná yfirhöndinni síðustu mínútur og KA-menn eru á hælunum. Ná engu spili upp í sinn leik og ógna Stjörnunni ekki neitt.
Stjarnan
29. mín
Bætti upp fyrir mistökin áðan!

Eggert Aron Guðmundsson (stoðsending: Ísak Andri Sigurgeirsson)

Eggert Aron vinnur boltann á miðjunni, sendir á Ísak Andra sem kemst inn í teig, fellur við en nær að koma boltanum á Eggert Aron sem er í virkilega þröngu færi og nær að setja boltann í netið.

Virkilega vel gert!
28. mín
Skot yfir markið í dauðafæri!
Eggert Aron fær frábæra sendingu inn í teig frá Ísaki, er fyrir framan opið markið því sem næst en skot hans hátt yfir.
26. mín
Ég er að berjast við að reyna finna eitthvað til að skrifa um. En það er bara ekkert í gangi. Eilíf stöðubarátta bara sem skilar engu.
Stjarnan
20. mín
Bekkurinn hjá Stjörnunni fær spjald

Davíð Sævarsson

Sá ekki hver það var sem fékk spjaldið og set það því á þjálfarann.

Eftirá breyting: Það er liðstjóri hann Davíð Sævarsson sem fékk gula spjaldið fyrir tuð. Var búinn að fá tiltal og Jökull var búinn að biðja hann um að hætta en hann hætti ekki og fékk því spjald.
Stjarnan
19. mín
InnHeiðar Ægisson
ÚtÖrvar Logi Örvarsson
Örvar er kominn út á hliðarlínu eftir töluvert langa bið og í kjölfarið gerir Jökull skiptingu. Hann fékk olnbogaskot í höfuðið frá Jakobi Snæ
17. mín
Örvar Logi liggur eftir á vellinum en hann fékk högg á höfuðið.
13. mín
Fyrsta skot í átt að marki
Það voru Stjörnumenn sem áttu fyrsta skot að marki í leiknum.
10. mín
Þetta er afskaplega tíðindalítið það sem af er....
6. mín
Liðin hafa verið að þreifa á hvort öðru. Stjörnumenn fengu aukaspyrnu af c.a. 30 metrum, sending inn í teig sem KA skalla út fyrir.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað. Stjörnumenn í sínu bláu búningum og KA í sínum gulu. KA byrjar með boltann og spila í átt að Kópavoginum.
Fyrir leik
Dómarar klæðast hvítum bolum fyrir leik
Á bolunum stendur ,,Engir dómarar, enginn leikur" #Ekkitapaþér
sem er herferðin sem KSÍ stendur fyrir þessa dagana til þess að minna fólk á að haga sér almennilega í samskiptum við dómara.
Fyrir leik
Mætið á völlinn!
Það er engin ástæða til þess að hanga heima og koma ekki á völlinn. Flott veður, 11 stiga hiti og allar aðstæður til þess að bjóða upp á flottan knattspyrnuleik.
Fyrir leik
Tvær breytingar hjá KA
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir tvær breytingar á sínu liði frá síðasta leik. Jakob Snær og Ívar Örn koma inn í liðið. Ívar var fjarri góðu gamni í síðasta leik.

Ásgeir Sigurgeirsson tekur sér sæti á bekknum en Kristoffer Paulsen er ekki í hópnum. Birgir Baldvinsson snýr aftur í hóp KA eftir meiðsli. Ívar ber fyrirliðabandið hjá KA þar sem Ásgeir er á bekknum.
Fyrir leik
Fjórar breytingar hjá Stjörnunni
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, gerir fjórar breytingar á sínu liði frá síðasta leik. Ísak Andri, Adolf Daði, Kjartan Már og Róbert Frosti koma allir inn. Ísak Andri var fjarri góðu gamni í síðasta leik.

Emil Atlason, Hilmar Árni Halldórsson og Joey Gibbs taka sér sæti á bekknum en Baldur Logi Guðlaugsson er ekki í hópnum. Heiðar Ægisson kemur inn í hópinn í stað Baldurs.
Fyrir leik
Pétur Guðmundsson dæmir leikinn
Hann var í viðtali í Innkastinu fyrr í dag.
Fyrir leik
Drengir Hadda Jónasar unnu sinn síðasta leik sem var á móti Fram fyrir norðan, 4 - 2. Var það fyrsti sigur KA í þrjá leiki en þeim leikjum höfðu þeir tapað með markatölunni 10 - 0. Töpuðu 0 - 4 fyrir Val, 2 - 0 fyrir Blikum og 0 - 4 fyrir Víkingum. Sitja KA menn í 5. sæti deildarinnar með 14. stig.
Fyrir leik
Drengir Jökuls Elísabetarsonar sitja í 11. sæti deildarinnar með 7. stig. Þeir byrjuðu vel eftir þjálfaraskiptin og unnu ÍBV 4 - 0 og gerðu svo 2 - 2 jafntefli við Fylki. En í síðustu umferð töpuðu þeir 1 - 0 fyrir KR í Vesturbænum.
Fyrir leik
Velkomin í Garðabæ
Verið hjartanlega velkomin í Garðabæinn, þar sem leikur Stjörnunnar og KA í 10. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu fer fram. Leikurinn hefst kl. 18:00
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.