Fotbolti.net
Besta deildin
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta-deild kvenna
Origo völlurinn
Valur
Valur
5 - 0
Tindastóll
Tindastóll
Bryndís Arna Níelsdóttir (víti) 25'1 - 0Þórdís Elva Ágústsdóttir 35'2 - 0Bryndís Arna Níelsdóttir 42'3 - 0Bryndís Arna Níelsdóttir 46'4 - 0Fanndís Friðriksdóttir 85'5 - 0
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Myndir: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

SKÝRSLAN: Bryndís Arna með þrennu og stoðsendingu á Fanndísi í endurkomunni

Hvað réði úrslitum?

Gæði Vals voru umtalsvert meiri en Tindastóls og það var alveg ljóst frá nánast fyrstu mínútu hvernig þessi leikur myndi enda. Tindastóll gerði vel fyrstu 25 mín en um leið og markið datt hjá Val varð þetta aldrei spurning.

Bestu leikmenn

1. Bryndís Arna Níelsdóttir

Þrenna og stoðsending að auki. Þarf sennilega ekki að segja meira en nákvæmlega bara það. Var stórkostleg í kvöld.

2. Ásdís Karen Halldórsdóttir

Var ógnandi hjá Val og óheppin að skora ekki. Kemur út úr þessum leik þó með stoðsendingu og átti að auki stærstan þáttinn í þriðja markinu. Lára Kristín fær líka shout en valið var milli þeirra tveggja.

Atvikið

Innkoma og svo mark frá Fanndísi. Fyrstu mínútur frá því 2021 og þvílík innkoma.

Hvað þýða úrslitin?

Valur styrkir stöðu sína á toppnum en Tindastóll detta niður í 8.sætið en eru áfram stigi frá fallsæti.

Vondur dagur

Hafsentapar Tindastóls hefur átt betri leiki þori ég að fullyrða. Þeim til varnar þá voru Valskonur á eldi og sennilega fá lið sem hefðu getað stöðvað þær í þessum gír.

Dómarinn - 7

Hægt að segja ýmislegt um þetta víti en held þó að það hafi verið rétt. Fannst teymið komast vel undan stöfum í dag og bara solid 7a.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.