SKÝRSLAN: FH klifrar upp töfluna og Stjarnan fjarlægist toppinn
Hvað réði úrslitum?
FH liðið mætti af miklum krafti inn í leikinn og komu sér í góða stöðu með því að skora 2 mörk á fyrstu 12 mínútum leiksins. Stjörnukonur fengu þó fyrsta færi leiksins en Aldís varði vel í markinu. Það var eitthvað sem vantaði í sóknarleik Stjörnunnar sem náði ekki að nýta sér góðar stöður fremst á vellinum. Á sama tíma var FH liðið að verjast vel, voru skipulagðar, beinskeyttar fram á við og fengu framlag frá hverjum einasta leikmanni.
Bestu leikmenn
1. Aldís Guðlaugsdóttir - FH
Frábær frammistaða hjá Aldísi í kvöld. Hún varði allt sem á markið kom og var öryggið uppmálað inn í teignum sínum. Greip fyrirgjafir og var alltaf mætt vel út á móti þegar Stjarnan var við það að sleppa í gegn.
2. Mackenzie Marie George - FH
Það er erfitt að taka bara tvær út úr FH liðinu í kvöld sem unnu sannkallaðan liðssigur og fengu framlag allt frá aftasta manni til fremsta. En Mackenzie lét varnarmenn Stjörnunnar hafa vel fyrir sér í kvöld og lét þær líta illa út oft á tíðum. Gríðarlega góður leikmaður sem FH nældi sér í og mikilvægi hennar er mikið í þessu liði. Á stoðsendinguna í báðum mörkum FH.
Atvikið
Fyrsta markið kom á óvart en setti tóninn í leikinn, rétt áður hafði Gunnhildur sloppið ein gegn Aldísi. Ætla hins vegar að setja atvikið á annað mark leiksins sem kom á 12. mínútu og svolítið sló Stjörnuna út af laginu. Þær sáu aldrei til sólar í kvöld.
Hvað þýða úrslitin?
FH vinnur sinn þriðja leik í röð og lyftir sér upp í 4. sæti deildarinnar með jafnmörk stig og Þróttur R. í 3. sætinu. Hins vegar fjarlægist Stjarnan toppbaráttuna og fara niður í 6. sætið.
Vondur dagur
Ég hef séð alla leikmenn Stjörnunnar spila betur en þær gerðu í kvöld, það gekk bara ekkert upp. Varnarlínan klikkaði í upphafi leiks og FH komst í 2-0, en sóknarleikurinn gekk ekki heldur vel og liðið var í raun undir í baráttunni alls staðar á vellinum. Sara Montoro hefur verið að koma vel inn af bekknum hjá FH og skorað í síðustu tveimur leikjum, en hún kom inn á 76. mínútu og fór meidd útaf á 81. mínútu. Virtist hafa meiðst á hné og vonandi fyrir hana og FH liðið er það ekki alvarlegt.
Dómarinn - 7.5
Bríet og co. voru solid og dæmdu þennan leik bara vel heilt yfir.



