SKÝRSLAN: Ægir 1 - 4 Afturelding
Hvað réði úrslitum?
Sigurvilji Aftureldingar skilaði þeim þessum 3 stigum, um leið og fyrsta markið datt loks inn, þá var ekki aftur snúið
Bestu leikmenn
1. Elmar Kári Enesson Cogic - Afturelding
Elmar heldur sínu markaskriði áfram og skoraði hann ekki bara eitt, heldur tvö mörk í dag! Einnig var hann mjög vel spilandi og léttur á boltanum, léttur Messi fílingur í drengnum, nei maður segir svona.
2. Bjartur Bjarmi Barkarson - Afturelding
Bjartur átti einnig mjög góðann leik, skoraði eitt mark og með eina stoðsendingu, þægilegar tölur hjá honum!
Atvikið
Það er ísbrjóturinn hjá Arnóri Gauta, markið hans á 54 mínútu sem leiddi í annað mark strax í kjölfarið!
Hvað þýða úrslitin?
Afturelding krýna enn á toppnum í Lengjudeildinni með 26 stig, 5 stigum eftir þeim er Fjölnir sem eru í öðru sætinu.
Ægismenn sitja í neðsta sæti með 4 stig eftir 10 umferðir
Vondur dagur
Framlína Ægismanna, með yfir 10 rangstöður í dag, það eru ekki alveg tölurnar sem lið vonast eftir
Dómarinn - 8.5
Arnar Þór og félagar með allt á hreinu, misstu kannski af nokkrum atvikum en engum sem spiluðu stórleik í gangi leiksins, hann og línudómarar eiga skilið lof í lófa!


