SKÝRSLAN: Breiðablik aftur á langþráða sigurbraut í Bestu
Hvað réði úrslitum?
Breiðablik hafði gæðin til að klára þennan leik á meðan Fylkir höfðu það ekki. Fylkismenn veittu Blikum þó alveg keppni í þessum leik en þegar allt er tekið saman þá var þetta bara nokkuð sanngjarn sigur hjá Blikum.
Bestu leikmenn
1. Damir Muminovic
Skoraði gott mark eftir horn og var einnig öflugur aftast. Það er alltaf fjör í kringum Damir og átti hann mjög öflugan leik í dag.
2. Anton Logi Lúðvíksson
Væri ósanngjarn að nefna hann ekki. Skoraði og lagði upp í dag og var mjög solid. Mjög rólegur á boltanum og öflugur á miðjunni hjá Blikum.
Atvikið
Þriðja mark Blika hjá Anton Loga. Virtist ætla að fjara út í sandinn en á svo frábært skot alveg út við stöng og slekkur í patrýinu hjá Fylki sem höfðu gert sér vonir að jafna leikinn þá.
Hvað þýða úrslitin?
Blikar saxa á bilið í Víkinga og Val en eru áfram í 3.sætinu. Fylkismenn eru áfram í 11.sætinu
Vondur dagur
Það var lítið að frétta hjá fremstu mönnum liðana í leiknum. Sumir hugsanlega óheppnari en aðrir í færanýtingu en ekki hægt að taka neinn sérstakan út fyrir sviga.
Dómarinn - 7
Fannst dómgæslan vera flott í kvöld. Man ekki eftir neinu atviki sem var vafasamt. Vítið var vel dæmt, Fylkir vildu fá víti og kannski spurning með það en heilt yfir var þetta bara rock solid frammistaða.




