Fotbolti.net
Besta deildin
Tindastóll
Tindastóll
Besta-deild kvenna
Sauðárkróksvöllur
0 - 0
Selfoss
Selfoss
Leik lokið!
Sveinn Arnars flautar leikinn af
88. mín
Horn
Selfoss fær hornspyrnu sem endar með skoti sem fer langt framhjá
85. mín
Stólar í góðu færi
Mur með góðan sprett upp völlinn kemst alveg innað markteig og tekur skot eða var þetta sending, ég er ekki viss en boltinn fer til hliðar og endar í innkasti hægra megin á vellinum.
Selfoss
81. mín
InnKatrín Ágústsdóttir
ÚtSigríður Theód. Guðmundsdóttir
Tindastóll
81. mín
InnHugrún Pálsdóttir
ÚtMarta Perarnau Vives
79. mín
Aldís og Áslaug eru komnar inná aftur
75. mín
árekstur
Aldís og Áslaug Dóra lenda saman og liggja eftir. þær fá báðar alhlynningu.
Selfoss
75. mín
Gult spjald

Haley Marie Johnson

70. mín
Mér sýnist Embla hafa komið inní byrjunarliðið í staðinn fyrir Kötlu. Það fór alveg framhjá mér í byrjun leiks
Selfoss
70. mín
InnJóhanna Elín Halldórsdóttir
ÚtEmbla Dís Gunnarsdóttir
69. mín
Laufey með sendingu inní teig og Melissa hoppar uppí boltann og Idun líka, boltinn endar yfir markinu og Melissa og Idun liggja báðar eftir. Þær standa báðar upp ómeiddar
63. mín
Hornspyrnur
Tindastóll með tvær fínar hornspyrnur en ná ekki að nýta þær nógu vel.
62. mín
Stólar í sókn
Mur í góðu færi eftir undirbúning Maríu, boltinn endar í hornspyrnu
56. mín
Hornspyrna
Tindastóll með hornspynru en Selfoss kemst inní hana og hreinsar í burtu
47. mín
Selfoss í fær
Bergrós kemst inn fyrir og nær góðu skoti en Monica ver frábærlega í markinu
46. mín
Stólar í færi
Mur með geggjað stungu á Maríu sem kemst í gegn og skýtur en skotið er beint í fangið á Idun í markinu
46. mín
45. mín
42. mín
Skot utan af velli
Íris Una með fast skot en það er aðeins og hátt og svífur langt yfir markið
39. mín
Skot framhjá
Haley með fínt skot en það ratar ekki alveg á markið
37. mín
Annað dauðafæri !!
Núna hinum megin Bergrós kemst ein í gegn, Monica mætir henni en hún tekur eina snertingu framhjá henni. ein á móti marki en setur boltann í stöngina og út.
33. mín
Dauðafæri
Mur kemst inn ein á móti Sif og skýst framhjá henni, ein á móti Idun og skýtur beint á hana, Aldís fylgir á eftir en Idun gerir vel og kemur á móti henni og ver.
30. mín
Hornspyrna
Grace með fína hornspyrnu sem stólarnir hreinsa í Haley og boltinn fer rétt framhjá markinu. tæpt
Selfoss
28. mín
Gult spjald

Íris Una Þórðardóttir

fær gult fyrir að hanga í Mur
26. mín
Hornspyrna
Tindastóll fær hornspurnu sem er há inní og Laufey setur botlann í slánna
23. mín
Skot framhjá
Melissa með laust skot framhjá
13. mín
Selfoss aukaspyrna
hættuleg aukaspyrna hjá Selfoss sem Monica ver í slánna og varnarmenn stóla ná að hreinsa í burtu en Áslaug nær því og skýtur í hliðarnetið á markinu
7. mín
Selfoss í sókn
Íris Una með skot rétt fyrir utan vítateig, en það fór yfir og framhjá
3. mín
Idun ver víti frá Hannah og Selfoss sparka frákastinu í horn
Selfoss
1. mín
InnEmbla Dís Gunnarsdóttir
ÚtKatla María Þórðardóttir
1. mín
Selfoss byrjar leikinn
Fyrir leik
Fyrri leikurinn
Selfoss vann fyrri leik liðanna í sumar á Selfossi 16. maí síðastliðinn. Eftir að Tindastóll hafði komist yfir svaraði Selfoss með þremur mörkun og vann að lokum 3 - 1. Selfoss 3 - 1 Tindastóll 0-1 Melissa Alison Garcia ('13) 1-1 Katla María Þórðardóttir ('35) 2-1 Eva Lind Elíasdóttir ('43) 3-1 Katla María Þórðardóttir ('49)
Mynd: Hrefna Morthens
Úr fyrri leiknum.
Fyrir leik
Staðan í deildinni
Fyrir leikinn eru heimakonur í Tindastóli með 14 stig í 7. sæti deildarinnar. Þær eru einu stigi frá Keflavík sem er í fallsæti. Gestirnir í Selfossi sitja áfram sem fastast í botnsæti deildarinnar og þyrftu að vinna ansi stórt í dag til að eiga möguleika á að hafa sætaskipti eða jafnvel komast úr fallsæti. Taflan: 7. Tindastóll - 14 stig (-17 mörk) 8. ÍBV - 13 (-11 mörk) 9. Keflavík - 13 (-13 mörk) Selfoss - 10 (-19 mörk)
Fyrir leik
Dómarateymið
Sveinn Arnarsson dæmir leikinn í dag og er með þá Svein Þórð Þórðarson og Bergvin Fannar Guðmundsson sér til aðstoðar á línunum. Enginn skiltadómari eða eftirlitsmaður KSÍ er settur á þennan leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveinn dæmir í dag.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá Sauðárkróki. Hér mætast Tindastóll og Selfoss í Bestu-deild kvenna klukkan 17:00.
Mynd: Tindastóll
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.