Leik lokið!
Þetta er búið!
Víkingar taka sterkan sigur!
Viðtöl og skýrsla væntanleg með seinni skipum i kvöld.
93. mín
Þessi leikur er að fjara út og bæði lið sennilega bara að bíða eftir lokaflauti.
92. mín
Við erum í þeim skemmtilega kafla leiksins þar sem tímaskyn undirritaðara fer í allar áttir og við giskum hvaða mínúta er en það er oft skemmtilegra líka.
Hvað eru 1-2 mín til eða frá í uppbót?
91. mín
Fáum +5 í uppbót.
89. mín
FH-ingar eru farnir að týnast heim úr stúkunni.
85. mín
FRÁBÆR SKYNDISÓKN!
Erlingur Agnarsson (stoðsending: Helgi Guðjónsson)
Víkingar með frábæra skyndisókn þar sem þeir keyra hratt á FH! Boltinn best út vinstri á Helga Guðjóns sem á frábæra sendingu fyrir markið á Erling Agnarsson sem var mættur í hættusvæðið og skoraði!85. mín
InnGyrðir Hrafn Guðbrandsson
ÚtBjörn Daníel Sverrisson
82. mín
InnGísli Gottskálk Þórðarson
ÚtAron Elís Þrándarson (f)
80. mín
Ari Sigurpáls með skot framhjá markinu.
Sindri Kristinn í smá brasi með útsparkið og Víkingar ná að trufla það svo boltinn endar hjá Ara en skotið eins og áður segi framhjá.
79. mín
Aðeins hægst á tempóinu í þessum leik.
79. mín
InnGrétar Snær Gunnarsson
ÚtÁstbjörn Þórðarson
79. mín
InnEetu Mömmö
ÚtKjartan Henry Finnbogason
71. mín
InnAri Sigurpálsson
ÚtDanijel Dejan Djuric
71. mín
InnErlingur Agnarsson
ÚtBirnir Snær Ingason
68. mín
InnSteven Lennon
ÚtKjartan Kári Halldórsson
66. mín
Virkilega skemmtileg rimma á milli Oliver Ekroth og Kjartans Henry. Ekroth dæmdur brotlegur og Kjartan Henry fagnar.
64. mín
Danijel Djuric með skot yfir markið.
62. mín
InnKarl Friðleifur Gunnarsson
ÚtViktor Örlygur Andrason
62. mín
InnHelgi Guðjónsson
ÚtNikolaj Andreas Hansen
61. mín
Víkingar í dauðafæri á að sleppa í gegn en Birnir Snær Ingason með hræðilega sendingu sem rataði ekki til Danijel Djuric sem hefði haft allt opið fyrir framan sig.
59. mín
Vuk Oskar með fastann bolta fyrir markið sem fer í Kjartan Henry og í fangið á Ingvari.
58. mín
FH eru að banka fast á dyrnar hjá Víkingi. Eru að fá færin í síðari hálfleik.
55. mín
Vuk Oskar með tilraun framhjá markinu.
Kjartan Henry vildi fá boltann fyrir markið.
53. mín
Fyrirgjöf fyrir mark Víkinga og Oliver Ekroth og Kjartan Henry skella saman. Hefur verið áhugaverð barátta þeirra á milli í þessum leik.
49. mín
Stöngin!
Davíð Snær gerir frábærlega og vinnur boltann af Pablo Punyed og keyrir í átt að marki og reynir að leggja boltann framhjá Ingvari en boltinn í stöngina!
46. mín
Ekki alveg sama sólin og fyrri hálfleik en það er bara eins og það er.
Kjartan Kári sparkar okkur af stað aftur.
45. mín
Víkingar leiða í hálfleik!
FH byrjaði leikinn um betur og voru Víkingar lengi í gang en um leið og þeir náðu að komast í takt þá fóru þeir að taka hægt og rólega stjórn.
Það sem skilur á milli í fyrri hálfleik er að Víkingar refsuðu á meðan FH gerði það ekki.
Tökum okkur smá pásu og snúum svo aftur í síðari hálfleik.
45. mín
Fáum +2 í uppbót.
42. mín
VÍKINGAR ERU BÚNIR AÐ SNÚA ÞESSU!!
Birnir Snær Ingason (stoðsending: Danijel Dejan Djuric)
Ástbjörn með hræðilega sendingu aftast sem Nikolaj Hansen gerir frábærlega í að komast inní og koma boltanum á Danijel Djuric sem er fljótur að koma boltanum á Birni Snær sem táar boltann svo framhjá Sindra Kristinn í marki FH! VÍKINGAR REFSA!40. mín
FH með flotta skyndisókn - Davíð Snær keyrir upp völlinn og kemur boltanum út á Viðar Ara sem finnur svo Vuk Oskar inni á teig en skotið beint á Ingvar.
39. mín
Gult spjald
Viðar Ari Jónsson
38. mín
Leikurinn er í hættu á að leysast upp í vitleysu núna.
Eins og ég var ánægður með Sigurð Hjört dómara fram að þessu að leyfa leiknum að fljóta að þá vona ég svo innilega að hann sé ekki að missa tökin.
35. mín
Rautt spjald
Arnar Bergmann Gunnlaugsson
Veit ekki alveg hvað átti sér stað á hliðarlínunni en Arnar fær beint rautt. Finnst hæpið að rauða spjaldið tengist því að vilja fá víti en hvað veit maður? Hef ekki hugmynd hvað hann hefur sagt/gert til að fá rautt.34. mín
Gult spjald
Hajrudin Cardaklija
34. mín
Frábær fyrirgjöf fyrir mark FH þar sem Nikolaj Hansen reynir að kassa boltann niður í staðin fyrir að skalla að marki og Nikolaj fellur í kjölfarið og Víkinga vilja víti en fá ekki.
33. mín
Aron Elís að komast í frábært skotfæri en reynir frekar að senda boltann fyrir markið og FH ná að koma hælnum í boltann og þannig trufla Nikolaj Hansen sem var mættur á fjær.
29. mín
VÍKINGAR JAFNA!!
Birnir Snær Ingason (stoðsending: Pablo Oshan Punyed Dubon)
BIRNIR SNÆR!! Fær boltann frá Pablo fyrir utan teig á lætur bara vaða því afhverju ekki? Skotið var ekki mjög fast og boltinn lengi á leiðinni á markið fannst mér en alveg út við stöng og Sindri Kristinn náði ekki að koma höndum í boltann.25. mín
Davíð Snær með alvöru Cruyff snúning en nær ekki að fylgja eftir með góðri sendingu og Víkingar fá boltann.
23. mín
Kjartan Kári með skot á nærstöng en Ingvar ver.
20. mín
Víkingar eru að láta Kjartan Henry finna vel fyrir sér.
Spurning hvort þeir nái að fara í hausinn á honum.
17. mín
Aron Elís gerir frábærlega að hirða boltann af varnarlínu FH og reynir að stinga Nikolaj Hansen í gegn en Sindri Kristinn gerir vel í að loka.
15. mín
Eftir erfiða byrjun virðast Víkingar loksins vera ná að tengja saman sendingar á vallarhelmingi FH.
12. mín
Aron Elís með hörku skalla framjá markinu eftir hornspyrnuna.
12. mín
Víkingar finna Birnir Snær á bakvið vörnina en sendinginn fyrir markið ekki spes og FH bjargar í horn.
11. mín
FH að pressa Víkinga frábærlega og valda þeim allskonar vandræðum.
10. mín
Viðar Ari með tilraun en framhjá markinu.
6. mín
FH verið mjög grimmir og áræðnir.
3. mín
FH TAKA FORYSTU!!
Kjartan Henry Finnbogason (stoðsending: Haraldur Einar Ásgrímsson)
KJARTAN HENRY!! Frábær sókn hjá FH þar sem Haraldur Einar fær boltann úti vinstra meginn í teignum og setur hann fyrir markið þar sem Kjartan Henry ræðst á boltann og er bara frekari og nær að koma boltanum yfir línuna á nærstöng og fer í gegnum Ingvar til að ná boltanum inn!1. mín
Pablo Punyed sparkar okkur af stað.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru mætt!
FH gerir þrjár breytingar á liði sínu sem sigraði Keflavík í síðustu umferð en inn koma Davíð Snær Jóhannsson, Kjartan Kári Halldórsson og Viðar Ari Jónsson fyrir Dani Hatakka, Úlf Ágúst Björnsson og Loga Hrafn Róbertsson.
Víkingar gera þá einnig breytingar á sínu liði frá sigurleiknum gegn ÍBV en inn koma Viktor Örlygur Andrason, Halldór Smári Sigurðsson og Aron Elís Þrándarson fyrir þá Erling Agnarsson, Loga Tómasson og Davíð Örn Atlason.
Fyrir leik
Innbyrðis viðureignir
Samkv. vef KSÍ hafa félögin mæst 75 sinnum í mótsleik á vegum KSÍ.
FH sigrar: 28(37%)
Síðasti sigur FH var: 2-1 sigur í úrslitaleik Lengjubikarsins 2022
Síðasti sigur í deild var: 1-0 sigur í Pepsi Max deildinni 2020 - Seinni umferð
Víkings sigrar: 25(33%)
Síðasti sigur Víkinga var: 2-0 sigur í Bestu deild 2023 - Fyrri umferð
Jafntefli: 22(29%)
Síðasta jafnteflið kom: 1-1 jafntefli Pepsi Max deildin 2019 - Fyrri umferð
Fyrir leik
Fyrri leikurinn í sumar
Fyrir leik
Dómarateymið
Sigurður Hjörtur Þrastarson fær það verkefni að flauta þennan leik og honum til aðstoðar verða Egill Guðvarður Guðlaugsson og Guðmundur Ingi Bjarnason.
Pétur Guðmundsson fær það verkefni að stilla til friðar á bekknum og stýra skiptingum auk þess að vera til taks ef eitthvað kemur uppá hjá dómaranum inni á vellinum.
Halldór Breiðfjörð Jóhannsson hefur svo eftirlit með gangi mála fyrir KSÍ.
Fyrir leik
FH
FH hafa átt áhugavert og eru í hörku baráttu í þéttum pakka um 4.sætið og eiga tvo leiki til góða með þessum í kvöld sem gæti fært þá nær Breiðablik í 3.sætinu.
FH eru sem stendur í 6.sæti deildarinanr og síðasta sæti efri hlutans. Áður en FH sótti sigur til Keflavíkur í síðustu umferð höfðu þeir tapað þrem leikjum í röð svo sjálfstraustið er vonandi að koma tilbaka í liði FH sem geta hæglega unnið öll lið á sínum degi.
FH hafa skorað 31 mark á tímabilinu og hafa þessi mörk raðast niður á:
Úlfur Ágúst Björnsson - 7 Mörk
Kjartan Henry Finnbogason - 6 Mörk
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson - 3 Mörk
Davíð Snær Jóhannsson - 3 Mörk
Björn Daníel Sverrisson - 3 Mörk
Vuk Oskar Dimitrijevic - 2 Mörk
Fyrir leik
Víkingur R
Víkingar hafa leitt mótið alveg frá byrjun og virðist fátt geta stoppað þá í að endurheimta Íslandsmeistaratitilinn frá Breiðablik. Valur fylgir þó fast eftir og má lítið útaf bregða svo Víkingar missi þetta ekki úr höndum sér þessa frábæru stöðu sem þeir hafa unnið sé inn fyrir.
Víkingar sitja sem fyrr segir á toppi deildarinnar með sex stiga forskot og hafa sótt 13 stig af 15 mögulegum í síðustu 5 leikjum svo þeir eru heitir.
Víkingar hafa skorað næst flest mörkin í deildinni eða 42 talsins og hafa þessi mörk raðast niður á:
Nikolaj Hansen - 8 Mörk
Birnir Snær Ingason - 7 Mörk
Danijel Djuric - 5 Mörk
Matthias Vilhjálmsson - 4 Mörk
Pablo Punyed - 3 Mörk
*Aðrir minna
Fyrir leik
Besta deildin
Seinni umferð Bestu deildarinnar er núna rúmlega hálfnuð og einhverjar línur farnar að skýrast fyrir skiptinguna fyrir efri og neðri helming.
Staðan í deildinni lítur svona út fyrir leiki kvöldsins:
1.Víkingur - 44 stig (17 leikir)
2.Valur - 41 stig (18 leikir)
3.Breiðablik - 34 stig (18 leikir)
4.Stjarnan - 25 stig (18 leikir)
5.KR - 25 stig (18 leikir)
6.FH - 24 stig (16 leikir)
--------------------------------
7.KA - 21 stig (17 leikir)
8.HK - 20 stig (17 leikir)
9.ÍBV - 17 stig (18 leikir)
10.Fylkir - 16 (17 leikir)
-----------------------------
11.Fram - 14 stig (17 leikir)
12.Keflavík - 10 stig (17 leikir)
Fyrir leik
Heil og sæl!
Verið hjartanlega velkominn í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik FH og Víkings í 18.umferð Bestu deildarinnar sem fram fer á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði.




