SKÝRSLAN: ÍA með gríðarlega mikilvægan sigur á Extravellinum í Grafarvogi
Hvað réði úrslitum?
Þessi toppslagur gat dottið báðu megin en leikurinn var í járnum frá fyrstu mínútu til þeirra síðustu. ÍA byrjuðu síðari hálfleikinn betur og náðu inn marki og Fjölnismenn gerðu allt hvað þeir gátu til aðná inn marki og gera þetta að leik en ekki tókst Fjölnismönnum það.
Bestu leikmenn
1. Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
Gísli Laxdal er ekki á leiðinni í Val útaf engu. Þvlíkur hraði sem þessi drengur býr yfir. Öll hætta Skagamanna spilaðist upp hægri vænginn í gegnum hann. Gísli skoraði sigurmark leiksins og var óheppinn að bæta ekki við öðru stuttu seinna þegar hann setti boltann yfir.
2. Árni Marinó Einarsson (ÍA)
Árni Marinó átti frábæran leik í marki ÍA. Varði einusinni eða tvisvar frábærlega og undir lokin þegar Fjölnismenn voru í leit að jöfnunarmarkinu þá gerði Árni vel í nokkur skipti.
Atvikið
Sigurmark leiksins hjá Gísla þegar Skagamenn lyftu boltanum upp í hlaup á Gísla sem slapp aleinn á móti Sigurjóni og kláraði færið af mikill yfirvegun.
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnismenn eru áfram í þriðja sæti deildarinnar og sjö stigum á eftir toppliði Aftureldingar og er liðið á leiðinni í umspil eins og staðan er núna. Skagamenn minnka forskot Aftureldingar hinsvegar niður í þrjú stig og setja rosalega spennu í þessa baráttu um fyrsta sæti deildarinnar sem gefur beint sæti í Bestu deild karla að ári.
Vondur dagur
Guðmundur Karl Guðmundsson fékk nokkrar frábærar stöður til að gera mun betur í kringum teig ÍA en valdi alltaf verri kostinn.
Dómarinn - 7.5
Erfiður leikur að dæma en mér fannst Arnar Þór og hans menn koma vel undan þessum leik.



