Fotbolti.net
Anton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Lengjudeild karla
Extra völlurinn
Fjölnir
Fjölnir
4 - 0
Njarðvík
Njarðvík
Dagur Ingi Axelsson 5'1 - 0Jónatan Guðni Arnarsson 52'2 - 0Baldvin Þór Berndsen 74'3 - 0Oliver James Kelaart Torres (sjm) 86'4 - 0
Dómari: Þorvaldur Árnason
Leik lokið!
Þetta er búið!
Fjölnismenn með sannfærandi 4-0 sigur.

Njarðvíkingar halda sér uppi á einu marki.

Takk fyrir mig í dag.
90. mín
Staðan er þannig að Njarðvík má ekki fá á sig mark og eru þeir farnir að gefa sér tíma í allar aðgerðir.

Ef Fjölnir skorar annað þá eru Njarðvíkingar niður á markatölu.
Njarðvík
90. mín
InnArnar Helgi Magnússon
ÚtAlex Bergmann Arnarsson
Njarðvík
90. mín
InnSigurjón Már Markússon
ÚtJoao Ananias Jordao Junior
Fjölnir
86. mín
Þetta var afgreiðsla hjá Oliver

Oliver James Kelaart Torres (sjm)

Arnar Ragnars fær boltann út til hægri og neglir boltanum inn á teiginn á Oliverr sem skallar boltann í bláhornið en því miður vitlaust mark.

Oliver James óheppinn þarna.
85. mín
Þorsteinn Örn með fyrirgjöf inn á teig Fjölnis sem heimamenn skalla í hornspyrnu.
Njarðvík
82. mín
InnKaj Leo Í Bartalstovu
ÚtRafael Alexandre Romao Victor
Njarðvík
82. mín
InnTómas Bjarki Jónsson
ÚtKenneth Hogg
Fjölnir
80. mín
InnArnar Ragnars Guðjohnsen
ÚtDagur Ingi Axelsson
Fjölnir
74. mín
ÞETTA LITLA MARKIÐ!!!!!!!!

Baldvin Þór Berndsen

Fjölnismenn fá aukspyrnu á miðjum vallarhelming Njarðvíkur og Baldvin Þór lætur vaða ef einhverjum 35 metra færi og boltinn fer í stöngina og inn

VÁÁÁÁÁÁÁÁÁ´ÁÁÁÁ
Fjölnir
71. mín
InnAxel Freyr Harðarson
ÚtGuðmundur Karl Guðmundsson
70. mín
Hvernig skorar Njarðvík ekki þarna??
Njarðvíkingar koma boltanum fyrir og það voru þrír Njarðvíkingar á fjærstönginni en ná á einhvern ótrúlegan hátt ekki að koma boltanum yfir línuna.
69. mín
Rafael Victor með fyrirgjöf en Fjölnismenn koma boltanum í hornspyrnu.
67. mín
Þorsteinn Örn fellur rétt fyrir utan teig Fjölnis og Njarðvíkingar vilja aukaspyrnu en fá hana ekki.
Fjölnir
65. mín
Gult spjald

Úlfur Arnar Jökulsson

Þorvaldur Árnason labbar að bekk Fjölnis og lyftir gula spjaldinu. Eitthvað ósáttir með hversu hart Njarðvíkingar eru að spila þessa stundina.
Njarðvík
60. mín
Kenneth Hogg heppinn að sleppa hér

Kenneth Hogg

Kenneth Hogg straujar Dag Inga niður sem liggur eftir og þarf aðhlyningu.
Njarðvík
59. mín
InnOliver James Kelaart Torres
ÚtGísli Martin Sigurðsson
Fjölnir
52. mín
Fjölnismenn eru að bæta við!!

Jónatan Guðni Arnarsson

Reynir Haraldsson fær boltann út til hægri og rennir boltanum inn á Jónatan sem kláraði frábærlega framhjá Blakala í marki Njarðvíkur.
50. mín
Máni Austmann fær boltann fyrir utan teig og á skot sem fer beint á Blakala.

Njarðvíkingar þurfa mark.
47. mín
Fjölnismenn byrja seinni hálfleikinn af miklum krafti. Vinna hornpyrnu sem ekkert verður úr.
46. mín
Seinni hálfleikurinn er farinn af stað
Heimamenn gera þrefalda skiptingu á meðan Njarðvíkingar halda óbreyttu.
Fjölnir
45. mín
InnKristófer Dagur Arnarsson
ÚtHans Viktor Guðmundsson
Fjölnir
45. mín
InnMáni Austmann Hilmarsson
ÚtBjarni Gunnarsson
Fjölnir
45. mín
InnJónatan Guðni Arnarsson
ÚtDofri Snorrason
45. mín
Hálfleikur
Fjölnismenn leiða í hálfleik
Þorvaldur Árnason flautar til hálfleiks. Heimamenn fara með eins marks forskot inn í hálfleikinn.

Kaffi og kleinur núna og komum svo með þann síðari.
45. mín
KENNETH HOGG MEÐ SKALLA Í SLÁ
Eftir dauðafæri frá RafaeL Victor af markteig halda gestirnir boltanum og lyfta boltanum fyrir á Kenneth sem skallar boltann í slánna og niður og Fjölnismenn koma boltnaum í burtu.

Stórskotahríð hérna undir lok fyrri hálfleik hjá Njarðvík.
44. mín
Gísli Martin með fyrirgjöf sem Fjölnismenn eru ekki í vandræðum með að koma í burtu.
42. mín
Mjög lítið að gerast inn á vellinum. Njarðvíkingar eru ekki líklegir þessa stundina. Hugsa að það sé meira líf í fréttamannastúkunni hér á Extravellinum en inn á vellinum sjálfum.
38. mín
Gísli Martin með fyrirgjöf sem fer í andlitið á Reyni og í hornspyrnu.

Hreggvður tekur spyrnuna og Rafael Victor fær boltann fyrir utan teig en nær ekki skoti á markið.
34. mín
Joao Ananias með skottilraun sem fer beint á Halldór.
30. mín
Hákon Ingi með boltann hér úti vinstra megin og leikur inn á völlinn. Nær skoti en það laust og beint á Blakala.
27. mín
Lítið að gerast í þessu þessar síðustu mínútur. Vindurinn er að gera mönnum lífið leitt.
19. mín
Reynir Haraldsson með frábæran bolta fyrir á Bjarna Gunn sem nær ekki að stýra boltanum á markið.
15. mín
Kenneth Hogg fær boltann og kemur honum á Rafael Victor sem nær skoti en boltinn af varnarmanni og í hornspyrnu.
11. mín
Fjölnismenn fá hornspyrnu og vandræðagangur í vörn Njarðvíkur og Fjölnismenn fá í framhaldi aðra hornspyrnu. Boltanum er lyft inná teiginn á Hansa sem skallar boltann framhjá.
8. mín
Gísli Martin með flottan bolta inn á teig Fjölnis sem Kenneth Hogg nær ekki til.

Veðuraðstæðurnar hérna á Extravellinum eru ekkert mikið að hjálpa leikmönnum.
Fjölnir
5. mín
ÞAÐ ER KOMIÐ MAAAAAARK!!!

Dagur Ingi Axelsson

Fjölnismenn eru komnir yfir!!

Frábærlega gert hjá Fjölnismönnum. Dagur Ingi fær boltann inn á teignum og kláraði vel framhjá Robert Blakala.

1-0
3. mín
Bjarni Gunn gerir frábærlega
Keyrir upp vinstri vænginn og rennir boltanum fyrir á Daníel Ingvar sem nær ekki að koma almennilegu skoti á markið.

Þarna voru gestirnir heppnir.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað
Þorvaldur Árnason flautar til leiks. Gestirnir frá Njarðvík eiga upphafsspyrnu leiksins.

Góða skemmtun.
Fyrir leik
Vallarþulur Fjölnismnna býður þá örfáu áhorfendur sem hingað eru mættir á Extravöllinn í dag og var að klára að kynna liðin.

Styttist í upphafsflautið frá Þorvaldi Árnasyni.
Fyrir leik
Hægt er að horfa á leikinn í beinni á Youtube
Fyrir leik
Dómari: Þorvaldur Árnason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aðstoðardómarar: Hreinn Magnússon og Ragnar Arelíus Sveinsson.
Fyrir leik
Njarðvík getur ennþá fallið
Staðan er þannig að Njarðvík fellur í dag ef bæði Selfoss og Þróttur Reykjavík vinna sína leiki eða ná stigi og Njarðvík tapar hérna á Extravellinum í dag en fyrir síðustu umferð deildarinnar eru liðin öll með 23.stig þar sem Þróttarar frá Reykjavík eru með bestu markatöluna.

Rosaleg spenna og við verðum aðsjálfsögðu með allt í beinni hér hjá okkur á Fótbolta.net.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Fjölnir í úrslitakeppnina
Fjölnismenn eru öruggir inn í úrslitakeppnina og eins og staðan er fyrir leiki dagsins fer liðið vestur á Ísafjörð og spilar þar við Vestra. Ekki draumastaða fyrir Grafarvogsliðið.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Lokaumferð Lengjudeildarinnar
Það er spenna í fallbaráttunni og í toppbaráttunni. Leikur Fjölnis og Njarðvík í Grafarvoginum hefur hinsvegar litla sem enga þýðingu fyrir Fjölni en Njarðvík getur ennþá fallið tapi þeir hér í dag.

Hvað er í húfi?
Spenna í fimm af sex leikjum lokaumferðar Lengjudeildarinnar

Leikir dagsins:
12:00 Ægir-Leiknir R. (Þorlákshafnarvöllur)
14:00 Selfoss-Vestri (JÁVERK-völlurinn)
14:00 Þróttur R.-Afturelding (AVIS völlurinn)
14:00 Fjölnir-Njarðvík (Extra völlurinn)
14:00 Þór-Grindavík (VÍS völlurinn)
14:00 ÍA-Grótta (Norðurálsvöllurinn)

Mynd: Brynjar Óli Ágústsson

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.