Fotbolti.net
Logi Freyr Gissurarson
Lengjudeild karla
JÁVERK-völlurinn
Grenjandi rigning og vindur en mikið í húfi
Selfoss
Selfoss
1 - 2
Vestri
Vestri
0 - 16' Ívar Breki Helgason0 - 215' Benedikt V. WarénValdimar Jóhannsson 48'1 - 2
Dómari: Twana Khalid Ahmed
92. mín
Von fyrir Selfoss
Selfoss á ennþá smá séns jafnvel þótt að þeir tapi því ef Fjölnir skorar eitt mark í viðbót halda Selfyssingar sér uppi
Leik lokið!
Leik lokið og Selfoss líklega fallnir
Ennþá smá von í Fjölnir-Njarðvík
Vestri
88. mín
Gult spjald

Grímur Andri Magnússon

Vestri
87. mín
InnGrímur Andri Magnússon
ÚtSergine Modou Fall
Vestri
87. mín
InnElvar Baldvinsson
ÚtMikkel Elbæk Jakobsen
85. mín
Vestri í stórsókn en ná ekki nema einu skoti sem er í varnarmann
81. mín
Selfoss í dauðafæri!
Sending fyrir á Aron Einars sem er einn á móti nánast tómu marki en hittir ekki boltann og Vestri sleppur vel
Selfoss
80. mín
InnÞór Llorens Þórðarson
ÚtGonzalo Zamorano Leon
Selfoss
79. mín
Gult spjald

Hrannar Snær Magnússon

78. mín
Selfoss nálægt því
Alexander í skotfæri fyrir utan teig Selfoss og á hörku skot en Marvin ver
Vestri
77. mín
InnDaniel Osafo-Badu
ÚtFatai Adebowale Gbadamosi
76. mín
Vestri hreinsar
76. mín
Gonzalo í góðu færi en skot hans í varnarmann og í horn
74. mín
Vestri er í stórhættulegri skyndisókn en allt vatnið á vellinum hægir á boltanum og gefur Selfoss tækifæri á að skila sér og stoppa þessa sókn
71. mín
Lítið að gerast þessa stundina
64. mín
Stórhætta við mark Selfoss. Fyrirgjöf sem vindurinn greip næstum farin í markið en Stefán nýtti hvern einasta sentimeter til að teygja sig í boltann og í kjölfarið bjargaði Adrian því að tveir leikmenn Vestra kæmu boltanum í opið markið.
62. mín
Selfoss er aftur að brjóta af sér inní teig Vestra
62. mín
Selfoss fær horn
Selfoss
61. mín
InnAlexander Clive Vokes
ÚtAron Fannar Birgisson
Vestri
58. mín
InnSilas Dylan Songani
ÚtBenedikt V. Warén
Vestri
58. mín
InnIgnacio Gil Echevarria
ÚtTarik Ibrahimagic
55. mín
Selfoss í góðu færi þar sem Valdimar getur sett Gary í gegn en sendingin er of föst og í hendurnar á Marvin
51. mín
Selfoss nær að verjast horninu
51. mín
Vestri fær horn
Selfoss
48. mín
Valdimar að hleypa lífi í þetta!

Valdimar Jóhannsson (stoðsending: Gary John Martin)

Boltinn berst til Gary Martin á fjær sem tjippar boltann að markinu þar sem Valdi er fljótur að bregðast við og skallar boltann af stuttu færi í markið og Selfoss eiga ennþá smá möguleika en þurfa eitt mark í viðbót
46. mín
Leikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Vestri búnir að vera töluvert betri og útlitið ansi svart fyrir Selfyssinga
45. mín
Jón með aukaspyrnu sem Marvin þarf að slá í horn sem Vestri hreinsa svo í burtu
44. mín
Vestri fær horn
43. mín
Löng sending úr aukaspyrnu frá Jón Vigni sem ratar beint á Þorstein sem á skalla en hann er yfir markið
41. mín
Skot utan af velli frá Vestra en það er framhjá
39. mín
Selfoss brýtur inní teig Vestra
39. mín
Selfoss fær hornspyrnu
34. mín
Selfoss í góðu færi
Valdimar nær góðum sprett upp kantinn og rennir boltann út í teiginn á Aron Einars sem er í skotstöðu og lætur vaða en boltinn í varnarmann og hrekkur svo til Aron Fannars sem skýtur framhjá
33. mín
Selfoss með aukaspyrnu á góðum stað en Gonzalo skýtur framhjá
29. mín
Benidikt í erfiðari stöðu og á skot og fyrirgjöf sem endar bara í markspyrnu
28. mín
Vestri hreinsar
27. mín
Selfoss fær hornspyrnu
23. mín
Ekkert kemur úr því
22. mín
Selfoss fær horn
20. mín
Einu góðu fréttir fyrir Selfoss er að Fjölnir er að vinna Njarðvík þannig ef Selfoss ætlar að eiga einhvern séns verða þeir að skora 2 mörk
Vestri
15. mín
Vestri að tvöfalda forystuna!

Benedikt V. Warén (stoðsending: Sergine Modou Fall)

Sergine fer illa með Hrannar á kanntinum og kemst upp að endalínu inní teig Selfoss og rennir boltanum á Benidikt sem klárar í stöngina og inn
12. mín
Vestri í færi
Vestra menn komast í færi eftir klaufaskap í vörn Selfoss en skotið er framhjá
Vestri
6. mín
Vestri kemst yfir!

Ívar Breki Helgason

Góð spyrna inná miðjan teiginn sem Ívar skallar í netið og þetta virkar allt of einfallt fyrir þá og útlitið ekki gott fyrir Selfoss
5. mín
Vestri fær horn
1. mín
Leikur hafinn
Komið af stað
Fyrir leik
Gummi ekki með
Gummi Tyrfings er ekki í byrnunarliði hjá Selfossi í dag og Valdimar kemur inn
Fyrir leik
Leikurinn sýndur í beinni:
Fyrir leik
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aðstoðardómarar: Daníel Ingi Þórisson og Rögnvaldur Þ Höskuldsson.
Fyrir leik
FRÍTT INN!
Ekki má gleyma að styrktaraðili knattspyrnudeildar Selfoss, Huppa, ætlar að bjóða frítt inn á leikinn og einnig verður pub quiz kahoot fyrir áhugasama sem byrjar kl 13:00 og því engin afsökun að skella sér ekki á völlinn.

LEIKMENN Í BANNI
Fjórir leikmenn Vestra taka út bann í dag. Það eru þeir Elmar Atli Garðarsson, Ibrahima Balde, Morten Ohlsen Hansen og Vladimir Tufegdzic. Selfoss sem er í fallsæti fyrir lokaumferðina er með einn leikmann í banni; Ingva Rafn Óskarsson.
Fyrir leik
Vestri
Það er engin pressa á Vestra fyrir þennan leik og þeir enda sama hvernig leikurinn fer í 4. sæti og gæti verið að þeir hvíla nokkra leikmenn.

Vestri (+10) eru með 36 stig og eru þremur stigum eftir Fjölni en markatala Fjölnis (+19) er töluvert skárri


Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Selfoss
Byrjum að fara yfir stöðu Selfoss í deildinni.

Selfoss eru fyrir loka umferðina í fallsæti með 23 stig eins og Njarðvík og Þróttur og svo eru Þórsarar með 24 stig nokkrum sætum fyrir ofan Selfyssinga.

Það er bara eitt í stöðunni fyrir Selfoss ef þeir ætla að halda sér uppi og það er að ná í stig gegn Vestra.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Komið þið sæl og verið velkomin í loka umferð Lengjudeild karla.
Komið þið sæl á Jáverk-völlinn í beina textalýsingu úr leik Selfoss og Vestra.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Leikir dagsins:
12:00 Ægir-Leiknir R. (Þorlákshafnarvöllur)
14:00 Selfoss-Vestri (JÁVERK-völlurinn)
14:00 Þróttur R.-Afturelding (AVIS völlurinn)
14:00 Fjölnir-Njarðvík (Extra völlurinn)
14:00 Þór-Grindavík (VÍS völlurinn)
14:00 ÍA-Grótta (Norðurálsvöllurinn)

Hvað er í húfi?
Spenna í fimm af sex leikjum lokaumferðar Lengjudeildarinnar
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.