Fotbolti.net
Besta deildin
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Besta-deild karla - Neðri hluti
Kórinn
Bongó í Kórnum!
HK
HK
2 - 2
Fylkir
Fylkir
6' Sveinn Gísli ÞorkelssonAtli Arnarson (víti) 7'1 - 01 - 145' Benedikt Daríus Garðarsson (víti)Anton Søjberg 54'2 - 12 - 272' Þórður Gunnar Hafþórsson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Áhorfendur: 744
Leik lokið!
Þetta er búið!
Søjberg setur boltann í vegginn og Helgi Mikael flautar til leiksloka. Stórskemmtilegur leikur í alla staði en liðin skilja jöfn að. Takk fyrir mig.
95. mín
Síðasti séns?
HK fær aukaspyrnu rétt fyrir utan D-boga Fylkis!
94. mín
Leifur Andri kemur með fyrirgjöf á Atla Þór sem á lélegan skalla og fer boltinn framhjá.
93. mín
HK hættulegri á lokamínútunum.
90. mín
5 mínútum bætt við!
Fylkir
87. mín
Gult spjald

Rúnar Páll Sigmundsson

Sýndist það vera Rúnar sem fékk gult spjald á bekk Fylkis.
HK
83. mín
InnHassan Jalloh
ÚtAtli Hrafn Andrason
79. mín
Frábær varsla!
Benedikt Daríus með fast skot í teignum en Arnar Freyr ver frábærlega í marki HK.
Fylkir
78. mín
InnÁsgeir Eyþórsson
ÚtFrosti Brynjólfsson
Frosti kom inná sem varamaður en tekinn af velli!
HK
77. mín
Gult spjald

Ahmad Faqa

Faqa stoppar skyndisókn og fær réttilega gult spjald að launum.
HK
73. mín
InnEiður Atli Rúnarsson
ÚtBirkir Valur Jónsson
HK
73. mín
InnAtli Þór Jónasson
ÚtMarciano Aziz
Fylkir
72. mín
VÁÁ ÞVÍLÍKT MARK!

Þórður Gunnar Hafþórsson

Benedikt Daríus með frábæran sprett upp vinstri kantinn og á svo góða fyrirgjöf sem Þórður Gunnar stangar inn!
69. mín
Fylkir hættulegri aðilinn þessa stundina.
Fylkir
62. mín
InnÞórður Gunnar Hafþórsson
ÚtÞóroddur Víkingsson
HK
54. mín
Søjberg's on fire!!

Anton Søjberg (stoðsending: Atli Hrafn Andrason)

Atli Hrafn skallar á Søjberg sem nær að koma sér fram fyrir varnarmann Fylkis og klárar örugglega einn á móti markverði!
Søjberg með 4 mörk í 7 leikjum fyrir HK-inga.
52. mín
Góð stemning í Kórnum, fólkið í stúkunni láta vel í sér heyra.
47. mín
Frosti Brynjólfs með frábæra takta og tekur skotið en Ahmad Faqa kemst fyrir skotið.
46. mín
Síðari hálfleikur farinn af stað!
Søjberg sparkar þessu af stað.
45. mín
Menn missáttir með Helga Mikael
45. mín
Hálfleikur
Helgi Mikael flautar til hálfleiks. Nóg um að vera í þessum skemmtilega fyrri hálfleik, tökum okkur 15.
Fylkir
45. mín
FYLKIR JAFNA Á BESTA TÍMA!

Benedikt Daríus Garðarsson

Benedikt smyr boltanum út við stöng, Arnar átti ekki séns.
HK
45. mín
FYLKIR FÆR VÍTI!

Marciano Aziz

Aziz ætlar að hreinsa boltanum úr teignum en fer í Nikulás Val og Helgi bendir á punktinn.
45. mín
Stöngin!!
Anton Søjberg tekur spyrnuna og fer hún í stöngina, þarna munaði litlu!
45. mín
Arnór Gauti fer eitthvað í andlitið á Örvari og HK fær aukaspyrnu á stórhættulegum stað.
Fylkir
40. mín
InnFrosti Brynjólfsson
ÚtEmil Ásmundsson
Emil Ásmunds lendir illa eftr stökk og neyðist til að fara af velli.
37. mín
Örvar Eggerts fellur við í teignum og við fyrstu sýn fannst mér eiga vítaspyrna að vera dæmd en Helgi flautar brot á HK-inga frekar.
34. mín
Örvar Eggerts í frábæru færi í teig gestanna en Arnór Gauti með geggjaða takta og kemst fyrir skotið.
HK
29. mín
Gult spjald

Leifur Andri Leifsson

28. mín
Að mínu mati hárréttur dómur, dæmi hver fyrir sig.
Fylkir
25. mín
Gult spjald

Emil Ásmundsson

Emil fer með fótinn í magann á Atla Hrafni og fær gult spjald að launum.
18. mín
Örvar Eggerts liggur niðri, virðist vera sárþjáður. Hann lenti illa eftir stökk en getur þó haldið leik áfram.
17. mín
Arnar ver í slánna!
Arnór Gauti með þrumuskot sem Arnar Freyr ver frábærlega og síðan fer boltinn í slánna!
15. mín
HK-ingar halda mun meira í boltann eftir rauða spjaldið.
HK
7. mín
SVELLKALDUR!

Atli Arnarson

Beint í miðjuna og Ólafur Kristófer skutlar sér!
Draumabyrjun fyrir HK-inga!
Fylkir
6. mín
RAUTT OG VÍTI!!!

Sveinn Gísli Þorkelsson

HK fær aukaspyrnu og útfæra hana frábærlega Atli Hrafn á fyrirgjöf og Örvar skallar boltann sem er á leiðinni inn en Sveinn Gísli ver boltann á línu með hendinni!
5. mín
HK fær aukaspyrnu um 20 metrum frá vítateig gestanna.
3. mín
HK fær fyrsta horn leiksins, Brynjar Snær tekur en Fylkismenn koma boltanum frá.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Fylkir byrjar með boltann.
Fyrir leik
Liðin ganga á völlinn og Bestu-deildar stefið er í botni, nú styttist í að þetta hefjist!
Fyrir leik
Fyrir leik
Hagstæð úrslit fyrir bæði lið
ÍBV mætti KA fyrr í dag, leikar enduðu 2-1 fyrir KA-mönnum sem eru frábærar fréttir fyrir bæði lið hér í dag.

Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn
Ómar Ingi gerir 2 breytingar á liði sínu frá síðasta leik.
Inn í liðið koma þeir Birkir Valur og Ívar Örn á kostnað Kristjáns Snæs og Arnþórs Ara sem er í leibanni.

Rúnar Páll gerir sömuleiðis 2 breytingar á sínu liði. Þóroddur Víkingsson og Arnór Gauti koma báðir inn í byrjunarliðið. Út úr byrjunarliðinu fara þeir Pétur Bjarnason og Elís Rafn en Pétur er utan hóps í dag.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Fyrir leik
Jón Arnar Barðdal spáir í spilin
Fyrrum HK-ingurinn Jón Arnar Barðdal spilar nú með KFG en þeir mæta Víði í úrslitaleik Fótbolta.net bikarsins á föstudag og því við hæfi að Jón Arnar sé spámaður umferðarinnar.

HK 2 - 1 Fylkir
Leifur Andri ótrúlegt en satt verður búinn að jafna sig á líkamsárasinni í síðustu umferð og sköflungar inn sigurmarkið á 85. mínútu fyrir HK.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leikir liðanna í sumar
Liðin mættust tvisvar í sumar og verður þetta því þriðja og síðasta viðureign liðanna á þessu tímabili.

HK 1-0 Fylkir
Örvar Eggertsson '85
Lestu um leikinn

Fyrri leikurinn var í 4. umferð og enduðu leikar 1-0 fyrir HK-ingum í lokuðum leik. Sigurmark leiksins skoraði Örvar Eggertsson eftir undirbúning Atla Þórs. Atli handlék boltann í aðdraganda marksins, Rúnar Páll var vægast sagt ósáttur með að marki hafi fengið að standa.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir


HK 0-0 Fylkir
Lestu um leikinn

Seinni leikur liðanna var í 15. umferð og mættust liðin þá í árbænum. Líkt og í fyrri viðureign liðanna var leikurinn mjög lokaður og voru lokatölur 0-0. Fylkismenn þó sáttari með stigið þar sem að HK fengu urmul af færum í leiknum en boltinn vildi ekki inn.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Sterkir leikmenn ekki með
Arnþór Ari Atlason leikmaður HK verður ekki með í kvöld en hann fékk sitt fjórða gula spjald á tímabilinu og er því í leikbanni.

Ólafur Karl Finsen er meiddur framan í læri, Rúnar Páll býst ekki við að hann spili meir á tímabilinu.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Mikið undir
Fylkir er í bullandi botnbaráttu og þurfa þeir sigur til að slíta sig aðeins frá pakkanum.
HK eru enn ekki sloppnir en með sigri í dag halda þeir sér endanlega uppi.

7. KA - 35 stig (-4)
8. HK - 26 stig (-12)
9. Fylkir - 22 stig (-18)

10. Fram - 21 stig (-15)
11. ÍBV - 21 stig (-19)
12. Keflavík - 15 stig (-23)
Fyrir leik
Kórinn heilsar!
Góðan og blessaðan daginn kæru lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu beint úr Kórnum. Hér í kvöld mun HK taka á móti Fylki í 3. umferð tvískiptingunnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.