Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
Keflavík
1
3
Fylkir
Edon Osmani '45 1-0
1-1 Ásgeir Eyþórsson '51
1-2 Orri Sveinn Stefánsson '64
1-3 Benedikt Daríus Garðarsson '70 , víti
Sindri Þór Guðmundsson '79
01.10.2023  -  14:00
HS Orku völlurinn
Besta-deild karla - Neðri hluti
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson
Maður leiksins: Benedikt Daríus Garðarsson
Byrjunarlið:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson
4. Nacho Heras
6. Sindri Snær Magnússon
9. Muhamed Alghoul ('79)
11. Stefan Ljubicic ('63)
19. Edon Osmani
23. Sami Kamel
24. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
25. Frans Elvarsson (f)
50. Oleksii Kovtun ('46)

Varamenn:
13. Mathias Rosenörn (m)
5. Magnús Þór Magnússon
9. Gabríel Aron Sævarsson
16. Sindri Þór Guðmundsson ('79)
21. Aron Örn Hákonarson ('46)
26. Ísak Daði Ívarsson ('63)
89. Robert Hehedosh

Liðsstjórn:
Haraldur Freyr Guðmundsson (Þ)
Ómar Jóhannsson
Gunnar Örn Ástráðsson
Óskar Rúnarsson
Luka Jagacic
Stefán Bjarki Sturluson
Guðmundur Árni Þórðarson

Gul spjöld:
Oleksii Kovtun ('39)
Sindri Snær Magnússon ('71)

Rauð spjöld:
Sindri Þór Guðmundsson ('79)
Leik lokið!
Þessu er lokið hér í Keflavík. Viðsnúningur í síðari hálfleik og Fylkismenn með öll tromp á hendi sér í fallbaráttunni.

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
91. mín
Inn:Þóroddur Víkingsson (Fylkir) Út:Pétur Bjarnason (Fylkir)
91. mín
Sindri Þór náði 21 sekúndu af leiktíma inn á vellinum segja mínir menn með skeiðklukkuna.
90. mín
Við fáum þrjár mínútur í uppbótartíma hér.
87. mín
Fylkismenn sækja hratt. Frosti með boltann úti til vinstri nær fyrirgjöf en fáir Fylkismenn með honum og tækifærið rennur út í sandinn.
80. mín
Inn:Frosti Brynjólfsson (Fylkir) Út:Benedikt Daríus Garðarsson (Fylkir)
79. mín Rautt spjald: Sindri Þór Guðmundsson (Keflavík)
Þetta hlýtur að vera nærri Íslandsmeti!

Hann var búinn að vera inn á vellinum í einhverjar örfáar sekúndur þegar hann fer í glórulausa tæklingu á miðjum vallarhelmingi Keflavíkur og fær rautt spjald.

Náði hann 30 sekúndum? Ég er ekki viss um það
79. mín
Inn:Sindri Þór Guðmundsson (Keflavík) Út:Muhamed Alghoul (Keflavík)
78. mín
Orri Sveinn með hörkuskalla eftir aukaspyrnu frá hægri en Ásgeir Orri gerir vel í að verja í horn.

Fylkismenn dæmdir brotlegir eftir hornið.
71. mín Gult spjald: Sindri Snær Magnússon (Keflavík)
Alltof seinn í Nikulás Val og keyrir hann niður.
70. mín Mark úr víti!
Benedikt Daríus Garðarsson (Fylkir)

Gríðarlega örugg vítaspyrna, föst og Ásgeir átti engan möguleika á að verja.
69. mín
Fylkir fær vítaspyrnu.

Nikulás kemur sér á milli eftr slæma sendingu í vörn Keflavíkur og fær Ásgeir í bakið sem að keyrir hann niður og vítaspyrna dæmd.

Frá mér séð hárréttur dómur.
68. mín
Benedikt Daríus vinnur boltann á vallarhelmingi Keflavíkur, snýr strax i átt að marki og keyrir af stað. Lætur skotið ríða af við vítateig en boltinn af varnarmanni og rétt framhjá stönginni.

Úr horninu verður ekkert.
64. mín MARK!
Orri Sveinn Stefánsson (Fylkir)
Miðverðirnir eru að sjá um þetta fyrir Fylki
Hornspyrnan tekinn inn á markteig þar sem að Orri er bara því sem næst óvaldaður og þarf lítið annað að gera en að fá boltann í sig til að skora.

Fylkismenn snúið leiknum sér í hag.
63. mín
Inn:Ísak Daði Ívarsson (Keflavík) Út:Stefan Ljubicic (Keflavík)
62. mín
Stefan situr eftir á vellinum og kveinkar sér. Sýnist hann hafa lokið leik hér í dag.

Fylkir á horn.
58. mín Gult spjald: Arnór Gauti Jónsson (Fylkir)
56. mín
Fylkismenn að ógna
Ragnar Bragi ber boltann inn á teiginn og á skot sem Pétur Bjarna reynir að stýra í átt að marki en boltinn af varnarmanni og í horn.

Eftir hornið er Orri Sveinn í hörkufæri en Ásgeir ver skot hans af stuttu færi og Keflvíkingar koma boltanum frá.
51. mín MARK!
Ásgeir Eyþórsson (Fylkir)
Fylkismenn jafna
Pétur Bjarnason í góðu færi eftir frábæra sendingu lætur verja frá sér. Frákastið berst til Ásgeirs sem er aleinn og getur ekki annað en skorað í tómt markið.

Allt jafnt í Keflavík.
50. mín
Fylkismenn sækja hornspyrnu,
46. mín
Inn:Þórður Gunnar Hafþórsson (Fylkir) Út:Elís Rafn Björnsson (Fylkir)
Það gerði Fylkir líka
46. mín
Inn:Aron Örn Hákonarson (Keflavík) Út:Oleksii Kovtun (Keflavík)
Keflavík gerði breytingu
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Heimamenn marki yfir sparka okkur af stað á ný.
45. mín
Hálfleikur

Það var varla að Fylkir hefði tíma til að taka miðju.

Heimamenn leiða í hálfleik eftir þennan fyrri hálfleik.
Lítið verið um færi heilt yfir en Keflvíkingar af skiljanlegum ástæðum líklega sáttari með fyrri hálfleikin..
45. mín MARK!
Edon Osmani (Keflavík)
Keflavík tekur forystuna
Hornspyrnan skölluð frá en þó ekki langt.

Boltinn fellur fyrir fætur Edon sem að leggur boltann fyrir sig og lætur vaða í gegnum alla þvöguna. Ólafur sér boltann seint og getur lítið gert annað en að horfa á boltann liggja í netinu.
45. mín
Keflavík fær hornspyrnu.

Einni mínútu bætt við fyrri hálfleikinn.
40. mín
Orri Sveinn með skalla að marki eftir aukaspyrnu en beint á Ásgeir í markinu.
39. mín Gult spjald: Oleksii Kovtun (Keflavík)
35. mín
Elís Rafn með hættulegan bolta fyrir markið frá hægri. Ásgeir Orri kastar sér á boltann og reynir að handsama boltann sem lætur ófriðlega í höndum hans en hann nær þó almennilegu taki í svona sjöttu tilraun.
34. mín
Fyrsta alvöru færið
Pétur Bjarnason sleppur innfyrir og er að komast í skotið þegar Nacho Heras mætir og bjargar í horn með stórgóðri tæklingu.
31. mín
Að segja að leikurinn sé í járnum er sennilega réttast. Liðin skiptast á að sækja en komast í raun hvorki lönd né strönd gegn andstæðingum sínum.

Ekkert sem færi má kalla í raun litið dagsins ljós.
24. mín
Kovtun með hræðilega sendingu þvert á völlinn sem að Benedikt Daríus gerir vel í að komast inn í. Nacho hreinsar upp eftir félaga sinn og bægir hættunni frá.
22. mín
Orri Sveinn og Stefan lendir eitthvað saman víðsfjarri boltanum og kveinkar Orri sér í grasinu.

Stefan biður hann afsökunar, hvort hann hafi hreinlega stigið óvart á hann.
20. mín
Sami Kamel eitthvað að tuða í Þórði sem að tekur af allan vafa um það hver fer með völdin á vellinum. Stöðvar Kamel og segir honum að hætta þessu bara.
15. mín
Fylkismenn sækja sína fyrstu hornspyrnu.

Heimamenn koma boltanum frá.
13. mín
Nikulás Val í hörkufæri í teignum eftir góða sókn Fylkis upp vinstri vænginn en hittir ekki markið.
10. mín
Sami Kamel með aukaspyrnu inn á teiginn en boltinn beint á Ólaf í marki Fylkis.
6. mín
Keflavík fær fyrstu hornspyrnu leiksins.

Mhuammed fær boltann úti til vinstri í teignum og reynir skot en varnarmenn stíga fyrir,
5. mín
Oleksii Kovtun situr eftir á vellinum og virðist hafa fengið högg á andlitið. Fær aðhlynningu en er fljótur á fætur.
4. mín
Klafs í teig Keflavíkur eftir langt innkast inn á teiginn frá hægri. Heimamenn koma boltanum frá
1. mín
Leikur hafinn

ÞÞÞ flautar þetta af stað, það eru gestirnir úr Fylki sem að byrja með boltann.
Fyrir leik
Allt klárt og styttist í leik.
Liðin eru að ganga til vallar og ekkert að vanbúnaði til þess að hefja hér leik.

Vonumst að sjálfsögðu eftir skemmtilegum og spennandi leik.
Fyrir leik
Liðin mætt í hús Heimamenn í Keflavík gera fjórar breytingar frá tapinu gegn Fram. Ásgeir Orri Magnússon stendur í markinu fyrir Mathias Rosenörn. Þá fara Magnús Þór Magnússon, Sindri Þór Guðmunddson og Ísak Daði Ívarsson allir á bekkinn. Inn í þeirra stað koma Gunnlaugur Fannar Guðmundsson, Stefan Ljubici og Edon Osmani.

Fylkismenn gera sömuleiðis breytingar á liði sínu frá 2-2 jafnteflinu gegn HK. Þóroddur Víkingsson Emil Ásmundsson og Sveinn Gísli Þorkelsson eru ekki með í dag. Inn í þeirra stað koma Ásgeir Eyþórsson, Pétur Bjarnason og Elís Rafn Björnsson
Fyrir leik
96 leikir í efstu deild á bakvið flautuna Þórður Þorsteinn Þórðarson fyrrum leikmaður ÍA,FH og HK dæmir sinn fyrsta leik í Bestu deildinni í dag. Uppgangur Þórðar í dómgæslu hefur svo sannarlega verið nokkuð hraður en Þórður sem lék síðast í efstu deild 2021 sagði í viðtalið við Fótbolta.net í upphafi tímabils í fyrra.

„Í dómgæslunni ætla ég að vera alla leið inn og ég stefni á að vera búinn að dæma leik í efstu deild fyrir lok næsta tímabils. Það er mitt markmið og ég gef það alveg beint út. Ég veit að ég get komist eins langt og ég vil í þessu."

Það má því segja að Þórður hafi staðið við stóru orðin.

Þórði til aðstoðar í dag eru Guðmundur Ingi Bjarnason og Patrik Freyr Guðmundsson. Gunnar Oddur Hafliðason er fjórði dómari og eftirlitsmaður KSÍ sjálfur Gylfi Orrason.


   16.05.2022 14:56
„Stefni á að vera búinn að dæma leik í efstu deild fyrir lok næsta tímabils"
Fyrir leik
Fyrri viðureignir á tímabilinu
Fylkir er annað af tveimur liðum deildarinnar sem Keflavík hefur unnið þetta tímabilið. Sá sigur kom í fyrstu umferð þann 10.apríl síðastliðin þegar Keflavík bar 2-1 sigur úr býtum.

Benedikt Daríus Garðarsson kom þar Fylki yfir með marki úr vítaspyrnu eftir hálftíma leik. Sami Kamel jafnaði svo metin fyrir Keflavík á 74. mínútu leiksins áður en að Dagur Ingi Valsson tryggði Keflavík 2-1 sigur með marki í uppbótartíma.

Síðari leik liðanna lauk svo með 1-1 jafntefli þar sem að Pétur Bjarnason og Edon Osmani gerðu mörk sinna liða.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Keflavík
Fallið hefur lengi hangið yfir Keflavík þetta sumarið en varð loks staðfest eftir tap þeirra gegn Fram á dögunum. Aðeins tveir sigrar í 25 leikjum er bara langt frá því að vera nóg þótt níu jafntefli hafi vissulega gefið þeim ákveðna líflínu lengi vel þá dugir það einfaldlega ekki.

Tímabil Keflavíkur hefur því miður verið harmsaga á köflum á að horfa. Lykilmenn hafa verið mikið frá vegna meiðsla sem gerði liðinu mjög erfitt fyrir enda breiddin í hópnum ekki sú mesta eins og hefur sýnt sig. Framundan hjá Keflavík er því uppbygging á ný í Lengjudeildinni að ári en fyrst þó tveir leikir upp á stoltið. Sá fyrr í dag, síðasti heimaleikurinn í bili í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fylkir
Gestirnir úr Árbæ eru fyrir leik dagsins í fallhættu þó þeir standi vissulega betur að vígi en lið ÍBV sem mætir HK í Vestmannaeyjum síðar í dag. Það er sannarlega stutt á milli í baráttu Fylkismanna sem gætu tryggt sæti sitt í dag með sigri að því gefnu að HK taki stig af ÍBV. Að sama skapi gæti liðið endað daginn í fallsæti tapi þeir og ÍBV vinnur.

Varnarleikurinn hefur verið mesti hausverkur Fylkismanna þetta sumarið en 53 mörk fengin á sig er það mesta í deildinni, vafasamur heiður sem þeir deila með liði HK. Fyrsta hugsun Fylkismanna fyrir leikina sem eftir eru hlýtur því að vera að múra fyrir markið og freista þess að stoppa í götin þar sem hafa reynst þeim dýr í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fer að líða að lokum í Bestu deildinni
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin líkt og alltaf í þessu beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Keflavíkur og Fylkis í næst síðustu umferð Bestu deildar karla. Flautað verður til leiks á HS Orkuvellinum klukkan 14.
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
Ragnar Bragi Sveinsson
2. Ásgeir Eyþórsson
4. Arnór Gauti Jónsson
5. Orri Sveinn Stefánsson (f)
9. Pétur Bjarnason ('91)
10. Benedikt Daríus Garðarsson ('80)
17. Birkir Eyþórsson
18. Nikulás Val Gunnarsson
24. Elís Rafn Björnsson ('46)
27. Arnór Breki Ásþórsson

Varamenn:
12. Jón Ívan Rivine (m)
4. Stefán Gísli Stefánsson
6. Frosti Brynjólfsson ('80)
11. Þórður Gunnar Hafþórsson ('46)
14. Theodór Ingi Óskarsson
25. Þóroddur Víkingsson ('91)
80. Ólafur Karl Finsen

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Óðinn Svansson
Ólafur Ingvar Guðfinnsson
Michael John Kingdon
Smári Hrafnsson
Erik Steinn Halldórsson

Gul spjöld:
Arnór Gauti Jónsson ('58)

Rauð spjöld: