Leik lokið!
Víkingur með sterkan útisigur
92. mín
Vel varið!
Sigdís næstum búin að inssigla sigurinn en Erin ver vel í marki Stjörnunar.
90. mín
4 mín. í uppbótartíma.
Uppbótartími verður í minnsta lagi fjórar mínútur
89. mín
InnKarlotta Björk Andradóttir
ÚtArna Dís Arnþórsdóttir
89. mín
InnSvanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir
ÚtHafdís Bára Höskuldsdóttir
86. mín
Stjarnan er í leit að jöfnunarmarki en Gestirnir eru þéttir til baka.
80. mín
InnTara Jónsdóttir
ÚtBergdís Sveinsdóttir
78. mín
Nýkomin inn á
Fanney fær boltann úti vinstra megin og lætur vaða á markið. Fínasta skot sem fer rétt framjá
77. mín
InnFanney Lísa Jóhannesdóttir
ÚtHulda Hrund Arnarsdóttir
77. mín
InnÓlína Ágústa Valdimarsdóttir
ÚtHenríetta Ágústsdóttir
73. mín
Vel gert hjá Sigdísi á hægri kantinum. Sólar sig inn á teginn en fyrirgjöfin endar í hönum Erin.
71. mín
Víkingur fær horn.
Erin kýlir boltann í burtu.
Erin kýlir boltann í burtu.
69. mín
InnHrefna Jónsdóttir
ÚtGyða Kristín Gunnarsdóttir
Stjarnan gerir tvöfalda skiptingu.
68. mín
InnHrafnhildur Salka Pálmadóttir
ÚtSóley Edda Ingadóttir
67. mín
Rétt yfir!
Góð sókn hjá Víkingi sem endar á bylmingsskoti rétt fyrir utan teig. Skotið fer rétt yfir.
61. mín
InnHulda Ösp Ágústsdóttir
ÚtFreyja Stefánsdóttir
60. mín
Stjarnan fær horn.
Mikill darraðadans inn á teig gestanna. Brot dæmt á Stjörnuna.
Mikill darraðadans inn á teig gestanna. Brot dæmt á Stjörnuna.
55. mín
Gult spjald
Shaina Faiena Ashouri
Stöðvar skyndisókn.53. mín
Vel varið!
Sigdís næstum búin að koma Víkingum tveimur mörkum yfir! Hún á Gott hlaup upp vinstri kantinn og kemur sér í einn á einn á móti markmanni. Skýtur á markið en Erin ver í marki Stjörnunar.
50. mín
Boltinn kemur inn á teig Stjörnunar og Hafdís fær boltann. Kemst framhjá tveimur varnarmönnum og klárar svo í fjærhornið með glæsibrag! Víkingar komnir yfir.
Stjarnan 1-2 Víkingur
MAAAAARK!
Hafdís Bára Höskuldsdóttir
Gestirnir endurheimta forystuna!Boltinn kemur inn á teig Stjörnunar og Hafdís fær boltann. Kemst framhjá tveimur varnarmönnum og klárar svo í fjærhornið með glæsibrag! Víkingar komnir yfir.
Stjarnan 1-2 Víkingur
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Stjarnan byrjar með boltann.
45. mín
Svipmyndir úr fyrri hálfleik!
Tryggvi Már Gunnarson ljósmyndari er á leiknum.






45. mín
Hálfleikur í þessum stórskemmtilega leik!
1-1 í hálfleik eftir fjörugan fyrri hálfleik! Gestirnir komust yfir snemma leiks en heimakonur voru ekki lengi að jafna. Fáum vonandi spennandi seinni hálfleik!
43. mín
Víkingur fær horn.
Boltinn á fjær og skalli á mark. Varið af Erin
Boltinn á fjær og skalli á mark. Varið af Erin
39. mín
Hvílík varsla!
Góð sókn hjá Stjörnunni! Sóley með geggjaðan bolta inn á Huldu sem lúðrar boltanum í átt að marki. Sigurborg fljót að hugsa og ver frábærlega í markinu.
38. mín
Rétt framhjá!
Stjarnan að ógna! Hulda með skot við vítapunktinn sem fer rétt framhjá.
36. mín
Henríetta með fínt skot en Sigurborg ver örrugglega í marki Víkings.
34. mín
Langskot
Andrea Mist fær boltann á miðjunni, prjónar sig framhjá einum varnamanni og lætur svo vaða. Fast skot enn boltinn yfir markið
29. mín
Leikurinn aðeins róast niður eftir jöfnunarmark Stjörnuar.
23. mín
Víkingur fær aukaspyrnu á hættulegum stað. Kjörinn staður til að koma honum inn á teig.
Fyrirgjöfin kemur inn á teginn en Erin grípur boltann.
Fyrirgjöfin kemur inn á teginn en Erin grípur boltann.
20. mín
Stjarnan 1-1 Víkingur
MAAAARK!
Henríetta Ágústsdóttir
Stjarnan jafnar! Boltinn skoppar inn í teig gestanna eftir horn og Henríetta er fyrst á hann. Hittir hann vel og klárar færið frábærlega! Allt orðið jafnt.Stjarnan 1-1 Víkingur
19. mín
Stjarnan að sækja stíft að marki gestanna þessar mínúturnar.
17. mín
Varið!
Stórhættulegt horn inn á teig Víkings. Darraðadans inn á teignum og skot í átt að marki. Vel varið hjá Sigurborgu í markinu
14. mín
Stjarnan fær horn.
Hornið ekki gott og markspyrna frá marki Víkings.
Hornið ekki gott og markspyrna frá marki Víkings.
10. mín
Þær halda áfram að sækja
Gestirnir að fá aukaspyrnu rétt fyrir utan teginn.
Bergdís með skot enn boltinn beint á Erin í markinu.
Bergdís með skot enn boltinn beint á Erin í markinu.
7. mín
Stjarnan 0-1 Víkingur
Gestirnir komnir yfir!
Sigdís Eva Bárðardóttir
Frábært mark hjá Sigdísi. Tekur sprettinn upp vinstri kantinn, snýr inn á völlinn og klárar glæsilega í fjærhornið. Víkingar brjóta ísinn!Stjarnan 0-1 Víkingur
5. mín
lítið gerst hér á upphafsmínútum leiksins. Bæði lið enn að fóta sig.
1. mín
Þetta er byrjað!
Gestirnir byrja með boltann.
Fyrir leik
Þetta fer að byrja!
Liðin ganga inn á völlin. Styttist í upphafssparkið!
Fyrir leik
Það er bongó!
Fínustu aðstæður hér í Garðabænum. Sólskin, 10 stiga hiti, og heiðskýrt!
Fyrir leik
Helena Ólafs spáir í spilin!
Helena Ólafsdóttir spáði fyrir um fyrstu umferð Bestu deidarinnar. Hún spáir gestunum sigri í kvöld.
Stjarnan 0 - 1 Víkingur R.
“Það er einhver ára yfir þessu Víkingsliði. Þær sigruðu Val nokkuð óvænt í meistarar meistaranna og virðast ekki sjá hindrun í neinu verkefni. Ég hlakka mikið til að fylgjast með þessu unga liði í sumar og held að þær byrji tímabilið vel og vinni sterkan útisigur í Garðabæ.”

Stjarnan 0 - 1 Víkingur R.
“Það er einhver ára yfir þessu Víkingsliði. Þær sigruðu Val nokkuð óvænt í meistarar meistaranna og virðast ekki sjá hindrun í neinu verkefni. Ég hlakka mikið til að fylgjast með þessu unga liði í sumar og held að þær byrji tímabilið vel og vinni sterkan útisigur í Garðabæ.”

Fyrir leik
Dómarateymið
Bergrós Lilja Unudóttir verður á flautunni hér í kvöld og eru það þeir Ragnar Arelíus Sveinsson og Nour Natan Ninir sem verða henni til aðstoðar . Eftirlitsmaður er Þorsteinn Ólafs og varadómari er Daníel Ingi Þórisson.


Fyrir leik
Víkingur R.
Víkingur átti hreint út sagt stórkostlegt tímabil í fyrra þar sem þær sigruðu Lengjudeildina og unnu Mjólkurbikarinn. Víkingar eru nýliðar í efstu deild og er þeim spáð 7. sætinu í sumar. Víkingsliðið hefur nú þegar nælt sér í bikar í ár en þær sigruðu Val, ríkjandi Íslandsmeistara, í baráttu um titilinn meistarar meistaranna . Fyrirliði liðsins í fyrra, Nadía Atladóttir fór óvænt úr Fossvoginum rétt fyrir mót og áhugavert verður að sjá hvernig Víkingsliðið mun höndla það. Liðið hefur þó fengið til sín leikmenn með mikla reynslu í glugganum og verður skemmtilegt að fylgjast með þessu æsispennandi liði John Andrews í sumar!


Fyrir leik
Stjarnan
Sérfræðingar Fótbolta.net hafa spáð því að Stjarnan muni enda í 5. sæti Bestu deildar kvenna í sumar. Stjörnunni var spáð íslandsmeistaratitlinum í fyrra en það varð ekki raunin og hafnaði liðið í 4. sæti. Miklar breytingar urðu í leikmannahóp Stjörnunar í vetur og misstu þær nokkra mikilvæga leikmenn úr herbúðum sínum. Stjarnan hefur fengið til sín sex nýja leikmenn í glugganum og áhugavert verður að sjá hvernig Kristján mun stilla liðið sínu upp. Það verður spennandi að fylgjast með Stjörnunni í sumar og áhugavert að sjá hvernig þær fara af stað hér í kvöld.


Fyrir leik
Heil og sæl!
Góðan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu á viðuregin Stjörnunar og Víkings í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna! Leikurinn fer fram á Samsungvellinum í Garðabænum og hefst kl. 18:00






Takk fyrir samfylgdina.