SKÝRSLAN: FH sótti stigin þrjú í hörkuleik á Króknum
Hvað réði úrslitum?
Þetta var mjög spennandi leikur en það má seigja að hann hafi verið kaflaskiptur, liðinn skiptust á að sækja grimmt en Stólarnir yfirhöfuð áttu fleiri góð færi þannig það er hægt að seigja að þær geti verið vonsviknar með að ná ekki í 1 stig.
Bestu leikmenn
1. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir
Hildigunnur attention mjög fínan leik og var dugleg að búa til sóknarlega, fyrir FH var hún og Margrét brynja svona hættulegastar
2. Elísa Bríet Björnsdóttir
Elísa var frábær í dag á miðjunni og sést það langa leiðir að hún er mikið efni, sendingargetan hjá henni er algjörlega frábær
Atvikið
Hildigunnur skorað markið í leiknum, algjörlega frábært mark, en við í fréttamannastúkunni vorum ekki viss hver hefði skorað þannig við spyrjum 4 dómara og hann seigir að Jónína hafði skorað, en síðan fékk maður nokkur skilaboð um að leiðrétta það. =)
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitinn þýða kannski ekki mikið í dag, en bæði lið litu vel út og eru sumar að komast inn í hlutina þannig það stefnir allt í spennandi sumar hjá báðum liðum.
Vondur dagur
Erfit að velja einhvern hér en það er kannski hægt að seigja að færanýtinginn hjá Stólunum var vond í dag, þær fengu nokkur frábær færi en náðu ekki að nýta þau
Dómarinn - 4,5
Svolið skrítinn lína hjá þeim í dag, t.d fékk Gabrielle gullt spjald fyrir að sparka boltanum í burtu eftir flaut en síðan gerðist það tvisar sinnum hjá FH en ekkert spjald á þær, en alls enginn stór mistök hjá þeim



