Fotbolti.net
Besta deildin
@HalldorGauti08Halldór Gauti Tryggvason
Besta-deild kvenna
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
1 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 17' Sigdís Eva BárðardóttirHenríetta Ágústsdóttir 20'1 - 11 - 250' Hafdís Bára Höskuldsdóttir
Myndir: Tryggvi Már Gunnarsson

SKÝRSLAN: Nýliðarnir byrja vel

Hvað réði úrslitum?

Eftir kaflaskiptan og jafnan leik var það Víkingur sem bar sigur úr býtum í Garðabænum í kvöld. Víkingar komust yfir snemma leiks en það tók Stjörnuna ekki nema 13 mínútur að jafna og var staðan 1-1 í hálfleik. Gestirnir komu mun sterkari út í seinni hálfleikinn og sigruðu að lokum 2-1. Það mætti segja að samheldni og barátta nýliðanna hafi verið það sem réði úrslitum í kvöld.

Bestu leikmenn

1. Sigdís Eva Bárðadóttir

Sigdís var frábær úti á kantinum í kvöld. Stafaði mikil hætta af henni í hvert sinn sem hún fékk boltann. Hún skoraði einnig glæsilegt mark snemma leiks með skoti fyrir utan teig.

2. Sigurborg K. Sveinsbjörnsdóttir

Sigurborg var geggjuð í marki Víkings í kvöld. Átti margar frábærar vörslur sem héldu Víking inni í leiknum á ákveðnum tímapunktum. Heilt yfir mjög góð frammistaða hjá henni í kvöld

Atvikið

Atvikið í dag er markið sem Sigdís skoraði senmma leiks. Bæði var það frábært mark en það kom einnig þessum skemmtilega fótboltaleik í gang og vaknaði leikurinn til lífsins eftir markið.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingur nælir sér þrjú stig í 1. umferð á erfiðum útivelli. Stjarnan enn með núll stig.

Vondur dagur

Erfitt að gefa einhverjum einum þennan titil. Sóknarlína Stjörnunar átti í erfiðleikum með að skapa sér og klára færin sín í kvöld

Dómarinn - 6,5

Fannst Bergrós dæma leikinn vel framan af en þegar fór að hitna í kolunum átti hún stundum í erfiðleikum með að halda góðri línu. Heilt yfir bara vel dæmdur leikur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.