Fotbolti.net
Besta deildin
Hafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
Besta-deild kvenna
Kópavogsvöllur
Breiðablik
Breiðablik
3 - 0
Keflavík
Keflavík
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir 20'1 - 0Vigdís Lilja Kristjánsdóttir 49'2 - 0Agla María Albertsdóttir 70'3 - 0
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Leik lokið!
Leiknum er lokið með sigri Breiðabliks, 3 - 0. Viðtöl og skýrsla væntanleg.
Keflavík
92. mín
Gult spjald

Susanna Joy Friedrichs

Keflavík
91. mín
InnBrynja Arnarsdóttir
ÚtSalóme Kristín Róbertsdóttir
Jonathan Glenn gefur tveimur ungum minna en eina mínútu af spiltíma. Ætli þær snerti boltann?
Keflavík
91. mín
InnKamilla Huld Jónsdóttir
ÚtAnita Bergrán Eyjólfsdóttir
Jonathan Glenn gefur tveimur ungum eina mínútu af spiltíma. Ætli þær snerti boltann?
90. mín
Það verða 2 mínútur í uppbótartíma.
84. mín
Nokkuð fín mæting á Kópavogsvöll í dag, 438 áhorfendur.
Breiðablik
78. mín
InnLíf Joostdóttir van Bemmel
ÚtAndrea Rut Bjarnadóttir
77. mín
Nik Chamberlain þjálfari Blika að hrífa stúkuna. Fékk boltann og mótttakan mögnuð og boltinn aftur út á völl.
Breiðablik
70. mín
MAAAARK!

Agla María Albertsdóttir (stoðsending: Karitas Tómasdóttir)

Karitas var rétt komin inná þegar hún á þessa geggjuðu sendingu inn í teiginn beint á kollinn á Öglu Maríu sem skoraði gott mark. Staðan orðin 3-0.
Keflavík
68. mín
InnElfa Karen Magnúsdóttir
ÚtSigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir
Breiðablik
68. mín
InnKaritas Tómasdóttir
ÚtBarbára Sól Gísladóttir
Breiðablik
68. mín
InnHrafnhildur Ása Halldórsdóttir
ÚtMargrét Lea Gísladóttir
Breiðablik
68. mín
InnJakobína Hjörvarsdóttir
ÚtVigdís Lilja Kristjánsdóttir
Breiðablik
66. mín
Gult spjald

Agla María Albertsdóttir

,,Rugludallur!" eru skilaboðin sem Arnar Ingi fékk úr stúkunni fyrir að spjalda Öglu Maríu fyrir brot í miðjuhringnum. Réttur dómur samt.
63. mín
Agla María með mjög gott skot að marki sem Vera Varis varði.
62. mín
Margrét Lea Gísladóttir með góða sendingu inn í teig á Andreu Rut sem skaut að marki en varið í horn.
Breiðablik
62. mín
Gult spjald

Vigdís Lilja Kristjánsdóttir

Held að þetta hafi bara verið fyrir tuð.
Breiðablik
56. mín
InnBirta Georgsdóttir
ÚtEdith Kristín Kristjánsdóttir
51. mín
Andrea Rut með skot rétt framhjá Keflavíkurmarkinu.
Breiðablik
49. mín
MAAAARK!

Vigdís Lilja Kristjánsdóttir (stoðsending: Agla María Albertsdóttir )

Blikar bæta við marki. Agla María með góða aukaspyrnu inn í teiginn þar sem Vigdís Lilja skaut af stuttu færi og skoraði . Vigdís búin að vera mjög góð í dag og hefur skorað bæði mörkin.
47. mín
Keflavík skapar strax hættu en blikar hreinsa frá markinu Saorla Lorraine Miller.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn. Engar breytingar voru gerðar á liðunum í hálfleik.
45. mín
Kominn hálfleikur. Blikar leiða með einu marki gegn engu og hafa verið ívið betri þegar leið á leikinn. Keflavík samt nokkuð sterkt og getur auðeldlega komið sér inn í leikinn.
44. mín
Vera er staðin upp og leikurinn heldur áfram.
42. mín
Vera Varis markvörður Keflavíkur liggur meidd á vellinum. Hún virðist hafa meiðst við góða sókn Blika þar sem Agla María sendi geggjaða sendingu inn fyrir vörnina á Andru Rut sem var rangstæð.
40. mín
Elianna Esther Anna Beard með fast skot sem fór í varnarmann og framhjá marki Blika.
38. mín
Agla María með skot framhjá marki Keflavíkur.
34. mín
Andrea Rut með skot að marki Keflavíkur sem Vera Varis varði. Lítil hætta þarna.
31. mín
Melanie Claire Rendeiro með laust skot að marki sem Telma átti ekki í neinum vandræðum með.
23. mín
Vigdís Lilja í dauðafæri í teignum en hitti boltann illa. Vera handsamaði hann.
Breiðablik
20. mín
Það er komið mark!

Vigdís Lilja Kristjánsdóttir (stoðsending: Anna Nurmi)

Breiðablik er komið yfir í þessum leik! Það var ekki mikið að gerast þegar Anna Nurmi sendi stungusendingu úr vörninni innfyrir vörn Keflavíkur. Þar var Vigdís Lilja ein á auðum sjó og setti boltann framhjá Veru Varis í markinu.
18. mín
Anita Lind Daníelsdóttir með skot rétt yfir mark Blika.
16. mín
Susanna Joy Friedrichs bjargar á marklínu eftir laus skot frá Öglu Maríu. Þarna skall hurð nærri hælum hjá Keflavík.
15. mín
Það er ekkert mikið að gerast, Keflavík búið að fá tvö horn í röð sem sköpuðu enga hættu. Nokkuð jafnræði í liðunum
9. mín
Melanie Claire Rendeiro með skot í teignum en í liðsfélaga. Það er jafnræði með liðunum svona í upphafi leiksins.
4. mín
Vigdís Lilja skapar hættu í teig Keflavíkur með góðri sendingu en Keflavík bjargar í horn. Úr horninu varð smá darraðadans en Vera Varis náði á endanum að handsama boltann.
1. mín
Þetta er byrjað
Breiðablik byrjar með boltann og spilar í átt að Sporthúsinu.
Fyrir leik
Birta verðlaunuð
Birta Georgsdóttir fær í dag viðurkenningu fyrir að hafa spilað 100 leiki fyrir Breiðablik. Félagið hefur breytt úr því að afhenda viðurkenningarplatta yfir í treyju sem Birta fær afhenta frá Flosa Eiríkssyni formanni knattspyrnudeildar Breiðabliks.
Fyrir leik
Þetta er að byrja
Liðin ganga nú út á völlinn og gera sig klár í að hefja leik. Breiðablik í hefðbundnum grænum treyjum, hvítum buxum og sokkum. Keflavík í hvítum treyjum, bláum buxum og sokkum.
Fyrir leik
Byrjunarlðin klár
Byrjunarliðin eru klár hér sitthvorum megin við textann.
Fyrir leik
Sumarið er komið
Það brast allt í einu á sumar hér á höfuðborgarsvæðinu svo leikurinn í dag verður spilaður í bongóblíðu. Um 9 stiga hiti, heiðskýrt og það rétt blaktir á fánaborgunum við völlinn.
Fyrir leik
Dómarateymið
Arnar Ingi Ingvarsson dæmir leikinn í dag. Hann er með þau Rögnvald Þ Höskuldsson og Eydísi Rögnu Einarsdóttur sér til aðstoðar á línunum. Breki Sigurðsson er skiltadómari og KSÍ sendir Berg Þór Steingrímsson til að hafa eftirlit með störfum dómara og umgjörð leiksins.

Arnar Ingi dæmir í dag. Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Leikdagur í Kópavogi
Góðan daginn, verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Breiðabliks og Keflavíkur í 1. umferð Bestu-deildar kvenna.

Leikurinn hefst klukkan 18:00 á Kópavogsvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.