Fotbolti.net
Besta deildin
@atlifuglAtli Arason
Atli Arason
Besta-deild kvenna
Samsungvöllurinn
Kalt og smá gola, sjö gráður og sjö metrar á sekúndu.
Stjarnan
Stjarnan
0 - 2
Tindastóll
Tindastóll
0 - 121' Jordyn Rhodes0 - 292' Jordyn Rhodes
Dómari: Guðni Páll Kristjánsson

SKÝRSLAN: Stólarnir sóttu þrjú stig í Garðabæ

Hvað réði úrslitum?

Öflugur varnarleikur Tindastóls. Þrátt fyrir að Stjarnan sótti oftar og var meira með boltann þá náði agaður varnarleikur hjá Stólunum að halda heimakonum fjærri því að skapa hættulegar marktilraunir.

Bestu leikmenn

1. Jordyn Rhodes

Bandaríski framherjin var sú sem skildin liðin tvö af í kvöld.

2. Hrafnhildur Salka Pálmadóttir

Fyrsti byrjunnarliðsleikur Hrafnhildar í bestu deildinni en það var ekki að sjá, skapaði nokkur hættuleg færi í sókninni og bjargaði einu sinni á marklínu á hinum endanum.

Atvikið

Fyrsta mark Rhodes. Það var ákveðin heppnisstimpill yfir markinu þar sem boltinn skoppaði í gegnum klof Mcleod og kom einnig gegn gangi leiksins. Erfiður dagur varð vondur fyrir Stjörnuna eftir fyrsta markið.

Hvað þýða úrslitin?

Sigur gestanna þýðir að þær jafna Stjörnunna bæði af stigum og markahlutfalli í sjötta og sjöunda sæti Bestu-deildarinnar.

Vondur dagur

Anna María Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, átti vondan dag en ekki fyrir frammistöðu hennar inn á vellinum sem var nokkuð góð, heldur vegna þess að hún varð fyrir slæmu höggi og fór blóðug á sjúkrabörum af leikvellinum og beint upp í sjúkrabíl.

Dómarinn - 5

Guðni var ekki mikið fyrir að flauta en það voru nokkur brot hjá báðum liðum sem hefði mátt grípa inn í.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.