Fotbolti.net
Besta deildin
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Besta-deild karla
Samsungvöllurinn
Það blæs smá annars er léttskýjað og 7°
Stjarnan
Stjarnan
4 - 1
ÍA
ÍA
0 - 19' Hinrik HarðarsonEmil Atlason 28'1 - 1Róbert Frosti Þorkelsson 60'2 - 1Óli Valur Ómarsson 64'3 - 1Guðmundur Baldvin Nökkvason 75'4 - 1
Dómari: Elías Ingi Árnason
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Gleðin er fundin aftur í Garðabænum

Hvað réði úrslitum?

Eftir góðar fyrstu 15 mínútur frá Skagamönnum tók Stjörnuliðið algjörlega yfir leikinn. Þeim gekk illa að skapa góð færi lengst af en þeir voru búnir að vera á banka á dyrnar þétt og örugglega það lengi að varnarmúrinn brast á endanum hjá ÍA. Það komu svo 3 mörk á 15 mínútna kafla sem gerði útaf við leikinn.

Bestu leikmenn

1. Guðmundur Baldvin Nökkvason (Stjarnan)

Guðmundur leggur upp 2 mörk og skorar 1. Með þannig tölfræði er maður almennt maður leiksins. Guðmundur hefur byrjað tímabilið mjög vel og hélt uppteknum hætti í þessum leik.

2. Emil Atlason (Stjarnan)

Þetta var mikil liðsheildar frammistaða og fyrir mér aðallega bara maður leiksins sem stóð mest upp úr. Emil skorar hinsvegar sitt fyrsta mark á þessu tímabili þannig hann verður að fá shout.

Atvikið

Fjórða markið hjá Stjörnunni drap allar vonir Skagamanna. Svo er spurning hvort Örvar brýtur á sér þegar hann togar í Ármann, Skagamönnum finnst það. Mér hefði hinsvegar fundist það frekar soft.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan er komið á skrið í markaskorun og þeir eru með samtals 9 stig úr fyrstu 5 leikjunum. Það skilar þeim eins og er í 4. sætið í deildinni. ÍA er núna búið að tapa tveim leikjum í röð og eru með 6 stig úr 5 leikjum. Þeir eru því í 7. sæti.

Vondur dagur

Enginn sérstakur skúrkur í þessum leik. Jón Gísli gerir smá mistök í öðru marki Stjörnunnar sem kemur heimamönnum yfir. Hann átti ekkert sérstaklega slakan leik en þessi mistök komu opnaði varnarmúrinn sem hafði haldið svo vel.

Dómarinn - 9

Vel dæmt í heildina, engir risa dómar eða atvik í þessum leik og svo voru bara hófleg 6 spjöld í heildina. Öll rétt af mínu mati.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.