Fotbolti.net
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Lengjudeild karla
Stakkavíkurvöllur-Safamýri
Það rignir í höfuðborginni
Grindavík
Grindavík
1 - 1
ÍR
ÍR
Kwame Quee 10'1 - 01 - 193' Bragi Karl Bjarkason (víti)
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason

SKÝRSLAN: Nýliðar halda áfram að safna stigum í fyrsta leik Grindvíkinga í Safamýri

Hvað réði úrslitum?

Þetta var mjög kaflaskiptur leikur. ÍR héldu betur í boltann, en þegar Grindavík fóru upp voru þeir alltaf hættulegari. Grindavík skorar snemma í leiknum, en ÍR ná að jafna leikinn eftir vítaspyrnu í lok leiksins.

Bestu leikmenn

1. Kwame Quee

Skapaði mikið af hættu hjá Grindavík og skoraði fyrsta mark leiksins. Ég skil ekki alveg hvers vegna hann var tekinn útaf svona senmma.

2. Kristján Atli Marteinsson

Algjör risi þarna í miðjunni. Kristján vann nærrum því alla skallabolta sem hann fór í og hélt ÍR vel inn í þessum leik eftir að þeir lentu undir. Flottur leikur hjá honum í dag.

Atvikið

ÍR var búið að sýna mikla hættu á marki Grindvíkinga í loka mínútur leiksins. En Gunnar dæmir svo hendi á Dennis Nieblas, sem Bragi Karl skorar úr.

Hvað þýða úrslitin?

Grindavík næla sér í sitt fyrsta stig í ár og liggja í 8. sæti eftir tvær umferðir. ÍR halda áfram að safna stigum og liggja í 4. sæti deildarinnar eftir tvær umferðir.

Vondur dagur

Bæði lið áttu góðan leik og erfitt er að setja einhverja slæma frammistöðu á sértaka leikmenn. Eina sem kemur upp í hausinn á mér er vítið sem ÍR fær. Mér finnst Dennis setja hendina sýna í þannig stöðu að hann reynir að útreikna það þannig að boltinn eigi að fara fyrir ofan olnbogan hans, en misreiknar alveg boltann. Mér fannst hann hefði alveg getað fært höndina í burtu eða nær líkama sínum.

Dómarinn - 4

Alls ekki sérstakur leikur hjá Gunnari og félögum. Það var ekki lögð sama lína fyrir brot í þessum leik. Svo fannst mér Gunnar vera gefa Grindavík aukaspyrnur fyrir brot, en ekki ÍR fyrir sama eða alverlegri brot. Svo veit ég ekki hvað þjálfarar sögðu, en það virtist ekki taka það mikið að það komi gult spjald á bekkinn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.