SKÝRSLAN: Fram stóð af sér storminn og sótti gott stig
Hvað réði úrslitum?
Fyrri hálfleikurinn var mjög lokaður og ekki mikið um færi en Stjarnan náði þá inn marki fyrir hlé þegar Óli Valur skallaði frábæra fyrirgjöf frá Hilmari Árna í netið.
Seinni hálfleikur var mikið fram og tilbaka og Fram nær inn góðu jöfnunarmarki og stana svo af sér storminn til að landa stiginu.
Bestu leikmenn
1. Kyle McLagan
Var stórkostlegur í varnarlína Fram í kvöld. Henti sér í alla bolta og átti risa tæklingar í leiknum fyrir Fram. Einhverjir vildu víti á hann oftar en einusinni en þar sem það er ekki dæmt þá er erfitt að kalla þær ekki bara frábærar tæklingar.
2. Óli Valur Ómarsson
Skoraði gott mark fyrir Stjörnuna og var með áætlunarferðir upp vænginn. Hefði mögulega átt að fá vítaspyrnu seint í leiknum og var til vandræða fyrir Fram.
Atvikið
Óli Valur fer niður í baráttu við Kyle McLagan. Dómarinn metur að hann hafi farið á undan í boltann. Mögulega hefði Stjarnan átt að fá vítaspyrnu þarna og færi á að taka öll stigin í kvöld.
Stemningin í stúkunni var svo líka skemmtileg þar sem gæslan þurfti að fjarlægja bjórtrekt.
Hvað þýða úrslitin?
Bæði lið fá sitthvort stigið og eru hlið við hlið í 3.-4.sæti. Fram með 11 stig og Stjarnan 11.
Vondur dagur
Andri Adolphsson fór meiddur útaf í fyrri hálfleik. Gat ekki séð að það hafi eitthvað contact átt sér stað sem tók hann úr leik svo það boðar aldrei gott.
Dómarinn - 5
Allt í lagi ekki gott myndu kannski einhverjir segja. Var ekki mikið að lyfta spjöldum sem var gott en svo fékk Fram markspyrnu þegar það var augljóst að Ólafur Íshólm varði boltann og svo eru tilköll til vítaspyrnu frá Stjörnunni sem þarf að skoða betur.




