SKÝRSLAN: Gæðamunur á Hásteinsvelli
Hvað réði úrslitum?
ÍBV sýndi einfaldlega meiri gæði í dag. Liðið hefði getað skorað fleiri mörk en Þróttur barðist vel á köflum.
Bestu leikmenn
1. Oliver Heiðarsson - ÍBV
Var algjörlega frábær. Skoraði þrennu þar sem hann nýtti hraða sinn vel og afgreiðslurnar voru úr efstu hillu.
2. Sverrir Páll Hjaltested - ÍBV
Leikmenn áttu auðvelt með að finna Sverri í fætur og var hann mjög öflugur í spili ÍBV. Hann setti einnig tóninn með laglegu skallamarki.
Atvikið
Það er ekki oft sem dómari liggur í grasinu en Twana og Tómas Bent rákust saman og lá Twana eftir og flautaði til að stöðva leikinn. Það er ekki þægilegt að rekast á Tómas en Twana hélt leik áfram og uppskar lófatak úr stúkunni er hann reis aftur á fætur.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV vill gera Hásteinsvöll að vígi og kemst á blað í mótinu eftir tap í 1. umferð. Þróttur er enn án sigurs en með stig.
Vondur dagur
Varnarlína Þróttar var í alls kyns brasi í dag og þurfa þeir að þétta sig ef ekki á illa að fara.
Dómarinn - 6,5
Twana átti ágætan leik en missti stundum taktinn fannst manni. Þá var mjög óheppilegt fyrir hann að dæma ekki a.m.k. aukaspyrnu þegar ÍBV vildi sjá rautt eftir ljóta tæklingu á Bjarka Birni sem fór meiddur af velli.



