Leik lokið!
92. mín
Gult spjald
Jóhann Árni Gunnarsson
Ekkert nema pirringsbrot á Kidda Jóns.91. mín
Fáum +4 í uppbót.
88. mín
Arnór Gauti með skot sem Árni Snær ver auðveldlega.
87. mín
InnAdolf Daði Birgisson
ÚtRóbert Frosti Þorkelsson
87. mín
InnAndri Rafn Yeoman
ÚtKristinn Steindórsson
85. mín
Blikarnir virka svolítið bara í 'survival mode' þessa stundina. Lítið um að vera sóknarlega.
82. mín
Stúkan er farin að taka við sér hérna og hefur skoðun á öllum dómum Ívars Orra þessa stundina.
80. mín
Örvar Eggerts fellur við í baráttunni við Viktor Örn og heldur um andlitið. Sá ekki hvað gerðist og Ívar Orri sá það ekki heldur en stöðvar samt leikinn og athugar Örvar.
77. mín
Viktor Karl reynir að þræða Ísak Snær í gegn en sendingin aðeins of föst.
76. mín
Gult spjald
Baldur Logi Guðlaugsson
75. mín
Róbert Frosti með frábæran bolta á Baldur Loga á teig Blika sem nær þó ekki að koma sendingu fyrir markið.
73. mín
InnÍsak Snær Þorvaldsson
ÚtBenjamin Stokke
73. mín
InnOliver Sigurjónsson
ÚtAlexander Helgi Sigurðarson
72. mín
Stjarnan í hörku færi en Örvar Eggerts með hrikalega ákvörðun og hún rennur út í sandinn. Emil Atla var gott sem frír á teignum.
69. mín
InnBaldur Logi Guðlaugsson
ÚtHelgi Fróði Ingason
68. mín
Guðmundur Baldvin með hörku skot sem Anton Ari ver! Blikar ná ekki að hreinsa og endar með skalla yfir markið frá Örvari Eggerts.
67. mín
Blikarnir eru að fá færin í seinni hálfleik en vantar að reka smiðshöggið. Gæti orðið dýrt að nýta ekki þessi færi.
66. mín
InnArnór Gauti Jónsson
ÚtPatrik Johannesen
Verið flottur í leiknum.
66. mín
Damir með skalla á fjær sem fer yfir markið!
64. mín
Árni Snær pirraður á því hvað boltasækjarar Blika eru að tefja. Ekki sáttur með hvað hann er að fá boltann seint frá þeim og er farinn að geyma bolta hjá sér við markið.
61. mín
Jason Daði er kominn á ferðina aftur svo það lofar góðu.
59. mín
Jason Daði leggjst í grasið og þarf að fá aðhlyningu.
Ekki það sem Blikar vilja sjá.
Ekki það sem Blikar vilja sjá.
57. mín
Gult spjald
Guðmundur Kristjánsson
Fer aftan í Viktor Karl og fær Spjald fyrir.55. mín
Viktor Örn ómerktur

53. mín

Áhugaverð samsetning á búningi Gumma Kri

51. mín
Kiddi Jóns er að komast einn á móti markmanni en þá kemur Emil Atla með stórkostlega tæklingu!
49. mín
DAUÐAFÆRI!
Viktor Karl með frábæran bolta fyrir markið og Patrik Johannesen skóflar boltanum yfir!
Stjarnan síðan í allskonar brasi í markspyrnunni og missa boltann og Kiddi Jóns á sem betur fer fyrir gestina ekki gott skot sem Árni Snær ver.
Stjarnan síðan í allskonar brasi í markspyrnunni og missa boltann og Kiddi Jóns á sem betur fer fyrir gestina ekki gott skot sem Árni Snær ver.
48. mín
Gult spjald
Helgi Fróði Ingason
46. mín
Emil Atla sparkar okkur af stað aftur.
45. mín

Hálfleikur

45. mín
Hálfleikur
Blikar leiða í hlé!
Áhugaverð byrjun og endir á þessum hálfleik þar sem mörkin komu.
Tökum okkur stutt hlé áður en við snúum aftur með síðari.
Áhugaverð byrjun og endir á þessum hálfleik þar sem mörkin komu.
Tökum okkur stutt hlé áður en við snúum aftur með síðari.
45. mín
Sendi Anton Ara í vinstra hornið og setti boltann aðeins hægra meginn.
+1
Emil Atlason
Emil Atla minnkar muninn af vítapunktinum!Sendi Anton Ara í vinstra hornið og setti boltann aðeins hægra meginn.
44. mín
Örvar Eggerts fellur við í teignum. Damir renndi sér og Örvar fór niður.
44. mín
STJARNAN FÆR VÍTI!!
43. mín
BLIKAR TVÖFALDA!!
Jason Daði Svanþórsson (stoðsending: Patrik Johannesen)
Höskuldur á fínasta bolta fyrir markið sem Patrik Johannesen ætlar að klippa boltann svona líka sem misheppnast en verður að frábærri stoðsendingu í staðin!42. mín
Gult spjald
Viktor Örn Margeirsson
38. mín
Blikar að spila hættulegan leik tilbaka og næstum því vesen þegar Emil Atla nær að henda sér fyrir bolta frá Antoni Ara en fékk boltann í hendinga og hendi dæmt.
36. mín
Örvar Eggerts fær boltann óvænt og æðir að marki en skotið hans er slappt og beint í fangið á Antoni Ara.
35. mín
Helgi Fróði tekur spyrnuna en lyftir boltanum yfir markið.
34. mín
Stjarnan fær aukaspyrnu við D-bogan.
30. mín
Aðeins hægst á leiknum þessa stundina. Bæði lið þó að reyna finna opnur.
24. mín
Stjarnan fær hornspyrnu og boltinn fellur fyrir Örvar Loga sem nær skoti á mark en fer af varnarmanni sem tekur allan kraft úr skotinu og beint í fangið á Antoni Ara.
22. mín
Gult spjald
Alexander Helgi Sigurðarson
Brýtur á Örvari Eggerts og fær spjald fyrir.16. mín
Kiddi Jóns með lúmska sleggju á fjær með hægri fæti! Árni Snær vandanum vaxin.
13. mín
Guðmundur Baldvin með hörku skot sem Anton Ari ver frábærlega!
12. mín
Óli Valur með skot sem Anton Ari ver út í teig en Blikar koma boltanum frá.
11. mín
Fínasta fyrirgjöf fyrir markið hjá Blikum og Emil Atla skallar upp í loft en flaggið var sömuleiðis farið á loft.
7. mín
Kiddi Jóns með aukaspyrnu fyrir markið sem Árni Snær grípur.
5. mín
BLIKAR LEIÐA!

BLIKAR TAKA FORYSTUNA!
Patrik Johannesen
Blikar þræða Kidda Steindórs í einn á einn gegn Árna Snær sem ver boltann út í teig þar sem Patrik Johannesen er fyrstur að átta sig og leggur boltann framhjá varnarmönnum Stjörnunnar og í netið!BLIKAR LEIÐA!

1. mín
Leikur hafinn
Það eru Blikar sem sparka þessu af stað. Benjamin Stokke á upphafssparkið.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár!
Breiðablik gerir fjórar breytingar á sínu liði frá síðasta leik gegn Fylki. Alexander Helgi Sigurðarson, Patrik Johannesen, Benjamin Stokke og Viktor Örn Margeirsson koma inn fyrir Daniel Obbekjær, Aron Bjarnason, Ísak Snær Þorvaldsson og Arnór Gauta Jónsson.
Stjarnan gerir tvær breytingar á sínu liði frá bikar sigrinum gegn KR. Árni Snær Ólafsson snýr aftur í rammann fyrir Mathias Rosenorn og Helgi Fróði Ingason kemur inn fyrir Hilmar Árna Halldórsson sem fór meiddur af velli snemma leiks gegn KR.

Jason mikið í umræðunni
Jason Daði Svanþórsson, einn besti leikmaður Bestu deildarinnar, verður samningslaus hjá Breiðabliki eftir tímabilið. Íslands- og bikarmeistarar Víkings hafa þegar rætt við hann, eins og fram kom í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
20.05.2024 20:00
Arnar um Jason: Eigum að tala við bestu leikmennina
Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar
Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórðarson, sem varð bikarmeistari með Silkeborg í Danmörku á dögunum, er spámaður umferðarinnar.
Breiðablik 0 - 2 Stjarnan
Árni Snær lokar þarna bara fyrir. Ekki meira að segja.

Breiðablik 0 - 2 Stjarnan
Árni Snær lokar þarna bara fyrir. Ekki meira að segja.

Fyrir leik
Dómarateymið
Ívar Orri Kristjánsson heldur utan um flautuna hér í kvöld og honum til aðstoðar verða Birkir Sigurðarson og Patrik Freyr Guðmundsson.
Þórður Þorsteinn Þórðarson er fjórði dómari og Gylfi Þór Orrason sér um eftirlit.

Þórður Þorsteinn Þórðarson er fjórði dómari og Gylfi Þór Orrason sér um eftirlit.

Fyrir leik
Breiðablik
Blikarnir leiða þennan þétta pakka frá 2.-9.sæti.
Breiðablik eru í öðru sæti deildarinnar með 12 stig og geta með sigri í kvöld aðeins slitið sig frá þessum þetta pakka.
Breiðablik hefur átt svolítið "start-stop" gengi á tímabilinu. Þeir hafa í síðustu fimm leikjum unnið þrjá og tapað tveim en hafa ekki náð að tengja sigrana.
Breiðablik hefur skorað næst flest mörkin í deildinni til þessa eða 15 talsins og fengið á sig 9 sem gefur þeim +6 í markatölu.
Jason Daði Svanþórsson, Benjamin Stokke og Aron Bjarnason hafa allir skorað 2 mörk þar sem af er tímabils en aðrir hafa skorað minna.

Stjarnan
Stjarnan er í þéttum pakka í deildinni. Þeir sitja sem stendur í 7.sæti deildarinnar en geta með sigri lyft sér upp í 2.sætið. Stutt á milli í þessu en frá 8.sæti skilja bara 3 stig frá 2.sæti.
Stjarnan var á þokkalegasta runni áður en Framarar litu í heimsókn til þeirra. Stjarnan hafði unnið þrjá í röð fram að síðasta leik þegar Fram mættu til þeirra á Samungvöllinn og tóku stig með sér.
Stjarnan hefur skorað 8 mörk og fengið á sig 7 sem gera +1 í markatölu.
Óli Valur Ómarsson og Guðmundur Baldvin Nökkvason hafa skorað 2 mörk hvor það sem af er tímabils en aðrir hafa skorað minna.

Besta deildin
Besta deildin hefur farið skemmtilega af stað og er 7.umferðin hálfnuð.
Deildin eins og hún lítur út akkurat núna:
1.Víkingur R - 18 stig (7 leikir)
2.Breiðablik - 12 stig (6 leikir)
3.FH - 12 stig (7 leikir)
4.Valur - 11 stig (6 leikir)
5.Fram - 11 stig (6 leikir)
6.KR - 10 stig (7 leikir)
7.Stjarnan - 10 stig (6 leikir)
8.ÍA - 9 stig (6 leikir)
9.HK - 7 stig (6 leikir)
10.Vestri - 6 stig (7 leikir)
11.KA - 5 stig (7 leikir)
12.Fylkir - 1 stig (7 leikir)
7.Umferð:
Vestri 1-4 Víkingur R.
KA 4-2 Fylkir
FH 1-2 KR

Heil og sæl!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Kópavogsvelli þar sem Breiðablik taka á móti Stjörnunni í 7.umferð Bestu deild karla.

Viðtöl og skýrsla væntanleg með kvöldkaffinu.