Leik lokið!
Afturelding hirða öll 3 stigin í kvöld, ég þakka samfylgdina
83. mín
InnElfa Sif Hlynsdóttir
ÚtAnna Pálína Sigurðardóttir
Anna borin af velli
eitthver meiðsli sem hafa átt sér stað hér á ferðinni
80. mín
Þvílík varsla!!
Katelyn með enn aðra vörsluna, svakalega vel gert hjá henni þar sem hún rétt náði að teygja sig fyrir skot Aftureldingar.
78. mín
InnSigrún Eva Sigurðardóttir
ÚtHarpa Karen Antonsdóttir
Skorar, búið, bless
Harpa Karen tekin af velli eftir að hafa skorað.
74. mín
MARK
Harpa Karen Antonsdóttir (stoðsending: Hildur Karítas Gunnarsdóttir)
Eftir misheppnað skot Hildar dettur boltinn vel í fætur Hörpu sem klárar sóknina vel með góðu skoti!72. mín
Katelyn flýgiur
Grinvíkingar í brasi fyrir utan teig, missa boltann og Afturelding vinnur boltann þar, langskot sem stefnir að markinu en Katelyn blakar boltanum framhjá!
67. mín
InnÞuríður Ásta Guðmundsdóttir
ÚtBríet Rose Raysdóttir
Eina tvöfalda, takk!
Grindvíkingar með tvöfalda skiptingu, nýta stoppin
67. mín
InnAubrey Goodwill
ÚtMist Smáradóttir
Eina tvöfalda, takk!
Grindvíkingar með tvöfalda skiptingu, nýta stoppin
62. mín
InnKatrín S. Vilhjálmsdóttir
ÚtKatrín Rut Kvaran
Katrín inn, Katrín út
59. mín
DAUÐAFÆRI
Katrín Rut kemst í ´einn á einn´færi, en Katelyn Kellogg ver hetjulega!
46. mín
Hættuleg sókn eftir 40 sek
Grindvíkingar hlaupa strax í sókn en boltinn endar í markspyrnu
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
0-0 í hálfleik, veðurspáin fyrir leik eitthvað að klikka
38. mín
Uppfærsla
Ekki hefur þurft mikið af uppfærslum þar sem leikurinn hefur spilast 95% á miðjunni, afar kaflaskipt en jafnframt spennandi leikur þrátt fyrir fá atvik.
31. mín
InnJúlía Rán Bjarnadóttir
ÚtJúlía Ruth Thasaphong
Fyrsta skipting leiksins
spurning um meiðsli, ekki viss samt
23. mín
Illa nýtt færi - Afturelding
Arelia enn og aftur sloppin innfyrir, gefur boltann út á Hörpu sem skýtur boltanum yfir tómt markið.
11. mín
Arelia ÆTLAR að skora
Arelia með enn annað hættulega skotið sitt, þetta hlýtur nú að fara detta inn hja henni með þessu áframhaldi!
7. mín
Hættuleg sókn
Arelia Lewis fær mjög góða sendingu í gegn, skýtur þéttingsfast í fjærhornið en Katelyn ver vel, horn fyrir Aftureldingu.
1. mín
Przemyslaw Janik flautar leikinn í gang
0. mín
Leikmenn ganga inn á völlinn
0. mín
Liðin komin inn!
Bæði lið gera örlitlar breytingar frá seinustu leikjum, ekkert óvenjulegt.
0. mín
Grindavík
Grindvíkingar hófu keppni með 1-0 tapi gegn ÍA sem framm fór á Akranesi, en komu þær svo tvíelfdar inn í leikinn í 2. umferð gegn HK þar sem Grindavík tóku öll 3 stigin með marki frá Unu Rós á 7 mínútu leiksins.
Grindavík var spáð 6. Sæti í spá leikmanna og þjálfara sem framm fór fyrri mót.

0. mín
Afturelding
Aftureldingarkonur byrjuðu tímabilið að krafti þar sem þær sóttu öll 3 stigin í 2-1 sigri gegn góðu liði ÍBV. Aftureldingu var spáð 1. sæti í deildinni fyrir tímabilið og ÍBV spáð 2. sætinu í spá leikmanna og þjálfara.
Afturelding þurfti þó að deila stigum með Gróttu í seinni umferð deildarinnar þar sem staðan var 1-1 þegar flautað var til leiksloka, Gróttukonum er spáð 8. sæti í Lengjudeildinni í spá leikmanna og þjálfara.

0. mín
Komiði sæl og velkomin í beina textalýsingu frá leik Aftureldingar gegn Gríndavík.
Veður.is spáir 5-10 m/sek með 80% líkum á markaregni hér að Varmá í kvöld!


