SKÝRSLAN: Fyrsti sigur Selfoss kvenna í hús
Hvað réði úrslitum?
Selfyssingar sterkari í leiknum jafnvel þótt það hafi verið smá óöryggi í þessu í enda fyrri hálfleiks en áttu þessi 3 stig skilið
Bestu leikmenn
1. Auður Helga Halldórsdóttir (Selfoss)
Skoraði tvö mjög góð og mikilvæg mörk og skapaði vandræði fyrir varnarmenn ÍR í leiknum
2. Katrín Ágústdóttir (Selfoss)
Mark og stoðsending og var stöðugt í boltanum.
Linda Eshun einnig mjög góð fyrir ÍR
Atvikið
Mark Katrínar sem á heima í meistaradeildinni.
Fær boltann í fætur, heldur manninum frá sér, snýr manninn og klárar í fjær. Erfitt að finna betra framherja mark en þetta
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss tyllir sér á toppinn með Gróttu en lið fyrir neðan eiga ennþá eftir að spila sína leiki
Vondur dagur
Vondur dagur fyrir Lindu sem spilaði frábæran leik fyrir ÍR en því miður þá var það ekki nóg fyrir ÍR og Selfyssingar of sterkar fyrir Lindu og liðsfélaga
Dómarinn - 9/10
Lítið hægt að setja út á dómgæsluna í dag og Atli á hrós skilið


