Guehi vill fara til Liverpool - Viðræður við Gordon ganga illa - Man Utd skoðar stjóra
Í BEINNI
Fótbolti.net bikarinn
Selfoss
LL 3
1
KFA
Valur
2
2
Víkingur R.
0-1 Valdimar Þór Ingimundarson '35
Gylfi Þór Sigurðsson '54 , víti 1-1
1-2 Valdimar Þór Ingimundarson '58
Gylfi Þór Sigurðsson '94 , víti 2-2
18.06.2024  -  20:15
N1-völlurinn Hlíðarenda
Besta-deild karla
Aðstæður: Fallegt og hlýtt sumarkvöld í Reylkjavík
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 1834
Maður leiksins: Gylfi Þór Sigurðsson
Byrjunarlið:
1. Frederik Schram (m)
2. Birkir Már Sævarsson
7. Aron Jóhannsson ('59)
8. Jónatan Ingi Jónsson ('78)
9. Patrick Pedersen
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
20. Orri Sigurður Ómarsson
23. Gylfi Þór Sigurðsson

Varamenn:
25. Stefán Þór Ágústsson (m)
3. Hörður Ingi Gunnarsson
14. Guðmundur Andri Tryggvason ('59)
16. Gísli Laxdal Unnarsson
17. Lúkas Logi Heimisson
21. Jakob Franz Pálsson
22. Adam Ægir Pálsson ('78)

Liðsstjórn:
Arnar Grétarsson (Þ)
Haukur Páll Sigurðsson
Kjartan Sturluson
Halldór Eyþórsson
Einar Óli Þorvarðarson
Örn Erlingsson
Viktor Unnar Illugason

Gul spjöld:
Orri Sigurður Ómarsson ('20)
Hólmar Örn Eyjólfsson ('38)
Kristinn Freyr Sigurðsson ('53)
Gylfi Þór Sigurðsson ('96)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
OG HLÍÐARENDI BAULAR OG BAULAR! Magnaður fótboltaleikur að baki!

Viðtöl og skýrsla koma inn á síðuna innan skamms.

Þangað til næst, takk fyrir mig!
97. mín
Víkingar fá einn séns í viðbót!
96. mín Gult spjald: Gylfi Þór Sigurðsson (Valur)
Hann er að dæma á olnbogaskot í Pablo sýndist mér. Ég bara næ varla að fylgjast með þessu. Litli leikurinn.
95. mín
Víkingar fá aukaspyrnu á miðjum vallarhelming Vals ER MEIRA DRAMA Í ÞESSU?!
95. mín
Þvílíkur hiti í þessum leik!
94. mín Mark úr víti!
Gylfi Þór Sigurðsson (Valur)
ERTU EKKI AÐ GRÍNAST?! Er þetta besta vítaskytta sögunnar?!

Fer bara aftur í sama horn og setur hann upp í skeytin!

Og það er ennþá slatti eftir!
93. mín Gult spjald: Arnar Gunnlaugsson (Víkingur R.)
Og hann fær réttilega spjald!
92. mín
Arnar Gunnlaugs hleypur að fjórða dómaranum og grátbiður hann um að taka þetta af!
92. mín Gult spjald: Ingvar Jónsson (Víkingur R.)
Sá brotlegi!
92. mín
Valsmenn að fá víti!!!!
90. mín
+5 mínútur í uppbótartíma
90. mín
1834 áhorfendur á Hlíðarenda í kvöld!
89. mín
Hvernig?! Adam Ægir tekur spyrnuna sem fer einhvernveginn í gegnum allan pakkann og Víkingar hreinsa frá. Þarna átti einhver Valsari að ná snertingu á boltann og koma honum í netið!

Sóknarpressan heldur áfram!
88. mín
Enn eitt hornið! Gylfi með hornið sem Víkingar hreinsa aftur ´horn!
88. mín
Annað Valshorn! Gylfi tekur hornið sem Víkingar ná að hreinsa frá í annað horn!
87. mín
Valsmenn að fá horn! Birkir Már með skot inni í teig Víkinga sem Karl Friðleifur hendir sér hetjulega fyrir.
87. mín Gult spjald: Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
Rétt spjald Sparkar boltanum í burtu eftir að Ívar var búinn að dæma hendi á hann
85. mín
Valsmenn reyna og reyna Arnar Grétarsson brjálaður á bekknum þegar enn eitt færi Valsmanna fer forgörðum.
82. mín
Gylfi! Gylfi og Patrick Pedersen leika skemmtilega á milli sín. Gylfi tekur svo mesta Gylfaskot í heimi sem Ingvar ver mjög vel. Boltinn fer þá í áttina að Guðmundi Andra sem reynir að teygja sig í boltann en nær honum ekki.

Hvernig kom ekkert mark úr þessu?
78. mín
Inn:Adam Ægir Pálsson (Valur) Út:Jónatan Ingi Jónsson (Valur)
78. mín
Inn:Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.) Út:Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
78. mín
Inn:Gísli Gottskálk Þórðarson (Víkingur R.) Út:Davíð Örn Atlason (Víkingur R.)
77. mín
Er ég eini sem er að klóra mér í hausnum yfir því hvernig staðan er ennþá Valur 1-2 Víkingur?
75. mín
DAUÐAFÆRI! Birkir Már með sturlað hlaup upp hægri kantinn. Hann kemur með boltann inn á teiginn sem fer á Patrick Pedersen en hann er aleinn á auðum sjó við markteiginn. Hann tekur skotið í fyrsta sem bara fer í Ingvar og Víkingar ná að hreinsa.

Staðan er bara ennþá Valur 1-2 Víkingur
74. mín
Valsmenn halda áfram að sækja Gylfi kemur með góðan bolta inn á teig sem Víkingar ná að verjast vel. En Valsmenn halda sóknarpressunni áfram.
73. mín
Valsmenn að fá aukaspyrnu ofarlega á vellinum út við hliðarlínu
72. mín
Fáum við drama? Valsmenn liggja að vítateig Víkinga. Þeir reyna og reyna og eru að koma sér í álitlegar stöður en án árangurs.

Fáum við drama og einhverja bilun hér í lok leiks?
70. mín
Gylfi Sig tekur spyrnuna. Hann tekur skotið á markið sem Nikolaj Hansen sjálfur skallar frá úr varnarveggnum.
69. mín
Valsmenn að fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað!
67. mín
Inn:Matthías Vilhjálmsson (Víkingur R.) Út:Aron Elís Þrándarson (Víkingur R.)
Ágætis skipting hjá Arnari
65. mín
Víkingar að suffera Valsmenn með yfirhöndina eins og staðan er núna.
62. mín
Inn:Helgi Guðjónsson (Víkingur R.) Út:Ari Sigurpálsson (Víkingur R.)
59. mín
Inn:Guðmundur Andri Tryggvason (Valur) Út:Aron Jóhannsson (Valur)
Valsteymið bregst við!
58. mín MARK!
Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
Stoðsending: Erlingur Agnarsson
ÞEIR SVARA BARA! Löng sókn sem skilar marki!

Víkingar tapa boltanum út við endalínuna en vinna hann aftur. Erlingur fær hann og kemur með bolta inn á teiginn. Þar er að sjálfsögðu Valdimar mættur og potar boltanum í netið. Hans annað mark í kvöld!

Það tryllist allt! Þvílíkur leikur!
55. mín
Smá recap! Sýndist það vera Oliver sem gaf vítið. Eftir það verður allt vitlaust og menn byrja að ýta hvorum öðrum og það myndast mikill æsingur. Ívar hendir í spjald á Kidda og Oliver. Síðan gerist eitthvað eftir það. Nikolaj Hansen og Kiddi virðast þá hafa lent eitthvað saman og það myndast aftur mikill æsingur sem endar með spjaldi á Nikolaj.
54. mín Mark úr víti!
Gylfi Þór Sigurðsson (Valur)
ALLT JAFNT Á HLÍÐARENDA! Þegar hann tekur víti þá skorar hann!

Öruggt upp í hornið. Ingvar fer í réttu áttina en er ekki nálægt því að verja þetta.

Þetta er orðinn alvöru leikur núna eftir þetta senaríó!
53. mín
Það er allt að sjóða upp úr!
53. mín Gult spjald: Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur)
53. mín Gult spjald: Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
53. mín Gult spjald: Oliver Ekroth (Víkingur R.)
52. mín
Valsmenn að fá víti!
52. mín
Víkingar bægja hættunni frá
51. mín
Ingvar ver - Valsmenn að fá horn! Jú Gylfi Sig tekur spyrnuna. Hann tekur skotið á markið sem Ingvar ver út í teiginn. Oliver Ekroth hreinsar svo í horn.
51. mín
Valsmenn að fá aukaspyrnu á hættulegum stað! Hver skyldi taka spyrnuna?
50. mín Gult spjald: Jón Guðni Fjóluson (Víkingur R.)
Fer í frekar harkalega tæklingu út á miðjum velli. Rétt hjá Ívari.
50. mín
Fer rólega af stað Seinni hálfleikurinn byrjar ekkert af krafti hér á Hlíðarenda.

Víkingar byrja ívið betur. Eru að koma boltanum í hættulegri stöður og heilt yfir að ógna meira en Valsmenn helling inni að mínu mati.
46. mín
Seinni hálfleikurinn er hafinn! Víkingar hefja þetta á ný fyrir okkur og sækja í átt að Breiðholtinu.

Góða skemmtun!
45. mín
Tek undir þetta, mjög töff dómaratreyja
45. mín
Markið, tæklingin hjá Hólmari og fleiri myndir frá Hafliða
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Tölfræðin eftir fyrri hálfleik (frá Stöð 2 Sport) Með boltann: 56% - 44%
Skot: 8-4
Skot á mark: 4-3
Hornspyrnur: 3-3
Sendingar: 265-198
Heppnaðar sendingar: 230-170
Gul spjöld: 2-0
Elvar Geir Magnússon
45. mín
Hálfleikur
Þá er Ívar Orri búinn að sjá nóg í bili og flautar hér til hálfleiks.

Mjög svo skemmtilegur leikur að baki og ég á von á einhverju svipuðu í seinni hálfleik nema ég panta fleiri mörk!

Tökum okkur korterspásu og mætum svo aftur að vörmu spori!
45. mín
Gylfi Sig með spyrnuna inn á teiginn sem Hólmar skallar niður á Orra. Orri skallar fyrir markið en Víkingar ná að hreinsa frá.
45. mín
Valsmenn að fá hornspyrnu rétt fyrir hálfleik!
45. mín
+2 mínútur í uppbótartíma!
45. mín
Víkingar í færi! Ari Sigurpáls með tvær marktilraunir. Frederik ver fyrra skotið en seinna skotið fer yfir.

Litli leikurinn!
43. mín
Valsmenn liggja á Víkingum þessa stundina Kemur jöfnunarmark fyrir hálfleik?
40. mín
Gylfi Sig með spyrnuna inn á teiginn sem Aron Elís skallar frá.
40. mín
Valsmenn að fá hornspyrnu! Jónatan Ingi fær boltann í gegn og tekur skotið á markið sem Ingvar ver glæsilega í horn.
38. mín Gult spjald: Hólmar Örn Eyjólfsson (Valur)
Groddaraleg tækling hjá fyrirliðanum Rétt fyrir utan vítateig Víkings. Fer í fyrirliða þeirra.

Fjórða spjald hans í sumar svo hann er á leið í leikbann.
38. mín
Hafliði Breiðfjörð er að sjálfsögðu á stórleiknum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

35. mín MARK!
Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
Stoðsending: Aron Elís Þrándarson
VALDIMAR AÐ KOMA VÍKINGUM YFIR! Confetti og læti!

Erlingur fær boltann uppi hægra meginn við hornfánan og kemur honum út á Aron Elís. Aron Elís fær allt of mikinn tíma að athafna sig og kemur með glæsilegan bolta inn á teiginn sem fer beint á Valdimar. Valdimar gerir glæsilega og skallar boltann í netið.

Þetta er eitthvað mesta Víkingsmark sem ég hef séð.
28. mín
Arol Elís með geggjaða sendingu inn á teiginn sem virðist vera á leiðinni beint á Valdimar á fjærstönginni áður en Orri Sigurður skallar boltann frá. Víkingar liggja á Val í þessum töluðu.
26. mín
Valsmenn betri seinustu mínútur Patrick fær geggjaða sendingu til sín inn á teiginn. Hann er með Gunnar í bakinu sem hendir sér hetjulega fyrir skot Patrick.

Valsmenn að ógna meira þessa stundina. Víkingar eru að suffera svolítið mikið.
23. mín
Patrick með skot Patrick fær boltann frá Gylfa út á miðjum velli og kemur honum í gegn á Tryggva. Tryggvi keyrir í átt að teignum með boltann og kemur honum aftur út á Patrick. Hann fær hann við d-bogann og lætur vaða en skotið fór beint á Ingvar í markinu sem varði þetta þægilega.
20. mín Gult spjald: Orri Sigurður Ómarsson (Valur)
Fer í frekar harkalega tæklingu út á miðjum velli Fyrstur til að fara í svörtu bókina hjá Ívari.
17. mín
Gylfi Sig tekur spyrnuna inn á teiginn sem Gunnar Vatnhamar skallar frá.
17. mín
Valsmenn að sækja sitt fyrsta horn!
15. mín
Skotárás! Boltinn skoppar fyrir utan teig Víkinga og Gylfi Sig ætlar að láta vaða á markið en hittir ekki boltann. Boltinn fer þá til Kidda Frey sem nær góðu skoti en beint á Ingvar sem ver þetta þægilega.
14. mín
Bjargað á línu! Pablo tekur spyrnuna inn á teiginn sem Gunnar Vatnhamar fær beint á ennið sitt. Hann tekur glæsilegan skalla á markið og Frederik Schram var alveg sigraður. En þá mætti hinn ólseigi Birkir Már á línuna og skallaði boltann frá.

Hvernig er þetta ennþá bara 0-0?
13. mín
Víkingar að sækja hornspyrnu!
12. mín
JEDÚDDAMÍA! Patrick Pedersen fær háan bolta á sig upp völlinn og skallar hann niður fyrir sig á Tryggva. Tryggvi tekur hann niður og keyrir aðeins með boltann inn á völlinn. Þegar hann er komin í kjör skotstöðu lætur hann vaða og boltinn fer í þverslána. Hann skopar svo í jörðina og Víkingar hreinsa.

Það sáu allir þennan inni!
9. mín
Einn á móti marki en flaggið fór á loft Gylfi Sig allt í öllu og sendir Tryggva Hrafn einan í gegn. Tryggvi leikur á Ingvar og kemst framhjá honum en þá var flaggið farið á loft. Bekkur Vals er ósammála þessu.
8. mín
Gylfi! Sigurður Egill fær boltann á ferðinni úti vinstra meginn og kemur með hann fyrir teig. Þar er Gylfi Sig mættur og tekur skotið í loftinu í fyrsta á markið sem Ingvar ver glæsilega.

Bæði lið að byrja leikinn af krafti. Bara eins og við viljum hafa það!
6. mín
Víkingar brjálaðir! Nikolaj Hansen sleppur einn í gegn á móti Frederik. Orri Sigurður mætir þá til leiks og tekur hann niður. Víkingar eru brjálaðir og vilja víti en Ívar Orri hristir hausinn. Á eftir að sjá þetta aftur en það hefði alveg verið hægt að dæma víti á þetta fannst mér við fyrstu sýn.
5. mín
Léleg útfærsla Pablo tekur hornið stutt á Valdimar sem gefur hann út á Erling og fær hann aftur. Hann kemur þá með bolta inn á teginn sem var alls ekki góður og Valsmenn hreinsa.
5. mín
Víkingar að sækja aðra hornspyrnu!
3. mín
Byrjunarliðin Valur (4-3-3)
Frederik
Birkir - Orri - Hólmar - Sigurður
Kiddi - Aron - Gylfi
Jónatan - Patrick - Tryggvi

Víkingur R. (4-4-2)
Ingvar
Davíð - Gunnar - Oliver - Jón
Erlingur - Aron - Pablo - Valdimar
Nikolaj - Ari
2. mín
Pablo tekur spyrnuna inn á teiginn sem Nikolaj Hansen nær til og tekur skotið í fyrsta í varnarmann. Víkingar vilja hendi en fá ekkert fyrir sinn snúð.
2. mín
Víkingar sækja hornspyrnu!
1. mín
Svakalegt lúkk á Oliver Ekroth! Nefbrotnaði í bikarsigrinum gegn Fylki á dögunum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

1. mín
Leikur hafinn
Þá er stórleikurinn hafinn og ég segi bara góða skemmtun!

Þetta ætti að vera algjör veisla!

Valsmenn byrja leikinn og sækja í átt að Breiðholtinu.
Fyrir leik
Heiðursgestir og baul! Heiðursgestir Vals í dag eru meistaraflokkar Vals í handbolta og meistaraflokkur karla í Val í körfubolta fyrir sinn magnaða árangur í vetur.

Vallarþulurinn segir alveg í byrjun "Eins og allir vita er Valur stærsta og sigursælasta lið landsins". Eftir það rísa allir Víkingar á fætur og baula og öskra "Víkingur Víkingur Víkingur!".

Hrikaleg stemning og læti hjá Víkingum allavegana!
Fyrir leik
Styttist Þá ganga liðin til vallar og gera sig klár í slaginn.
Fyrir leik
Fullt hús! Jæja þá er maður mættur á Hlíðarenda. Lagði nánast uppi í Breiðholti, það er svo stappað hérna. En stúkan er kjaftfull og það er búið að opna standandi stúkur fyrir aftan mörkin bæði.

Þetta verður veisla!
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi! Það sem vekur athygli í Valsliðinu er að Gylfi Sig, Aron Jó og Kiddi Freyr byrja allir saman á miðsvæðinu. Orri Sigurður og Hólmar Örn byrja saman í miðvarðarparinu. Arnar Grétars gerir heilt yfir fjórar breytingar á Valsliðinu frá bikarleiknum gegn Keflavík í 8-liða úrslitunum á dögunum. Aron Jóhannsson, Gylfi Sig, Orri Sigurður og Hólmar Örn, fyrirliði liðsins, koma inn í liðið en þeir Bjarni Mark, Jakob Franz, Elfar Freyr og Guðmundur Andri fara úr liðinu. Guðmundur Andri og Jakob Franz taka sér sæti á bekknum en Bjarni og Elfar eru utan hóps.

Arnar Gunnlaugs gerir fimm breytingar á Víkingsliðinu frá bikarsigrinum gegn Fylki á dögunum. Ingvar Jónsson, Pablo Punyed, Ari Sigurpáls, Valdimar Þór og Nikolaj Hansen, fyrirliði liðsins, koma inn í liðið fyrir þá Pálma Rafn, Helga Guðjóns, Danijel Dejan Djuric, Matthías Vilhjálmsson og Karl Friðleif. Danijel Dejan Djuric er ekki hóp þar sem hann er að taka út leikbann fyrir að kasta brúsa í stuðningsmann Blika. Ingvar kemur aftur inn í liðið eftir meiðsli. Virkilega sterkt fyrir Víkinga að endurheimta Ingvar fyrir stórleik kvöldsins.

Fyrir leik
Talar um svindl Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson ræddi við Arnar Grétarsson, þjálfara Vals, eftir blaðamannafund Vals á föstudag.

„Mér finnst stundum með fótboltann í dag, það er alltaf verið að tala um FIFA Fairplay; að spila og vera heiðarlegur hvernig þú vinnur. Mér finnst síðustu ár alltof mikið verið að reyna svindla, reynt að fá aukaspyrnur með leikaraskap. Þetta er orðinn stór partur í leiknum sem mér finnst leiðinlegur. Þetta þekktist ekki þegar ég var að spila; að vera með einhverja taktík að henda þér niður og öskra til þess að fá aukaspyrnur. Mér finnst þetta leiðinlegt við fótboltann, finnst þetta alltaf vera meira og meira, verið að spila á dómara og annað. Vonandi verður ekkert svoleiðis. Það er búið að vera mikið um vafaatriði, dóma, og dómarar verið í stórum hlutverkum. Ég vona að það verði ekki á þriðjudaginn, vona að þetta verði alvöru leikur og liðið sem er betra vinni, vona að það verði ekki vafaatriði sem muni skera úr um það. Það er bara leiðinlegt,"

Er Valur Arsenal Íslands?
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson ræddi við Arnar Gunnlaugsson, þjálfara Víkings, eftir blaðamannafund Vals á föstudag.

„Kannski er þetta stærsta leikurinn til þessa, það voru náttúrulega stórir leikir á móti Blikunum, tókum fjögur stig þar. Valsmenn er að koma inn í leikinn á virkilega góðu skriði, búnir að ná vopnum sínum aftur til baka, verið sterkir í deildinni og komnir í undanúrslit í bikar. Bæði lið eru að koma inn í þennan leik í toppformi. Ef við vinnum þá munar sjö stigum á liðunum sem er mjög sterkt, jafntefli væri engin hörmung fyrir liðin, en við munum gera allt sem við getum til að vinna þennan leik," sagði Arnar Gunnlaugsson.

Fyrir leik
Líkleg byrjunarlið Það sem er eitt helsta umræðuefnið hjá fólki fyrir kvöldið er hvernig munu Arnararnir stilla liðunum sínum upp fyrir stórleikinn. Fótbolti.net setur upp líkleg byrjunarlið liðanna í kvöld.

Líklegt byrjunarlið Vals:

Mynd: Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Líklegt byrjunarlið Víkings:

Mynd: Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fyrir leik
Einnig dregið í Sambandsdeildinni Dregið var í 1. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar í dag. Drátturinn fór fram í Nyon í Sviss og voru Valur, Stjarnan og Breiðablik í pottinum.

Valur mætir albanska liðinu KF Vllaznia og fer fyrri leikurinn fram á N1 vellinum.

Fyrir leik
Meistaradeildardráttur í dag Dregið var í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í dag og var Víkingur Reykjavík í pottinum. Drátturinn var haldinn í Nyon í Sviss.

Víkingur mætir írsku meisturunum í Shamrock Rovers og spila Íslandsmeistararnir fyrri leikinn á heimavelli.

Fyrir leik
Luigi spáir í spilin Logi Tómasson, leikmaður Strömsgodset í Noregi og íslenska landsliðsins, er spámaður umferðarinnar. Logi varð Íslands- og bikarmeistari með Víkingi í fyrra.

Valur 1 - 3 Víkingur (í kvöld 20:15)
Verð límdur við skjáinn. Mínir menn vinna þennan leik 3-1. Erfitt að segja til með markaskorarara, en Helgi er líklegur og Niko elskar að skora á móti Val. Síðan setur Gísli Gotti aka Osturinn eitt held ég. AP setur eitt sárabótarmark.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Víkingar án eins síns besta leikmanns Danijel Dejan Djuric var úrskurðaður í tveggja leikja bann í síðustu viku og verður ekki með Víkingum þegar liðið mætir Val í Bestu deildinni í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var spurður út í Danijel í viðtali á dögunum. Er mikið högg að vera ekki með sóknarmanninn gegn Val?

„Já, hann er náttúrulega búinn að vera einn besti leikmaður Íslandsmótsins, ef ekki sá besti í sumar. Auðvitað söknum við hans. Mér finnst hann búinn að svara öllum spurningum mjög vel eftir þetta bann, búinn að vera mjög hógvær og svaraði mjög vel í leiknum gegn Fylki - kom okkur í undanúrslitin."

„Hann verður klár þegar bannið verður búið. Ég held hann komi til baka, ekki bara sem sterkari leikmaður heldur líka sem sterkari persóna."

Fyrir leik
Tíðindi á leikdegi Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur ítalska félagið Perugia boðið tvívegis í Adam Ægi Pálsson leikmann Vals.

Adam Ægir er 26 ára kantmaður sem er á sínu öðru tímabili með Val. Hann kom að fjórtán mörkum í deildinni á síðasta tímabili í 20 byrjunarliðsleikjum. Síðasta sumar sýndi norska félagið Strömsgodset Adam mikinn áhuga en svo varð ekkert úr því.

Vægast sagt áhugaverð tíðindi á leikdegi og spurning hvort Adam Ægir verði í byrjunarliðinu í kvöld.

Fyrir leik
Þriðja liðið Ívar Orri Kristjánsson sér um að dæma leikinn. Aðstoðardómarar verða þeir Birkir Sigurðarson og Ragnar Þór Bender. Þórður Þorsteinn Þórðarson verður fjórði dómari og Gylfi Þór Orrason verður eftirlitsmaður.

Fyrir leik
Heitir Valsmenn Valsmenn byrjuðu tímabilið ekki eins og þeir vildu alveg í upphafi móts. Hins vegar í undanförnum leikjum hafa þeir náð að snúa genginu við og eru funheitir þessa dagana. Í seinustu fjórum leikjum Vals í öllum keppnum hafa þeir skorað 15 mörk og 10 mörk í seinustu tveimur delidarleikjum. Það er búið að kveikja á þeim og spurning hvort þeir ná að halda þessu rosalega gengi áfram gegn Víkingsvélinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Víkingar vinna og vinna Strákarnir hans Arnars Gunnlaugssonar fara gífurlega vel af stað í sumar. Komnir í 8-liða úrslitin eftir sigur á Fylki í bikarnum og á toppi deildarinnar. Einu leikir liðsins sem þeir hafa ekki unnið var jafntefli gegn Breiðablik í Kópavoginum og tap gegn HK einnig í Kópavoginum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Draumabikarúrslitaleikurinn lifir
Þetta eru án efa tvö bestu fótboltalið landsins í dag en það má alveg vel búast við stappfullum Hlíðarenda í kvöld. Einnig lifir draumabikarúrslitaleikurinn fyrir hlutlausu aðilana eftir að Víkingar unnu Fylki og Valur vann Keflavík á dögunum. Munu Víkingar ná að verja Mjólkurbikarinn ef þeir mæta Val í úrslitunum? Keppnina sem þeir eiga.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leikur ársins! Góða kvöldið kæru lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá stórleik Vals og Víkings R. í Bestu deild karla. Alvöru stórleikur milli tveggja bestu liða landsins. Þetta er gífurlega mikilvægur leikur í kvöld fyrir toppbaráttuna í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Oliver Ekroth
5. Jón Guðni Fjóluson
6. Gunnar Vatnhamar
7. Erlingur Agnarsson
10. Pablo Punyed
17. Ari Sigurpálsson ('62)
21. Aron Elís Þrándarson (f) ('67)
23. Nikolaj Hansen (f) ('78)
24. Davíð Örn Atlason ('78)
25. Valdimar Þór Ingimundarson

Varamenn:
80. Pálmi Rafn Arinbjörnsson (m)
8. Viktor Örlygur Andrason
9. Helgi Guðjónsson ('62)
11. Gísli Gottskálk Þórðarson ('78)
12. Halldór Smári Sigurðsson
18. Óskar Örn Hauksson
22. Karl Friðleifur Gunnarsson ('78)
27. Matthías Vilhjálmsson ('67)

Liðsstjórn:
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Sölvi Ottesen
Rúnar Pálmarsson
Aron Baldvin Þórðarson

Gul spjöld:
Jón Guðni Fjóluson ('50)
Nikolaj Hansen ('53)
Oliver Ekroth ('53)
Valdimar Þór Ingimundarson ('87)
Ingvar Jónsson ('92)
Arnar Gunnlaugsson ('93)

Rauð spjöld: