Leik lokið!
Þróttarar sigra á heimavelli!
93. mín
Stjarnan í leit að jöfnunarmarki. Eru í erfiðleikum að brjóta niður Þróttarana.
90. mín
Það verða að lágmarki fimm mínútur í uppbótartíma.
84. mín
Þróttur fær horn.
Ekkert verður úr því.
Ekkert verður úr því.
82. mín
Leikurinn kominn aftur í gang og Erin getur haldið leik áfram.
81. mín
Erin liggur eftir samstuð í teignum og þarfnast aðhlynningar. Vonum að þetta sé ekki alvarlegt.
80. mín
InnÞórdís Nanna Ágústsdóttir
ÚtMaría Eva Eyjólfsdóttir
79. mín
Þróttur fær horn.
Erin gerir vel og grípur boltann.
Erin gerir vel og grípur boltann.
75. mín
InnHrefna Jónsdóttir
ÚtSóley Edda Ingadóttir
75. mín
InnKarlotta Björk Andradóttir
ÚtGyða Kristín Gunnarsdóttir
74. mín
Langskot!
Stjarnan að sækja. Kemur skot langt fyrir utan teig. Skotið hátt upp í loftið og Mollee grípur boltann.
70. mín
Stjarnan fær horn.
Þróttarar hreinsa.
Þróttarar hreinsa.
67. mín
Þróttur fær horn.
Stjarnan hreinsar.
Stjarnan hreinsar.
64. mín
InnSigríður Theód. Guðmundsdóttir
ÚtÍsabella Anna Húbertsdóttir
64. mín
InnHrafnhildur Salka Pálmadóttir
ÚtAndrea Mist Pálsdóttir
64. mín
InnHenríetta Ágústsdóttir
ÚtFanney Lísa Jóhannesdóttir
62. mín
Rétt framhjá!
Aftur eru Þróttarar að láta vaða fyrir utan teig. Í þetta sinn er það Lea Björt sem á bylmingsfast skot sem sleikir stöngina og fer rétt framhjá.
60. mín
Skot fyrir utan teig!
Gott hlaup hjá Freyju Karín sem gefur boltann á Ísabellu. Hún á skot í átt að marki Stjörnunar. Skotið er fast en boltinn yfir markið.
55. mín
Færi!
Stjarnan að ógna. Góð spyrna inn á teig Þróttara. Þar skapast mikil hætta er boltinn skoppar á milli leikmanna. Eftir léttan darraðadans hreinsa Þróttarar.
51. mín
Hætta!
Þróttarar komnar í þrjár á móti þremur. Lea Björt með hlaup upp hægri og gefur fyrir. Spurning hvort hún hefði bara átt að láta vaða en Stjarnan hreinsar
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Þróttur byrjar með boltann.
45. mín
InnLea Björt Kristjánsdóttir
ÚtKristrún Rut Antonsdóttir
Ein skipting gerð í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Þá er komin hálfleikur í Laugardalnum. Þróttarar leiða þegar liðin ganga til búningsklefa eftir frekar rólegan fyrri hálfleik. Þróttarar meira með boltann og sókndjarfari en Gestirnir varist vel.
Tökum korterspásu og komum aftur að vörmu spori!
Tökum korterspásu og komum aftur að vörmu spori!
43. mín
Langskot
Skot langt fyrir utan teig. Caroline lætur vaða, hittir hann vel en Erin ver vel í markinu.
40. mín
Hornið kemur inn á teigin og þar er Freyja. Hún hittir boltann og hann fer í átt að marki. Stjörnukonur nærri því að hreinsa á línu en boltinn endar í netinu!
1-0!
Þróttur komið yfir!
Freyja Karín Þorvarðardóttir
MAAAAARK. Ísinn brotinn!Hornið kemur inn á teigin og þar er Freyja. Hún hittir boltann og hann fer í átt að marki. Stjörnukonur nærri því að hreinsa á línu en boltinn endar í netinu!
1-0!
40. mín
Þróttur fær horn.
38. mín
Leah komin í vænlega stöðu úti vinstra megin en er dæmd rangstæð.
35. mín
Nokkuð jafn leikur hingað til. Tiltölulega lítið um færi og ekki margt gerst. Þróttarar sókndjafnari en gestirnir, en eru í erfiðleikum að skapa sér almennileg færi.
28. mín
Stjarnan fær horn.
Mollee kýlir í burtu.
Mollee kýlir í burtu.
24. mín
Stjarnan að fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað. Kjörið tækifæri til að koma boltanum inn á teigin.
Góð spyrna inn á teigin. Boltinn berst á Esther sem fær hann eiginlega bara í sig og boltinn í átt að marki en Mollee grípur.
Góð spyrna inn á teigin. Boltinn berst á Esther sem fær hann eiginlega bara í sig og boltinn í átt að marki en Mollee grípur.
21. mín
Frábær sprettur!
Caroline Murray með rosalegan sprett upp vinstri kantinn. Sýndi svakalegan hraða og kom honum svo fyrir. Fámennt inni á teignum og Gestirnir hreinsa.
15. mín
Lítið að gerast um þessar mundir. Þróttur heldur vel í boltann.
11. mín
Sæunn komin inn fyrir vörn Þróttar en er rangstæð.
9. mín
Góð sókn!
Vel spilað hjá Þrótturum. Vinna boltann á sínum vallarhelming og spila sig frábærlega upp völlinn. Boltin berst inn á teiginn en enginn nær til hanns og Stjarnan hreinsar.
6. mín
Rétt yfir!
Leah Maryann með gott skot sem fer rétt yfir markið.
4. mín
Þróttur fær horn.
Gestirnir hreinsa.
Gestirnir hreinsa.
2. mín
Stjarnan fær horn.
Hætta skapast inn á teig Þróttara en flaggið fer á loft.
Hætta skapast inn á teig Þróttara en flaggið fer á loft.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir byrja með boltann.
Fyrir leik
Fyrirliði Þróttar heiðruð! Álfhildur Rósa fær hér blómvönd en þetta er 200. leikur hennar fyrir félagið.
Fyrir leik
Styttist í upphafsflautið!
Liðin ganga nú inn á völlinn. Þetta fer að byrja!
Fyrir leik
Fínustu aðstæður í Laugardalnum!
15°C, skýjað og hæglátur vindur hér í Laugardalnum.
Fyrir leik
Guðmunda Brynja spáir í spilin!
Fyrrum landsliðskonan Guðmunda Brynja Óladóttir, nú leikmaður HK í Lengjudeildinni, er spákona umferðarinnar! Hún spáir Þrótti sigri hér í kvöld.
Þróttur 2 - 1 Stjarnan
Þróttarar eru komnar á skrið og byrjaðar að skora. Á meðan það er smá lægð hjá Stjörnunni. Kristrún heldur áfram að skora fyrir Þrótt. Þetta verður erfiður iðnaðarsigur fyrir þrótt 2-1. Anna María skorar úr horni fyrir Stjörnuna.

Þróttur 2 - 1 Stjarnan
Þróttarar eru komnar á skrið og byrjaðar að skora. Á meðan það er smá lægð hjá Stjörnunni. Kristrún heldur áfram að skora fyrir Þrótt. Þetta verður erfiður iðnaðarsigur fyrir þrótt 2-1. Anna María skorar úr horni fyrir Stjörnuna.

Fyrir leik
Dómarateymið
Atli Haukur Arnarsson dæmir leikinn hér í kvöld og eru það þeir Bergur Daði Ágústsson og Tryggvi Elías Hermannsson sem verða honum til aðstoðar. Varadómari er Jakub Marcin Róg og Eftirlitsmaður er Bergur Þór Steingrímsson.


Fyrir leik
Þróttur R.
Þróttur hefur verið í brasi það sem af er tímabili. Þróttur er í síðasta sæti deildarinnar fyrir leikinn í kvöld og er þar með 4 stig. Þróttarar hafa hins vegar verið að gera góða hluti í Mjólkurbikarnum og eru komnar í undanúrslit þar sem þær munu mæta Val á Hlíðarenda í lok júní. Þróttur mætti geysisterku liði Breiðabliks í síðustu umferð þar sem Blikar unnu 3-0. Þróttarar hafa hins vegar, þrátt fyrir slaka stigasöfnun, verið að sýna góða takta í sumar og geta hæglega farið að næla sér í stig. Verður fróðlegt að sjá hvernig leikurinn spilast hér í kvöld!


Fyrir leik
Stjarnan
Stjörnunni var spáð 5. sætinu af spekingum fótbolta.net fyrir tímabil. Þær sitja í 6. sæti deildarinnar fyrir leikinn í kvöld, þremur stigum frá Víkingi. Stjarnan mætti góðu liði Þór/KA í síðustu umferð. Þar enduðu leikar 4-1 fyrir Þór/KA. Stjarnan getur með sigri jafnað Víking að stigum. Stjarnan hefur tapað tveimur seinustu leikjum og vilja þær örugglega bæta úr því hér í kvöld. Því má búast við hörkuleik á eftir!


Fyrir leik
Heil og sæl!
Góðan dag kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu á viðuregin Þróttar og Stjörnunar í Bestu deild kvenna! Leikurinn fer fram á Avis-vellinum í Laugardalnum og hefst kl. 18:00






Viðtöl og skýrsla væntanleg.