SKÝRSLAN: Besta sárabótamark allra tíma?
Hvað réði úrslitum?
Valsliðið er bara það gott að þrátt fyrir að FH-liðið hafi verið fínt í dag munu leikmenn Vals alltaf finna sér leiðir til að skapa færi og þ.a.l. skora mörk. Gæðin held ég réðu þessum úrslitum á endanum. En mér fannst samt aðeins hægast á sóknarleik FH eftir að Hiligunnur fór af velli.
Bestu leikmenn
1. Amanda Jacobsen Andradóttir
Skoraði tvö og var alltaf líkleg að skora þegar hún ógnaði að vítateig FH. Mjög auðvelt val.
2. Kate Cousins
Hún er án efa einn besti miðjumaður deildarinnar. Ef ekki bara besti svei mér þá. Hún var gjörsamlega geggjuð í kvöld og átti glæsilega stoðsendingu í marki númer eitt hjá Val þegar hún vinnur boltann og kemur honum í gegn. Stórkostleg í dag.
Atvikið
Klárlega seinasta spyrna leiksins sem var eina mark FH í leiknum. Ída fær hann fyrir utan teig Vals, lætur vaða og beint í samskeytin. Maður vaknaði alveg við þetta því leikurinn var búinn að vera mjög rólegur fyrir það mark. Líklega bara besta sárabótamark sem ég hef séð í fótbolta!
Hvað þýða úrslitin?
Valskonur tróna á toppnum á tveimur mörkum eftir tap Blika í gær. FH-liðið er áfram í 4. sætinu en Víkingur hefur minnkað bilið niður í eitt stig.
Vondur dagur
Þetta er mjög erfitt því Valur vann en ég var samt mjög hrifinn af FH-liðinu í dag. Mér fannst allavegana hægja á sóknarleik FH eftir að Hildigunnur fór af velli. Það var nánast ekkert um neinar opnanir eða einhver hlaup eftir skiptinguna þannig ætli þetta skráist ekki bara á þann sem tók ákvörðunina að taka hana af velli.
Dómarinn - 7
Jóhann Ingi og teymið stóð sig bara ágætlega í dag fannst mér. Leyfðu leiknum að flæða ágætlega og voru með mjög góða stjórn á honum.




