Fotbolti.net
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þór
Þór
Lengjudeild karla
VÍS völlurinn
Vinnuaðstaðan flott en völlurinn lélegur og veðrið í takt við það.
1 - 2
Leiknir R.
Leiknir R.
0 - 158' Omar SoweBirkir Heimisson (víti) 79'1 - 11 - 287' Shkelzen Veseli
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Mörg vafaatriði en niðurstaðan verðskuldaður sigur Leiknis

Hvað réði úrslitum?

Þegar sóknir Þórsara enduðu og boltinn fór ekki úr leik gat Leiknir gengið að hlaðborði, pressa Þórsara var slök og fullt af plássi til að sækja í. Það pláss nýttu gestirnir sér frábærlega, skoruðu tvö mörk og hefðu getað gert fleiri. Löngunin og viljinn var mun sýnilegri hjá gestunum.

Bestu leikmenn

1. Omar Sowe

Var á tímum farþegi þegar Leiknir var að verjast en þegar hann fékk boltann var hann stórhættulegur og hló á stundum að varnarmönnum Þórsara. Geggjaður leikmaður þegar hann nennir því.

2. Jón Hrafn Barkarson

Frábær undirbúningur í fyrra marki Leiknis. Jón Hrafn virðist vera alveg með þá hreinu hvað hann getur, var ekki að reyna of mikið og fann aðra þegar það átti við. Þessi frammistaða Leiknis var mjög góð. Mér fannst allir þrír miðverðir liðsins góðir og Viktor fínn í markinu.

Atvikið

Sigurmarkið og seinna rangstöðumarkið. Fer betur yfir rangstöðumarkið í boxinu hér til hliðar. Omar Sowe gerði mjög vel eftir sendingu Arons Einarssonar og Shkelzen gerði allt rétt og kom boltanum í netið.

Hvað þýða úrslitin?

Þór, Leiknir og Þróttur eru nú öll með sex stig á botni deildarinnar. Þór á leik til góða, leikur sem fer fram eftir rúmar tvær vikur.

Vondur dagur

Margir í Þórsliðinu sem áttu dapran dag en það öskrar á mann að fremstu menn liðsins verði að koma boltanum í netið. Rafael Victor hefur ekki skorað í einn og hálfan mánuð, Ingimar á enn eftir að skora sitt fyrsta mark í Lengjudeildinni og Alexander hefur ekki skorað í deildinni í sumar. Þeir þurfa að reima á sig markaskóna! Af þeim sem byrjuðu leikinn fannst mér Birkir Heimisson sá eini sem náði að sýna að hann virkilega vildi vinna leikinn.

Dómarinn - 9

Ég er á því að Gunnar Freyr og aðstoðarmenn hans hafi neglt öll stóru atriðin. Mér finnst fyrra rangstöðumark Þórsara vera mjög tæpt en get ekki sagt að ég sjái það betur en aðstoðardómarinn. Rafael Victor er svo fyrir innan þegar hann hoppar upp í boltann sem VIktor endar á því að missa í netið. Hárrétt að dæma víti fyrir Þór og miðað við orð Shkelzen var hárrétt að dæma ekki víti fyrir Leikni. Auðvitað voru einhver smá brot hér og þar um völlinn þar sem hefði mátt flauta, en ekkert sem menn ná ekki að sofa yfir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.