Fotbolti.net
Besta deildin
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Besta-deild karla
Samsungvöllurinn
Sú gula lætur sjá sig en lúmskur hliðarvindur
Stjarnan
Stjarnan
0 - 4
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 110' Nikolaj Andreas Hansen0 - 222' Karl Friðleifur Gunnarsson0 - 358' Helgi Guðjónsson0 - 478' Helgi Guðjónsson
Dómari: Erlendur Eiríksson
Leik lokið!
Sýning Víkinga er lokið
Stjarnan sá aldrei til sólar í þessum leik og eru heppnir að fá aðeins 4 mörk á sig, frábær frammistaða Víkinga engu að síður.
Viðtöl og skýrsla innan skams.
93. mín
Árni Snær fer harkalega í Ara Sigurpáls rétt fyrir utan teig en ekkert dæmir Erlendur. Ari nær snertingunni fyrst og væri kominn í upplagt marktækifæri. Erlendur hugsanlega farinn að vorkenna heimamönnum.
89. mín
Lítið að frétta eftir mark Víkinga.
Stjarnan
83. mín
InnBaldur Logi Guðlaugsson
ÚtRóbert Frosti Þorkelsson
Víkingur R.
82. mín
Gult spjald

Danijel Dejan Djuric

81. mín
Sveinn Gísli fellur við í teignum og Víkingar vilja vítaspyrnu en ekkert dæmir Erlingur.
Víkingur R.
78. mín
Þeir gefa bara í

Helgi Guðjónsson (stoðsending: Danijel Dejan Djuric)

Víkingar sækja hratt á heimamenn, Djuric þræðir boltann í gegn á Helga sem klárar frábærlega.
Víkingur R.
75. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtErlingur Agnarsson
Víkingur R.
75. mín
InnAri Sigurpálsson
ÚtPablo Oshan Punyed Dubon
Stjarnan
74. mín
InnÖrvar Logi Örvarsson
ÚtJóhann Árni Gunnarsson
Stjarnan
74. mín
InnKjartan Már Kjartansson
ÚtÖrvar Eggertsson
68. mín
Sveinn Gísli með laglegan sprett og gefur fyrir á Erling sem nær ekki að komast í boltann.
Stjarnan
63. mín
Gult spjald

Heiðar Ægisson

Heiðar fær strax gult spjald.
Stjarnan
63. mín
InnHaukur Örn Brink
ÚtHelgi Fróði Ingason
Víkingur R.
62. mín
InnSveinn Gísli Þorkelsson
ÚtKarl Friðleifur Gunnarsson
Stjarnan
62. mín
InnHeiðar Ægisson
ÚtAndri Adolphsson
Víkingur R.
58. mín
Þurfti ekki nema mínútu!

Helgi Guðjónsson (stoðsending: Danijel Dejan Djuric)

Danijel Djuric með sturlaðan bolta á fjær á Helga sem tekur við honum og klárar frábærlega utanfótar í fjærhornið.
Sæmilega innkoman!
Víkingur R.
57. mín
InnGísli Gottskálk Þórðarson
ÚtMatthías Vilhjálmsson
Víkingur R.
57. mín
InnHelgi Guðjónsson
ÚtNikolaj Andreas Hansen
53. mín
Valdimar Þór liggur niðri og virðist vera þjáður. Sýndist þetta vera eitthvað í bakinu. Valdimar getur haldið leik áfram!
50. mín
Aftur skýtur Djuric í stöngina!
Danijel með vinstri fótar skot úr teignum sem hafnar í stönginni, Danijel óheppinn að vera ekki kominn með mark í leiknum.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Gestirnir byrja með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Erlendur Eiríksson flautar til hálfleiks, Víkingar leiða sanngjarnt.
Stjarnan sýnt lítið sem ekkert, mörk Víkinga hefðu hæglega getað orðið fleiri en tvö.

Smá hálfleiks tölfræði:

Stjarnan: 4 -- Skot -- Víkingur: 14
Stjarnan: 2 -- Skot á mark -- Víkingur: 7
Stjarnan: 160 (82%) -- Sendingar -- Víkingur: 212 (86%)
45. mín
+3
Djuric með fasta fyrirgjöf á Niko Hansen sem nær ekki að stýra boltanum á markið.
43. mín
Víkingar fá hornspyrnu, Karl Friðleifur með góðan bolta á Niko Hansen sem nær skallanum á markið en Árni ver vel.
42. mín
Gunnar Vatnhamar með draumabolta í teiginn á Danijel Djuric sem skallar boltann framhjá.
36. mín
Valdimar Þór í góðri stöðu en tekur skot hátt yfir mark heimamanna.
35. mín
Stöngin!
Danijel með lúmskt skot rétt fyrir utan teig í nærhornið sem hafnar í stönginni.
32. mín
Helgi Fróði með skot úr teignum sem Ingvar ver örugglega.
Víkingur R.
29. mín
Gult spjald

Karl Friðleifur Gunnarsson

Fór í harkalega tæklingu á Óla Val og fær réttilega gult.
27. mín
Danijel Dejan liggur niðri og þarfnast aðhlynningar.
26. mín
Valdimar Þór með skot fyrir utan teig sem Árni ver vel.
Víkingur R.
22. mín
Kalli kaldi!

Karl Friðleifur Gunnarsson (stoðsending: Matthías Vilhjálmsson)

Matti Villa kemur með boltann út í teiginn frá endalínu og þar lúrir Karl Friðleifur sem stýrir boltanum í markið.
Karl fagnar svo með ,,Cold Palmer" fagninu.
21. mín
Matti Villa í frábæru færi en Árni Snær ver vel.
20. mín
Stjarnan fær sína fjórðu hornspyrnu en ekkert kemur úr henni.
18. mín
Daníel Laxdal vinnur boltann hátt uppi á vellinum og fer í skotið sem fer framhjá marki gestanna.
15. mín
Niko Hansen með skot á mark eftir fyrirgjöf Erlings en Árni ver örugglega.
Stjarnan
12. mín
Gult spjald

Jökull I Elísabetarson

Jökull ósáttur með að hafa ekki fengið dæmt brot á Djuric í aðdraganda marksins.
Víkingur R.
10. mín
NIKOO HANSEN!

Nikolaj Andreas Hansen (stoðsending: Danijel Dejan Djuric)

Danijel Djuric á frábæran sprett upp vinstri kantinn og gefur boltann fyrir á Nikolaj sem nær að stýra boltanum í netið!
Spurning hvort að Djuric hafi brotið af sér í aðdraganda marksins hann hangir aðeins í Óla Val.
6. mín
Frábært færi!
Danijel Djuric rennir boltanum á Erling Agnars sem er í góðri stöðu í vítateig Stjörnunnar en setur boltann rétt framhjá marki heimamanna.
Þarna á Erlingur að gera betur.
4. mín
Silfurskeiðin heldur stemningunni uppi eins og þeim einum er lagið.
3. mín
Stjarnan fær fyrsta horn leiksins, góð útfærsla og boltinn berst á Andra Adolphs við vítateig sem á skot í varnarmann.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Heimamenn byrja með boltann.
Fyrir leik
Liðin ganga til vallar, nú styttist í að þessi spennandi viðureign fari af stað!
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár
Stjarnan tapaði í Kórnum gegn HK á laugardaginn 4-3 og frá þeim leik gerir Jökull Elísabetarson eina breytingu á liði sínu. Jóhann Árni Gunnarsson kemur innn fyrir Baldur Loga Guðlaugsson..

Gestirnir í Víkingi hafa verið að fara í gegnum erfitt tímabil, hafa gert þjú jafntefli í síðust fjórum leikjum, nú síðast gegn KR 1 -1 um síðustu helgi. Arnar Gunnlaugsson þjálfari liðsins gerir þrjár breytingar á liðinu frá þeim leik. Jón Guðni Fjóluson, Danijel Dejan Djuric og Nikolaj Hansen koma allir inn en Halldór Smári Sigurðsson, Ari Sigurpálsson og Helgi Guðjónsson setjast á bekkinn.
Fyrir leik
Skorar Nikolaj Hansen í kvöld?
Nikolaj hefur mætt Stjörnunni 19 sinnum á ferlinum, skorað 11 mörk og lagt upp þrjú. Tvö af mörkunum skoraði hann sem leikmaður Vals. Stjarnan er það lið sem Nikolaj hefur oftast skorað gegn.

Sigurhlutfall Nikolaj gegn Stjörnunni er þó ekkert sérstakt. Sigrarnir eru einungis sjö í 19 leikjum, fjögur jafntefli og átta töp.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Djuric mætir aftur
Danijel Dejan Djuric mætir aftur inná völlinn í kvöld eftir að hafa setið tveggja leikja bann sem hann hlaut eftir viðureign Víkings og Breiðabliks.

Danijel kastaði vatnsbrúsa frá hlaupabrautinni upp í stúku þegar liðin voru að ganga af velli eftir leikinn og fór brúsinn í stuðningsmann Breiðabliks sem hafði ögrað Danijel með orðum sínum.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Gengi liðanna
Stjarnan hefur átt erfitt uppdráttar í síðustu leikjum og þá sérstaklega varnarlega. Í síðustu fjórum leikjum hafa þeir bláklæddu einungis unnið einn leik og fengið 15 mörk á sig. Föst leikatriði hefur verið mikill veikleiki Garðbæinga, í síðasta leik gegn HK fékk Stjarnan þrjú slík mörk á sig.

Víkingar hafa nú gert tvö jafntefli í röð, gegn Val og KR. Víkingur er á toppi deildarinnar með 27 stig.

Þessi lið mættust í upphafsleik Bestu-deildarinnar í ár þar sem Víkingar fóru með sigur af hólmi - Lestu um leikinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Mætast í undanúrslitum Mjólkurbikarsins
Þessi lið mætast í undanúrslitum Mjólkurbikarsins næstkomandi miðvikudag en þá á Heimavelli hamingjunnar í Víkinni.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Fyrir leik
Sól og sumar á Samsungvellinum!
Góðan og gleðilegan fimmtudaginn lesendur góðir og verið velkomin í beina textalýsingu beint frá Samsungvellinum þar sem viðureign Stjörnunnar og Víkings í Bestu-deild karla fer fram í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.