SKÝRSLAN: Fram fór út að leika í rigningu og roki
Hvað réði úrslitum?
Lélegur og sloppí varnarleikur Vals í fyrri hálfleik og gæði og krafur Kennie Chopart, Más Ægissonar, Fred og að ógleymdum Óla Íshólm í seinni hálfleik. Varnarleikur Vals í fyrri hálfleik var ekki til útflutnings og t.d. labbaði Kennie Chopart í tvígang í gegnum varnarlínu Vals sem skilaði mörkum, víti í fyrra skiptið og beinu marki í seinna skiptið.
Bestu leikmenn
1. Ólafur Íshólm Ólafsson
Hélt sínum mönnum algjörlega á floti í seinni hálfleik með vörslu eftir vörslu eftir vörslu.
2. Kennie Chopart
Er eins og Duracell kanína. Hleypur endalaust um allan völl og drífur sína menn áfram. Einnig fá Már Ægis og Fred sérstök honarble mentions því þeir voru geggjaðir.
Atvikið
Þriðja mark Fram. Eða eins og ég sagði í textalýsingunni:
Kennie gjörsamlega veður upp völlinn eftir að hafa fengið boltann frá Alex Frey á miðjum vallarhelming Vals, fékk að vaða óáreittur upp að vítateigslínu og tók fast skot í fjærhornið.
Skammarlegur varnarleikur Vals en virkilega vel gert hjá Kennie
Hvað þýða úrslitin?
Fram eru í 7. sæti deildarinnar með leik til góða á Stjörnuna og einu stigi minna en þeir. Geta því með áframhaldandi góðum úrslitum komið sér í topp 6 en það var yfirlýst markmið þeirra fyrir mót að vera þar að loknum 22. umferðum.
Valur á leik til góða á Víkinga, sitja í þriðja sæti 8. stigum á eftir toppliði Víkinga og eru að fara til Skotlands að spila við St. Mirren í seinni leik forkeppni Sambandsdeildarinnar. Það er vonandi að þeir nái að hrista vonbrigði dagsins fljótt af sér og mæti ferskir til Skotlands.
Vondur dagur
Ég ætla ekki að taka neinn út úr þessu Valsliði. Mér fannst þetta arfaslök liðs frammistaða.
Dómarinn - 8.5
Hef ekkert út á frammistöðu Elías Inga að setja. Lét leikinn flæða vel, dæmdi þegar á þurfti að halda og já, bara virkilega vel gert.




