Fotbolti.net
Besta deildin
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Besta-deild karla
Víkingsvöllur
Rok og rigning
Víkingur R.
Víkingur R.
5 - 1
HK
HK
Nikolaj Andreas Hansen 14'1 - 01 - 119' George Johannes NunnNikolaj Andreas Hansen 39'2 - 1Ari Sigurpálsson 44'3 - 1Helgi Guðjónsson 77'4 - 1Gunnar Vatnhamar 87'5 - 1
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Styttist í sumarið

Hvað réði úrslitum?

HK-ingar byrjðu leikinn af fítonskrafti en seinustu 5 mínuturnar í fyrri hálfleik fóru með leikinn fyrir HK. HK-ingar fóru svo varla yfir miðju í seinni hálfleik. Verðskuldaður sigur.

Bestu leikmenn

1. Ari Sigurpálsson

Steig upp þegar Víkingar þurftu hann og var mjög skeinuhættur fram á við. Varnarmenn HK réðu mjög illa við hann og stanslaus hætta sem kom frá honum í kvöld eins og svo oft í kvöld. Mjög fínt sumar hjá Ara. Skorar og leggur upp í kvöld.

2. Gísli Gottskálk

Mjög góður í dag í alla staði. Steig upp þegar Víkingar þurftu á honum að halda og heilt yfir bara mjög góður.

Atvikið

Helgi Guðjóns var búinn að vera inn á í rúmar tvær mínútur þegar hann var búinn að skora. Arnar Gunnlaugs og Sölvi Geir fóru bara að hlægja. Enda er þetta bara hálf hlægilegt. Hann skorar alltaf þegar hann kemur inn á af bekknum.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar styrkja stöðu sína á toppnum en HK-ingar eru í 10. sæti, tveimur stigum frá fallsæti og með jafn mörg stig og KR en næsti leikur HK er gegn KR.

Vondur dagur

Það var mikið að gera í dag hjá hafsentum HK. Einföld mistök einkenndu frammistöðu varnarmanna HK í dag. En þeir voru að keppa gegn besta liði landsins í Víking Reykjavík. Svo það var kannski búist við þessu frá Víkingum. Annars má líka gefa veðurguðunum shout. Þetta er komið gott. Það styttist vonandi í sumarið hjá okkur.

Dómarinn - 8

Mér fannst Helgi dæma þennan leik bara mjög vel. Hann spjaldaði samt kannski fullmikið en annars solid. Helgi hefur verið besti dómari sumarsins til þessa af því sem ég hef séð.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.