Fotbolti.net
Sölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Lengjudeild karla
Domusnovavöllurinn
Leiknir R.
Leiknir R.
3 - 1
Grótta
Grótta
Omar Sowe 47'1 - 0Omar Sowe 64'2 - 02 - 169' Rasmus Christiansen Omar Sowe 78'3 - 1
Dómari: Sveinn Arnarsson
Leik lokið!
Risasigur Leiknis!
Viðtöl og skýrsla birtast á síðunni innan skamms.

Þangað til næst, takk fyrir mig!
90. mín
Viktor þarf aðhlynningu
Tómas Orri ætlar að pota boltanum í netið en Viktor var mættur og náði boltanum. Tómas fer þá óvart í hausinn á Viktori sem þarf aðhlynningu og vonandi getur hann haldið hér leik áfram.
Leiknir R.
90. mín
Gult spjald

Hjalti Sigurðsson

Leiknir R.
89. mín
InnStefan Bilic
ÚtOmar Sowe
Leiknir R.
86. mín
InnMarko Zivkovic
ÚtÞorsteinn Emil Jónsson
Grótta
85. mín
Gult spjald

Arnar Þór Helgason

85. mín
DAUÐAFÆRI!
Omar Sowe kemst einn í gegn á móti Rafal en tekur skotið hátt hátt yfir markið!
84. mín
Leiknisliðið hefur spilað afar vel í dag og eiga þennan sigur verðskuldað miðað við frammistöðuna í dag.
83. mín
Grótta í færi
Gabríel Hrannar kemur með glæsilega sendingu inn á teiginn sem Pétur Thódór skallar rétt framhjá.
Grótta
79. mín
InnHilmar Andrew McShane
ÚtTareq Shihab
Leiknir R.
79. mín
InnKári Steinn Hlífarsson
ÚtRóbert Hauksson
Leiknir R.
78. mín
ÞRENNA!

Omar Sowe

Omar Sowe með ekkert smá stórt mark fyrir Leikni!

Skot fyrir utan teig Gróttu sem fer beint á Rafal í markinu og inn. Skelfileg mistök hjá Rafal!

Risamark hins vegar fyrir Leiknismenn!
76. mín
Gróttumenn vaknaðir!
Tómas Orri kemur með bolta inn á teiginn sem fer á Pétur Theódór en skotið hans fer beint á Viktor í markinu.
Grótta
74. mín
Fyrir tuð

Tómas Orri Róbertsson

Grótta
74. mín
Gult spjald

Tareq Shihab

Grótta
72. mín
InnArnar Daníel Aðalsteinsson
ÚtAron Bjarki Jósepsson
Chris breytir
Grótta
69. mín
Við erum komin með leik!

Rasmus Christiansen (stoðsending: Kristófer Orri Pétursson )

Kristófer gerir ótrúlega vel að vinna boltann við hornfánan. Hann kemur svo með fyrirgjöf sem fer beint á ennið á Rasmus og þaðan í netið. Boltinn var mjög lengi á leiðinni í netið og sveif eiginlega bara yfir Viktor í markinu.

Þetta er orðinn leikur en litli seinni hálfleikurinn!
Leiknir R.
68. mín
Gult spjald

Róbert Hauksson

Fyrsti leikmaður Leiknis til að fara í bókina.
66. mín
Aron Einars tekur spyrnuna inn á teiginn sem Rafal kýlir frá.

Leiknismenn halda áfram að sækja.
65. mín
Leiknir að fá horn!
Leiknir R.
64. mín
Breiðhyltingar tvöfalda forystuna!

Omar Sowe (stoðsending: Róbert Quental Árnason)

Frábær sókn hjá Leikni sem endar með marki!

Róbert Quental kemur með góða sendingu í gegn á Omar sem er þá kominn einn í gegn. Hann klárar svo frábærlega framhjá Rafal í markinu.

Þetta er bara verðskuldað!
62. mín
Gróttumenn bægja hættunni frá.
62. mín
Leiknir að fá horn!
62. mín
Tareq kemur með bolta inn á teiginn eftir aukaspyrnu á miðjum vellinum. Aron Bjarki nær til boltans og skallar rétt framhjá. Líklega hættulegasta færi Gróttu til þessa.
Grótta
59. mín
Gult spjald

Aron Bjarki Jósepsson

Fyrsta gula spjald leiksins.
58. mín
Leiknir í afbragðsfæri!
Viktor, markmaður Leiknis, kemur með langan bolta upp völlinn og skyndilega er Omar Sowe kominn einn í gegn. Hann fer framhjá Rafal en skotið fór framhjá.

Enn eitt dauðafæri Omars í leiknum.
54. mín
Gróttumenn slakir
Ég bara verð að segja það að Gróttumenn hafa verið mjög slakir til að byrja með. Alls ekki góðir í fyrri hálfleik og eru að byrja seinni hálfleikinn eins.
48. mín
Aron Einars tekur hornið stutt og fær hann aftur. Eftir það kemur hann með afleidda sendingu sem Róbert Quental nær að halda inn á vellinum.

Hann kemur svo með fyrirgjöf sem fer beint í hendurnar á Rafal.
47. mín
Leiknir að fá horn!
Leiknir R.
47. mín
Leiknismenn taka forystuna!!!

Omar Sowe (stoðsending: Arnór Ingi Kristinsson)

Já þeir voru ekki lengi að þessu!

Omar Sowe fær boltann inni í teignum frá Arnóri og tekur skotið sem fer í varnarmann og í netið.

Frábær byrjun hjá Breiðhyltingum!
47. mín
Chris Brazell gerir þrefalda breytingu á liðinu sínu í hálfleik
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

46. mín
Sá seinni er hafinn!
Grótta
46. mín
InnKristófer Melsted
ÚtÍsak Daði Ívarsson
Grótta
46. mín
InnPatrik Orri Pétursson
ÚtGrímur Ingi Jakobsson
Grótta
46. mín
InnArnar Daníel Aðalsteinsson
ÚtAxel Sigurðarson
45. mín
Hálfleikur
Sveinn, góður dómari leiksins, flautar til hálfleiks.

Leiknir verið mikið betri til þessa að mínu mati.

Tökum okkur korter og mætum svo til baka að vörmu spori!
44. mín
Gróttan liggur niðri
Grótta hefur legið í lá blokk allan fyrri hálfleikinn. Maður er óvanur að sjá Gróttuliðið spila svona en þeir hafa ekki byrjað seinni hálfleikinn vel.
42. mín
Róbert Quental tekur spyrnuna en Gabríel Hrannar skallar frá.
42. mín
Leiknir að fá horn!
Aftur kemst Omar einn í gegn en skotið fer í varnarmann og aftur fyrir.
40. mín
Róbert Quental tekur spyrnuna á Omar sem tekur skotið í fyrsta hátt yfir.
40. mín
Leiknir að fá horn!
Skot Omars fer í vegginn og í horn.
39. mín
Aukaspyrna á stórhættulegum stað fyrir Leikni!
Það er Omar Sowe sem ætlar að taka spyrnuna sýnist mér.
36. mín
Róbert Quental spyrnuna sem fer yfir allan pakkann og í markspyrnu.
36. mín
Leiknir að fá horn!
33. mín
Leiknismenn sækja og sækja
Leiknir mikið betri fyrsta hálftímann. Mikið sjálfstraustsleysi fyrir framan markið greinilega.
30. mín
Omar óheppinn
Omar Sowe kemst einn í gegn en fyrsta móttakan sveik hann.

Þetta er í annað sinn í leiknum sem það gerist.
25. mín
Róbert Q að tekur hornið inn á teiginn sem Arnar Þór skallar frá.

Aron Einars fær þá boltann fyrir utan teiginn sem fer útaf.
24. mín
Leiknir að fá horn!
24. mín
Borðtennis
Ekkert dauðafæri komið í þennan leik til þessa þannig séð. Bæði lið þó eru að reyna að skemmta okkur með góðum fótbolta og hlaupum inn fyrir.

Smá borðtennis í þessu.
18. mín
Svona sé ég þetta
Leiknir (4-2-3-1)
Viktor
Arnór - Andi - Daði (F) - Hjalti
Aron - Sindri
Róbert Q - Þorsteinn - Robbi H
Omar

Grótta (4-1-4-1)
Rafal
Tareq - Arnar - Rasmus - Gabríel
Aron
Axel - Grímur - Kristófer - Ísak
Pétur
15. mín
Markspyrna
Fannst Leiknir átt að fá horn þarna upp úr horninu en dómarinn dæmir markspyrnu.
14. mín
Leiknismenn að fá horn!
Sindri Björns með góðan bolta í gegn á Omar Sowe sem kemur með krefjandi skot á Rafal en hann ver í horn.
13. mín
Leiknismenn byrja leikinn mikið betur
Gróttumenn í allskonar veseni þessar upphafsmínútur. Leiknismenn þurfa að fara að skjóta oftar á markið!
10. mín
Kristófer Orri tekur spyrnuna inn á teiginn sem Viktor kýlir frá.

Núna sækja Leiknsmenn!
9. mín
Grótta að fá aukaspyrnu
Út við hliðarlínu. Vænleg staða til að flengja boltanum fyrir.
8. mín
Aron Einars tekur spyrnuna sem Arnar Þór skallar út í innkast.
8. mín
Leiknismenn að fá horn!
2. mín
Færi!
Róbert Hauks kemst í mjög gott færi í upphafi leiks en skotið fer rétt framhjá.

Fínasta byrjun hjá Leikni!
1. mín
Leikur hafinn
Það eru Leiknismenn sem hefja hér leik í kvöld og sækja í átt að löngu vitleysunni.

Leiknismenn leika í fjólubláum treyjum, svörtum stuttbuxum og svörtum sokkum.

Gestirnir leika í hvítum treyjum, hvítum stuttbuxum og hvítum sokkum.
Fyrir leik
Döpur mæting
Þá ganga liðin til vallar. Það eru toppaðstæður fyrir fótboltaspil. Það eru þó sárafáir mættir á völlinn. Mjög slök mæting miðað við stærð leiksins fyrir liðin.
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna
Í fyrri leik liðanna á tímabilinu vann Grótta afar dramatískan 4-3 sigur. Arnar Daníel skoraði sigurmarkið á 92. mínútu eftir að Omar Sowe hafði jafnað í 3-3 af punktinum á 88. mínútu.

Svona er tölfræðin úr þessum viðureignum:
Leikir liðanna: 15
Leiknissigrar: 7
Jafntefli: 3
Gróttusigrar: 5
Markatalan: 32-29 Leikni í vil

Mynd: Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Þriðja liðið
Dómari leiksins í kvöld er hann Sveinn Arnarsson en honum til halds og trausts verða þeir Daníel Ingi Þórisson og Guðni Freyr Ingvason. Eftirlitsmaður KSÍ er Viðar Helgason.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Leiknismenn kaldir
Leiknismenn eru komnir í fallsætið á ný eftir tap gegn ÍR-ingum í seinasta leik. Leiknismenn hafa núna tapað alls fjórum leikjum í röð en liðið er ekki búið að spila vel upp á síðkastið. Leikurinn í kvöld er risaleikur fyrir sumar Leiknis sem voru í Bestu deildinni árið 2022 og eru líklegir að falla niður í 2. deild í ár.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Langþráður sigur Gróttu
Eftir marga tapleiki í röð og slæmar frammistöður sóttu Gróttumenn í mikilvæg og kærkomin þrjú stig á dögunum gegn Grindavík. Leikurinn fór 3-1 en mörk Gróttu skoruðu þeir Kristófer Orri, Pétur Theódór og Gabríel Hrannar. Með sigrinum fóru Gróttumenn upp úr fallsæti og senda Leiknismenn í fallsætið þar sem þeir töpuðu í sömu umferð gegn ÍR.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Stærsti leikur sumarsins fyrir liðin
Heilir og sælir ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Leiknis og Gróttu. Þetta er ekkert smá stór leikur en þetta er án efa stærsti leikur liðanna í sumar til þessa.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.