Fotbolti.net
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Lengjudeild karla
Domusnovavöllurinn
Leiknir R.
Leiknir R.
3 - 1
Grótta
Grótta
Omar Sowe 47'1 - 0Omar Sowe 64'2 - 02 - 169' Rasmus Christiansen Omar Sowe 78'3 - 1
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: Leiknir vann fallbaráttuslaginn

Hvað réði úrslitum?

Leiknismenn voru betri í 90 mínútur og það var það sem réði þessu í dag. Eiginlega ótrúlegt að þeir hafi ekki unnið stærra miðað við færin.

Bestu leikmenn

1. Omar Sowe

Væri bara dónalegt ef ég myndi ekki velja hann mann leiksins. Það hefur lítið sést til hans í sumar þrátt fyrir eitt og eitt mark en loksins sýndi hann Leiknismönnum og öðrum afhverju hann er einn besti framherji deildarinnar. Hann hefði meira að segja getað skorað fleiri mörk. Frábær dagur á skrifstofunni hjá Omar. Loksins vaknar hann!

2. Róbert Quental

Róbert stórkostlegur í dag að mínu mati. Var að spila frábærlega og stanslaus hætta. Á eina mjög góða stoðsendingu líka. Flottur í dag hann Robbi. Ef hann og Omar fara að tengja vel saman núna á næstunni verður það sóknarpar sem varnarmenn vilja ekki lenda í.

Atvikið

Klárlega þriðja mark leiksins. Omar Sowe lætur bara vaða og boltinn fer inn. Innsiglaði frábæran leik hjá sér og stigin þrjú fyrir Leikni.

Hvað þýða úrslitin?

Leiknismenn og Grótta eiga sætaskipti. Grótta situr nú í 11. sæti, fallsætinu, en Leiknismenn í 10. sæti.

Vondur dagur

Gróttan bara. Það er ekki hægt að benda á neinn einn. Auðvitað klaufaleg mistök hjá Rafal í seinasta marki leiksins sem fer með þetta en Leiknismenn voru það betri að það var aldrei að fara að skipta sköpum. Kannski bara vondur dagur á aðstöðuleysi Gróttu eins og Chris Brazell talaði um eftir leik.

Dómarinn - 8

Ekkert hægt að setja út á teymið að mínu mati. Bara mjög flottir í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.