SKÝRSLAN: Víkingar hirtu stigin þrjú í endurkomusigri
Hvað réði úrslitum?
FH-ingar koðnuðu einfaldlega í seinni hálfleiknum. Fóru með forystuna inn í hálfleikinn sem mér fannst alveg sanngjarnt. Víkingur fékk sín færi í fyrri hálfleik en smá einbeitingarleysi í vörninni gaf FH tvö mörk. Markið hjá Lindu Líf rétt fyrir lok fyrri hálfleiks var gott veganesti fyrir Víking inn í hálfleikinn á meðan það reyndist vera rothögg fyrir FH.
Bestu leikmenn
1. Shaina Faiena Ashouri
Tvö mörk gegn sínu gamla félagi í kvöld. Var spræk á vinstri kantinum.
2. Erna Guðrún Magnúsdóttir
Var mjög góð í seinni hálfleiknum og stoppaði sóknarleik FH vel. Thelma Karen fær líka hrós fyrir mjög góðan fyrri hálfleik en hún var ekki eins öflug í seinni hálfleiknum.
Atvikið
Þriðja mark Víkings og jafnframt annað mark leiksins hjá Shaina sem innsiglaði þennan endurkomusigur.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingur heldur sér í fjórða sæti deildarinnar með 23 stig en nær að breikka bilið milli sín og FH upp í fjögur stig. FH er hins vegar komið í hættu á því að detta niður í neðri hluta deildarinnar með þessu áframhaldi og ef Þróttur heldur áfram að sanka að sér stigum. Þær þurfa að endurstilla sig vel um verslunarmannahelgina og fara sigra fótboltaleiki.
Vondur dagur
FH í seinni háfleiknum. Allt annað liðið miðað við fyrri hálfleikinn fannst mér.
Dómarinn - 8
Lítið hægt að setja út á dómarateymið í dag.




