SKÝRSLAN: Sanngjarn sigur ÍBV
Hvað réði úrslitum?
Eyjakonur voru beittari fyrir framan markið og hafa upp á bjóða betri leikmenn heldur en Grindavík.
Bestu leikmenn
1. Viktorjia Zaicikova
Einfalt val, skorar eitt og leggur upp annað og var mjög solid inn á miðsvæðinu hjá ÍBV. Hún og Olga voru að tengja virkilega vel saman í leiknum.
2. Olga Sevcova
Potturinn og pannan í sóknarleik ÍBV. Var endalaust að labba fram hjá varnarmönnum Grindavíkur og koma sér í góðar stöður. Skorar fyrsta mark leiksins og hefði hæglega geta sett fleiri. Hún kom einnig öðrum leikmönnum í góð færi.
Atvikið
Fyrsta markið. Það var lítið um að vera á vellinum fram að því. Það var mjög sterkt að ná því inn snemma gegn sterkum vindinum.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV er komið í 2. sæti deildarinnar með öðrum hagstæðum úrslitum og er á miklu rönni á meðan Grindavík eru fjórum stigum frá fallsæti.
Vondur dagur
Veðurguðinn okkar. Skelfilegt veður fyrir knattspyrnuiðkun.
Dómarinn - 8
Mjög fín frammistaða. Lítið um vafaatriði og leikurinn gekk vel fyrir sig þrátt fyrir slæmar aðstæður.


