Bayern setur meiri kraft í viðræður við Musiala - Newcastle fylgist með Sane - Barcelona vill Kimmich
Selfoss
2
1
Víkingur Ó.
Gonzalo Zamorano '37 , víti 1-0
Þorlákur Breki Þ. Baxter '45 2-0
2-1 Luis Romero Jorge '55
01.08.2024  -  19:15
JÁVERK-völlurinn
2. deild karla
Aðstæður: Gott veður og völlurinn lítur mjög vel út
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Áhorfendur: 378
Maður leiksins: Gonzalo Zamorano (Selfoss)
Byrjunarlið:
1. Robert Blakala (m)
3. Reynir Freyr Sveinsson
4. Jose Manuel Lopez Sanchez
8. Ingvi Rafn Óskarsson (f)
9. Aron Fannar Birgisson
10. Þorlákur Breki Þ. Baxter
15. Alexander Clive Vokes
18. Dagur Jósefsson
19. Gonzalo Zamorano ('88)
21. Nacho Gil
45. Aron Lucas Vokes

Varamenn:
12. Arnór Elí Kjartansson (m)
2. Einar Breki Sverrisson
6. Adrian Sanchez
11. Alfredo Ivan Arguello Sanabria
16. Daði Kolviður Einarsson
25. Sesar Örn Harðarson ('88)
28. Eysteinn Ernir Sverrisson

Liðsstjórn:
Bjarni Jóhannsson (Þ)
Ingi Rafn Ingibergsson
Þorkell Ingi Sigurðsson
Lilja Dögg Erlingsdóttir
Heiðar Helguson

Gul spjöld:
Nacho Gil ('62)
Alexander Clive Vokes ('69)
Reynir Freyr Sveinsson ('85)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Selfyssingar með mjög mikilvægan sigur í toppslagnum Skýrsla væntanleg
95. mín
Fyrirgjöf sem Robert grípur
93. mín
Björn fær boltann á lofti inní teig Selfoss en skotið hans er hátt yfir
93. mín
Robert tekur sér sinn tíma í þetta
92. mín
Ingvar með skot en það fer framhjá
89. mín
Selfoss vill víti Aron Lucas kominn inn í teig Víkings og Abdelhadi virðist taka hann niður en Gunnar ósammála
88. mín
Inn:Sesar Örn Harðarson (Selfoss) Út:Gonzalo Zamorano (Selfoss)
85. mín Gult spjald: Reynir Freyr Sveinsson (Selfoss)
Gunnar hefur séð eitthvað vitlaust og spjaldar Reyni en ekki Nacho
85. mín Gult spjald: Ivan Rodrigo Moran Blanco (Víkingur Ó.)
Mikill hiti á milli Nacho og Ivan og Ivan virðist kýla eð agefa Nacho olnbogaskot en Gunnar gefur báðum spjald
84. mín
Skalli sem fer í höndina á Nacho en af mjög stuttu færi og Víkingar vilja fá víti en Gunnar dæmir ekkert
83. mín
Víkingur fær horn
83. mín
Víkingar mikið að sækja og Selfyssingar reyna að hlada út
76. mín Gult spjald: Björn Axel Guðjónsson (Víkingur Ó.)
Ósáttur með dóminn og fær gult fyrir kjaft
76. mín
Víkingar skora en búið að flagga og Selfyssingar sleppa með skrekkinn
74. mín
Inn:Eyþór Örn Eyþórsson (Víkingur Ó.) Út:Gabriel Þór Þórðarson (Víkingur Ó.)
70. mín
Hvernig fór þessi ekki innn!?! Gonzalo skallar burt og Selfyssingar vinna boltann og keyra tveir gegn einum en Víkingar fljótir að skila sér en Aron Fannar kemur sér samt í gott færi og á skot í slá og boltinn dettur fyrir Gonzalo sem er einn gegn nánast heilu marki en hittir ekki boltann og setur hann yfir
69. mín
Skot sem Breki skallar afturfyrir
69. mín Gult spjald: Alexander Clive Vokes (Selfoss)
Fær boltann í hendina nálægt vítateigs horninu og Víkingar fá gott færi til að jafna
68. mín
Góð fyrirgjöf frá Alexander en Ingvi aðeins of ákveðinn og brýtur á Ómari
67. mín
Selfoss fær horn
65. mín
Inn:Abdelhadi Khalok (Víkingur Ó.) Út:Asmer Begic (Víkingur Ó.)
63. mín
Hættuleg fyrirgjöf sem Robert þarf að slá í burtu
62. mín Gult spjald: Nacho Gil (Selfoss)
Stoppar hraða sókn
58. mín
Simon á skot sem Robert slær yfir
55. mín MARK!
Luis Romero Jorge (Víkingur Ó.)
Víkingar minnka muninn! Luis fær boltann út á kannti og fer léttilega framhjá Aron Fannari og Reyni og á skot sem fer af Degi og í markið
54. mín
Víkingar brjóta af sér í klafsinu
54. mín
Víkingur fær horn
49. mín
Selfoss á fyrsta færi seinni hálfleiks Dagur á frábæra sendingu yfir vörn Víkings á Aron Fannar sem á skot rétt framhjá
46. mín
Seinni hálfleikur byrjaður Gonzalo sparkar þessu af stað
45. mín
Hálfleikur
Gunnar flautar til hálfleiks í stórskemmtilegum leik
45. mín MARK!
Þorlákur Breki Þ. Baxter (Selfoss)
Stoðsending: Gonzalo Zamorano
Selfoss að tvöfalda forystu sína!!! Nacho vinnur boltann á miðjunni og á eina sendingu í gegnum línu Víkings og Selfyssingar skyndilega tveit á einn þar sem Gonzalo rennir boltanum á Breka sem klárar frábærlega

Þetta er farið að líta mjög vel út fyrir Selfoss
43. mín
Víkingar mjög nálægt því Asmer fær boltann aleinn inní teig Selfoss og á þrumu skot rétt yfir markið

Víkingar liggja á Selfossi eftir markið
37. mín Mark úr víti!
Gonzalo Zamorano (Selfoss)
Gonzalo kemur Selfossi yfir! Föst góð spyrna niðri hægra megin þar sem Ómar er mættur en nær aðeins að klóra í boltann
36. mín
Selfoss fær víti!!! Eftir mikið klafs fram og til baka endar boltinn hjá Aron Lucas sem tekur boltann niður og fer framhjá varnarmanni sem tekur hann svo niður
35. mín
Góð fyrirgjöf sem er skölluð í annað horn hinumegin
35. mín
Aron Lucas gerir vel og vinnur horn fyrir Selfoss
33. mín
Robert kýlir boltann frá
32. mín
Skalli sem Robert þarf að blaka yfir í horn
29. mín
Aron Fannar kemst í þröngt færi inní teig Víkings og á skot langt framhjá
29. mín
Boltinn endar í höndum Roberts
28. mín
Víkingur fær horn
27. mín
Björn fær mikið pláss gegn Jose og kemur sér í skotfæri inní teig Selfoss en skot hans beint á Robert
26. mín
Gonzalo með skot en það í varnarmann
23. mín
Selfoss í vandræðum Góð sókn hjá Víkingum og fyrirgjöf Gabríels hrekkur fyrir Ingvar sem á skot sem Dagur kemur sér fyrir skotið en aftur dettur boltinn á þá en núna er það Luis Romero sem er aleinn en Ingvi gerir meistaralega til að henda sér fyrir skot hans
20. mín Gult spjald: Luis Alberto Diez Ocerin (Víkingur Ó.)
Stoppar hraða sókn
20. mín
Stöngin! Björn gerir vel í teig Selfoss og kemur sér í gott færi en skot hans í stöngina og út
19. mín
Langt innkast frá Reyni sem skoppar í teig Víkings en enginn Selfyssingur mættur á boltann
19. mín
Selfoss mun líklega reyna mikið af löngum innköstum hægramegin
16. mín
Sólin er byrjuð að láta sjá sig og frábært tækifæri að skella sér á völlinn
12. mín
Bæði lið að halda boltanum til skiptis

Engin alvöru færi eins og er
8. mín
Spyrnan á nær og Aron Fannar á skalla sem fer langt framhjá
8. mín
Selfoss fær sínu þriðju hornspyrnu
7. mín
Ómar grípur fyrirgjöf Breka
7. mín
Breki með skot meðfram jörðinni í vegginn og í horn
6. mín
Selfoss fær aukaspyrnu á mjög góðum stað, rétt fyrir utan D-bogann
5. mín
Boltinn á fjær en rétt yfir höfuð Gonzalo
5. mín
Langt innkast frá Reyni og Selfyssingar vinna hornspyrnu
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað! Víkingur byrjar með boltann og sækir í suður
Fyrir leik
Stutt í að þetta hefjist Liðin eru að ganga inná völlinn
Fyrir leik
Bæði lið úti á fullu að hita upp
Fyrir leik
Staða efstu liða í deildinni fyrir leikinn

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Gary Martin má ekki spila í kvöld
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Hann er á láni hjá Víkingi Ólafsvík frá Selfossi.

   29.07.2024 14:50
Gary Martin má ekki spila í stórleiknum - „Flottir saman í Pokemon Go"
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Lykilmenn á förum Selfoss missir tvo lykilmenn fyrir þennan leik en þeir Ívan Breki og Jón Vignir eru á leið í háskóla í Bandaríkjunum og missa af restinni af leiktíðinni en við óskum þeim góðs gengis.

   29.07.2024 10:00
Topplið 2. deildar missir leikmenn út í nám
Fyrir leik
Síðasta viðureign þessara liða Fyrsta tilraun til að spila þennan leik fór ekki alveg eins og átti. Selfoss keyrði alla leið á Ólafsvík þar sem hífand rok beið þeirra þannig fresta þrufti leiknum um einn dag.

Það voru Víkingar sem byrjuðu betur og komust 1-0 yfir eftir mark Luis Alberto á 17. mínútu en Jón Vignir jafnaði metin í seinni hálfleik úr víti og kom þeim svo yfir stuttu seinna en á 88. mínútu jafnaði Björn Axel fyrir Víking og þannig voru lokatölur eftir fjörugan seinni hálfleik.

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Fyrir leik
Síðasti leikur Víkings Víkingur spilaði gegn Þrótt Vogum í síðustu umferð en þurftu að sætta sig við 3-2 tap.

Eiður Jack kom Þrótt yfir eftir þrjár mínútur en Gary Martin jafnaði eftir þegar tæpar tíu mínútur voru til hálfleiks. Þróttur skoraði svo tvö mörk á fjórum mínútum í seinni hálfleik og Víkingur náði bara að skora eitt sárabótarmark á 94. mínútu

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

   30.07.2024 15:41
Colina aftur í Víking Ólafsvík (Staðfest)

   31.07.2024 18:32
Khalok aftur til Ólafsvíkur (Staðfest)
Fyrir leik
Síðasti leikur Selfoss Selfoss fór á Austurland í heimsókn til KFA og unnu þar 0-1 sigur eftir mikið hark.

Fyrri hálfleikur var tíðinda lítill fyrir utan fjögur gul spjöld sem fóru á loft og það var ekki fyrr en á markamínútunni þar sem Jóv Vignir skoraði og kom Selfyssingum 0-1 yfir og héldu þeir það út allan leikinn og koma sér í dauðafæri að fara upp í Lengjudeildina

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Velkomin í 15. umferð 2. deild karla Komið þið sæl og verið velkomin á Jáverk-völlinn þar sem Selfoss tekur á móti Víking Ó í toppslag

Mynd: Arnar Magnússon

Byrjunarlið:
1. Ómar Castaldo Einarsson (m)
2. Gabriel Þór Þórðarson ('74)
4. Daði Kárason
6. Anel Crnac
9. Björn Axel Guðjónsson
10. Simon Dominguez Colina
11. Luis Romero Jorge
16. Ingvar Freyr Þorsteinsson
21. Luis Alberto Diez Ocerin
23. Ivan Rodrigo Moran Blanco
26. Asmer Begic ('65)

Varamenn:
1. Stefán Óli Hallgrímsson (m)
12. Kristall Blær Barkarson (m)
7. Luke Williams
8. Arnór Siggeirsson
13. Emir Dokara
14. Brynjar Óttar Jóhannsson
17. Eyþór Örn Eyþórsson ('74)
18. Leó Örn Þrastarson
19. Abdelhadi Khalok ('65)

Liðsstjórn:
Brynjar Kristmundsson (Þ)
Harpa Finnsdóttir
Aron Gauti Kristjánsson
Kristján Arnar Kristófersson

Gul spjöld:
Luis Alberto Diez Ocerin ('20)
Björn Axel Guðjónsson ('76)
Ivan Rodrigo Moran Blanco ('85)

Rauð spjöld: