SKÝRSLAN: Selfoss stelur stigi gegn HK
Hvað réði úrslitum?
HK betri í leiknum og voru verðskuldað yfir í hálfleik og komust svo tveimur mörkum yfir í seinni hálfleik en eftir mistök frá Söru og frábært mark Soniu jafnaði Selfoss leikinn undir lokin
Bestu leikmenn
1. Brookelynn Paige Entz (HK)
Skoraði, lagði upp og var stanslaust að koma Selfyssingum í vandræði
2. Eva Ýr Helgadóttir (Selfoss)
Bjargaði Selfoss nokkrum sinnum í leiknum og kom í veg fyrir að HK skoraði fleiri mörk
Atvikið
Mark sem Sonia skoraði af sirka 35 metrum sem söng í netinu eftir viðkomu Söru sem réð ekki alveg við skotið hennar
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss núna þremur stigum frá Grindavík sem eru fyrir ofan þær í öruggu sæti. HK ennþá í 7. sæti og sjö stigum frá fallsæti og því frekar öruggar frá falli
Vondur dagur
Vondur dagur fyrir Söru sem gerir slæm mistök í fyrra marki Selfoss sem kemur þeim inní leikinn
Dómarinn - 6/10
Leyfði leiknum lítið að fljóta og var mikið að flauta en hélt samt sinni línu allan leikinn


