SKÝRSLAN: Fyrsta jafntefli Leiknis í sumar gerir lítið
Hvað réði úrslitum?
Leiknismenn voru fljótir að svara eftir að Afturelding tók forystuna. Afturelding fengu kannski heilt yfir fleiri færi í leiknum en mér finnst 1-1 alveg sanngjörn niður staða þrátt fyrir að Afturelding hafi verið betri. Hægt að færa rök fyrir því.
Bestu leikmenn
1. Daði Bærings Halldórsson
Fyrirliðinn er svo mikilvægur fyrir þetta lið. Frábær frammistaða hjá honum í hjartanu í kvöld. Átti líka þessa stórbrotnu tæklingu sem bjargaði stiginu fyrir Leikni. Lang mikilvægasti leikmaður liðsins.
2. Aron Elí Sævarsson
Bara fyrirliðarnir. Þetta var það erfitt val. Aron átti nokkrar stórglæsilegar sendingar sem áttu skilið að enda í marki en gerðu ekki. Var flottur líka varnarlega og stóð sig mjög vel líkt og Daði.
Atvikið
Það er úr mörgu að velja. Mér fannst bæði lið eiga að fá vítaspyrnu og það með stuttu millibili. Fyrst var brotið á Elmari en svo á Róberti Hauks hinum meginn. Ég er meira viss með það að Leiknir hafi átt að fá vítaspyrnu.
Ég verð líka að nefna tæklingu Daða Bærings á 88. mínútu sem bjargaði Leiknismönnum frá marki hreinlega.
Hvað þýða úrslitin?
Leiknismenn eru núna þremur stigum frá Gróttu sem eru í fallsæti en eiga leik til góða. Þetta er fyrsta jafntefli Leiknis í sumar eins ótrúlegt og það er. Afturelding eru núna tveimur stigum frá ÍR sem eru í þessu 5. sæti. Stigið gerir lítið fyrir bæði lið.
Vondur dagur
Það er erfitt að finna einhvern einn sökudólg. Bæði lið reyndu að spila skemmtilegan fótbolta og sköpuðu sér færi í dag. Kannski Aron Jóh fyrir klúðrið hans á 88. mínútu þegar Daði Bærings tæklaði það frá honum. Alls ekki góð fyrsta snerting og þarna hefði leikurinn geta sigrast fyrir Mosfellinga.
Dómarinn - 6.5
Fannst þetta heilt yfir vel dæmdur leikur en það eru nokkur atriði sem ég er gífurlega ósammála með. Til dæmis vítin og þegar Afturelding tóku innkast á réttum stað á seinustu mínútu leiksins og voru að fara upp í hraða skyndisókn en hann stoppaði leikinn. En þetta var kannski erfiður leikur að dæma. Fínt dæmdur.



