Fotbolti.net
@fotboltinetTryggvi Guðmundsson
Lengjudeild karla
Hásteinsvöllur
Blautur völlur, búið að rigna í allan dag en frábært fótboltaveður.
ÍBV
ÍBV
2 - 2
ÍR
ÍR
Viggó Valgeirsson 27'1 - 0Tómas Bent Magnússon 65'2 - 02 - 180' Óliver Elís Hlynsson2 - 288' Marc Mcausland
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Dramatík á Hásteinsvelli

Hvað réði úrslitum?

Sofandaháttur hjá leikmönnum og þjálfarateymi ÍBV. Héldu að þeir væru með unninn leik í höndunum. Gerðu mikið af breytingum og kæruleysi einkenndi leik þeirra í kvölfarið og ÍR ingar gengu á lagið.

Bestu leikmenn

1. Tómas Bent Magnússon

Mjög öflugur á miðjunni hjá Eyjamönnum. Leggur upp eitt og skorar annað og fer of snemma af velli að mínu mati. Gríðalega mikilvægur í liði ÍBV.

2. Eiður Atli Rúnarsson

Mjög öflugur varnarmaður í þessari deild. Var öruggur í sínum aðgerðum og það virtist vera einhver skjálfti í varnarlínunni eftir að hann fer af velli.

Atvikið

Síðasta spyrna leiksins, vítaspyrna Eyjamanna sem kostaði þá tvö stig í harðri baráttu um efsta sætið. Afar slök vítaspyrna sem Vilhelm Þráinn ver nokkuð vel.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að ÍBV náði ekki í efsta sætið tímabundið og eru því enn í öðru sætinu á eftir Fjölni. ÍR heldur áfram að safna stigum og eru inní toppbaráttunni.

Vondur dagur

Það er engin spurning að Sverrir Páll átti mjög vondan dag í dag. Var endalaust rangstæður og tímasetti hlaup sín mjög illa og kórónar svo slakan leik sinni með lélegri vítaspyrnu sem hefði tryggt ÍBV öll þrjú stigin í mikilvægari toppbaráttu. Ég verð einnig að nefna Hermann Hreiðarsson þar sem hann var alltof bráður með þrefalda skiptingu í stöðunni 2-0 og hugsanlega haldandi að þetta væri unninn leikur.

Dómarinn - 7

Ágætlega dæmdur leikur en vítaspyrnurnar báðar voru vafasamar en jafnaðist líklega út. Fínn leikur að öðru leyti.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.