Fotbolti.net
@einarkarasonEinar Kristinn Kárason
Lengjudeild karla
Dalvíkurvöllur
Dalvík/Reynir
Dalvík/Reynir
1 - 3
Afturelding
Afturelding
0 - 15' Hrannar Snær MagnússonAmin Guerrero Touiki 60'1 - 11 - 266' Aron Jóhannsson1 - 370' Aron Jóhannsson
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: Afturelding tók stigin þrjú á Dalvík

Hvað réði úrslitum?

Afturelding var heilt yfir sterkari aðilinn í leiknum en Dalvík/Reynir hefur sýnt upp á síðkastið að liðið getur bitið frá sér. Heimamenn voru öflugir undir lok fyrri hálfleiks og byrjuðu síðari hálfleikinn vel. Jöfnunarmarkið kom eftir um klukkustundar leik en staðan var ekki jöfn nema í um fimm mínútur Tvö mörk á tæpum fimm mínútum frá Aroni Jóhannssyni gerðu út um leikinn. Heimamenn reyndu að klóra í bakkann undir lokin en án árangurs.

Bestu leikmenn

1. Aron Jóhannsson

Stórskemmtilegur leikmaður á sínum degi og reyndist hann hetja Mosfellinga í dag. Skoraði tvö mörk og var handfylli fyrir varnarmenn heimaliðsins.

2. Hrannar Snær Magnússon

Skoraði fyrsta mark leiksins og gerði vel úti vinstra megin allar níutíu mínúturnar. Gaman var að fyljgast með samvinnu hans og Arons Elís Sævarssonar, sér í lagi í fyrri hálfleik.

Atvikið

Fyrra mark Arons var frábærlega afgreitt. Fékk boltann fyrir utan teig, skapaði sér pláss með góðri hreyfingu til vinstri áður en hann lét vaða með vinstri fæti. Boltinn úti við stöng og gestirnir komnir með yfirhöndina á ný, stuttu eftir jöfnunarmark Dalvíkur/Reynis.

Hvað þýða úrslitin?

Botnbaráttan verður ekkert auðveldari fyrir Dalvík/Reyni sem sitja í neðsta sæti deildarinnar þegar þetta er ritað. Stigin þrjú þýða að Afturelding færir sig skrefi nær topppakkanum, en sitja enn í sjötta sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Heimaliðið í heild verður að taka þetta á sig fyrir þær fáu mínútur milli þeirrar 65. og fram að þeirri 71. Öll sú vinna og barátta sem fór í að jafna leikinn varð til einskis og varð brekkan of brött á mettíma.

Dómarinn - 7

Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson og hans menn réðu ekki úrslitum í dag þrátt fyrir misglaða stuðningsmenn heimaliðsins. Hélt sig á hægri akrein allan leikinn en hann var ekki að spjalda menn fyrir að falla auðveldlega til jarðar, trekk í trekk, án þess að hann dæmdi aukaspyrnu. Gervigrasið á Dalvík blessunarlega lungamjúkt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.