Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Lengjudeild karla
Domusnovavöllurinn
Hægur vindur smá rigning og hiti um 10 gráður.
Leiknir R.
Leiknir R.
0 - 0
Keflavík
Keflavík
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Stig sem gæti skipt öllu eða engu fyrir Leikni og Keflavík

Hvað réði úrslitum?

Leiknismenn klikkuðu á sínum færum sem þeir fengu til að skora í kvöld. Vítaspyrna í súginn og flugferð á rassinn í dauðafæri á blautum vellinum reynast dýr augnablik þegar upp er staðið. Keflavík hefði svo sem getað stolið þessu líka en heilt yfir líklega sanngjörn úrslit í lokuðum fótboltaleik,

Bestu leikmenn

1. Ásgeir Orri Magnússon

Ver víti og tryggir liði sínu þar með stig skilar honum sem bestum frá mér í dag.

2. Dusan Brkovic

Batt vörn Leiknis vel saman í leiknum og gaf liðið afar fá færi á sér. Þau föstu leikatriði sem Keflavík fékk enduðu ansi oft á kollinum á honum.

Atvikið

Eftir að hafa brennt af vítaspyrnu fékk Omar Sowe sannkallað dauðafæri þegar hann slapp einn innfyrir vörn Keflavíkur. Þegar hann ætlaði að láta skotið ríða af varð hann fyrir því óláni að fljúga á afturendan í skotinu og gæði þess eftir því. Flaug himinhátt yfir markið úr besta færi leiksins.

Hvað þýða úrslitin?

Keflavík áfram í 3.sæti deildarinnar. Nú með 28 stig en enn jafn langt á eftir Fjölni og ÍBV. Leiknir áfram í 10.sætinu með 17 stig

Vondur dagur

Held mig við augljósa valið í þetta sinn. Brennir af víti og rennur á rassinn í dauðafæri. Omar Sowe vill örugglega ekki fá að sjá þau atvik aftur í bráð.

Dómarinn - 8

Góð frammistaða hjá Gunnari og hans mönnum í dag. Stóru atriðin rétt svona í fljótu bragði og gerði vel á þeim augnablikum sem á þurfti að halda.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.