SKÝRSLAN: Ef lífið væri sanngjarnt hefði FH unnið leikinn
Hvað réði úrslitum?
Greinilegt var að bæði lið voru svekkt eftir leik. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en í þeim seinni voru FH-ingar mun betri og var það Ögmundi Kristinssyni að þakka að FH jafnaði ekki fyrr. Valsarar fóru í 5 manna vörn undir lok leiks en þá náðu FH-ingar að jafna í 1-1. Eftir það voru FH-ingar líklegri að taka sigurinn en Kristinn Freyr kom Völsurum óvænt yfir á ný en forystan dugði ekki lengi.
Bestu leikmenn
1. Ögmundur Kristinsson
Ömmi líklegast með eina af vörslum tímabilsins og varði heilt yfir vel í dag. Ekkert við hann að sakast í mörkunum.
2. Björn Daníel Sverrisson
Hægt að velja marga úr FH en Björn var góður á miðjunni í dag og kórónaði góðan leik með að skora undir lok leiks.
Atvikið
Fyrir utan seinna jöfnunarmark FH hlýtur það að vera darraðadansinn í teig Valsara. Ögmundur varði með hausnum og Bjarni Mark á línu.
Hvað þýða úrslitin?
Valur er að stimpla sig úr toppbaráttunni, átta stig í Víking og Breiðablik.
FH er í harðri Evrópubaráttu, aðeins tvö stig í ÍA sem eru í 4. sæti.
Vondur dagur
Valsarar hugmyndasnauðir fram á við. Gylfi Þór var lítið í boltanum og þá gerist greinilega lítið. Gylfi fær því miður þessa nafnbót.
Dómarinn - 9
Tríóið með allt í teskeið.
Virkilega vel gert að dæma ekki hendi á Ögmund þegar hann virtist taka með höndum fyrir utan teig en svo var ekki. Elías og félagar geta farið hæstánægðir að sofa í kvöld!




