Fotbolti.net
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Afturelding
Afturelding
Lengjudeild karla
Malbikstöðin að Varmá
1 - 0
Þróttur R.
Þróttur R.
Aron Jóhannsson 7'1 - 0
Dómari: Erlendur Eiríksson
Myndir: Raggi Óla

SKÝRSLAN: Annar heimasigur Aftureldingar í sumar

Hvað réði úrslitum?

Afturelding var mikið betri í fyrri hálfleik og tóku sanngjarnt forystuna. Í seinni hálfleik tóku Þróttarar yfir en sköpuðu sér ekkert. Mosfellingar vörðust frábærlega og það skóp sigurinn í dag.

Bestu leikmenn

1. Aron Elí Sævarsson

Mjög erfitt að velja mann leiksins en Aron býr til sigurmarkið og var frábær í dag að mínu mati. Einn mikilvægasti, ef ekki mikilvægasti, leikmaður Aftureldingar.

2. Aron Jóhannsson

Margir koma til greina eins og Sævar Atli, Hrannar Snær og Sigurpáll en Aron Jóh skorar sigurmarkið og var drjúgur í dag.

Atvikið

Klárlega sigurmarkið hjá Aftureldingu. Frábærlega spilað hjá Aroni Elí, Hrannari og Aron Jóh. Hins vegar slakur varnarleikur hjá Þrótturum og markvarslan einnig.

Hvað þýða úrslitin?

Mosfellingar eru núna einu stigi frá Njarðvík og ÍR sem eru í umspilssætunum en skilja Þróttarana aðeins á eftir sem eru núna lengra frá umspilssætinu þegar fjórir leikir eru eftir af deildinni. Þetta er einnig annar heimasigur Aftureldingar í sumar.

Vondur dagur

Þórhallur í marki Þróttar átti að gera betur í sigurmarkinu að mínu mati. Fannst það fyrst og eftir að hafa séð þetta aftur fer þetta nánast beint á hann.

Dómarinn - 6

Hef séð leikina betur dæmda. Afturelding átti að fá víti í fyrri hálfleik að mínu mati. Síðan kom þetta fíaskó upp í lok leiks sem var allt saman mjög spes. Ekkert gott en ekkert slæmt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.