SKÝRSLAN: Þróttarar tryggðu sig í efri hlutann á síðustu stundu
Hvað réði úrslitum?
Heilt yfir bara jafn leikur sem hefði getað dottið báðum megin. Stjörnukonur voru betri í fyrri hálfleiknum en Þróttarar tóku síðan aðeins völdin í þeim seinni. Stjörnunni dugði jafntefli og voru farnar að verja stigið sem endaði með góðu marki Þróttara.
Bestu leikmenn
1. Jessica Ayers (Stjarnan)
Þrátt fyrir tap varð ég að velja Jessica Ayers því hún var bara best á vellinum í dag. Skoraði eina mark Stjörnunnar og var gríðarlega hættuleg fram á við.
2. Caroline Murray (Þróttur)
Caroline flott í dag. Ein stoðsending og gerði oft vel á vinstri kantinum sem var eiginlega eina ógn Þróttara stóran part í leiknum. Skilar alltaf sínu sóknarlega og varnarlega og er bara ótrúlega traustur leikmaður.
Atvikið
Sigurmark Þróttara. Miðvörðurinn Sóley María mætt fremst og tryggði þær inn í efri hlutann á síðustu stundu, alvöru dramatík.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Þróttarar klára 18 leikja mótið í efri hlutanum og skilja Stjörnuna eftir í þeim neðri. Töluvert skemmtilegra verkefni sem þessir 5 leikir sem Þróttarar eru á leiðinni í en þeir 3 sem Stjarnan er að fara í.
Vondur dagur
Erfitt að setja einhvern í þennan dálk í dag. Enginn sem á það eitthvað sérstaklega skilið. Kannski Stjörnuliðið fyrir það að ætla að halda í þetta jafntefli sem þær virtust vera að gera. Erfitt að setja mikið út á það samt af því að það er svo ótrúlega skiljanleg nálgun og líklega ósjálfráð.
Dómarinn - 4
Erfiður dagur á skrifstofunni hjá Atla Hauki í dag. Línan sem hann setti var skrýtin og margar ákvarðanir sem ég var ekki sammála. Hallaði í raun á hvorugt liðið nema það að Stjarnan átti að mínu mati að fá víti í stöðunni 0-0 en við munum aldrei fá að vita hvort það hafi skipt einhverju máli.



