Leik lokið!
Twana flautar hér af, þetta var ansi öruggur sigur hjá Blikum. Seinni hálfleikurinn gekk algjörlega frá þessu.
Viðtöl og skýrsla væntanleg.
87. mín
Vigdís nálægt því að setja hér sitt annað mark en Sigurborg ver vel.
81. mín
Agla með horn hér sem fer beint á pönnuna á Katrínu sem að setur hann rétt framhjá.
79. mín
Agla María gerir vel úti vinstra megin og á skot að marki sem að Sigurborg ver vel.
76. mín
InnHulda Ösp Ágústsdóttir
ÚtBergþóra Sól Ásmundsdóttir
Þreföld breyting hjá báðum liðum
76. mín
InnSvanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir
ÚtGígja Valgerður Harðardóttir
Þreföld breyting hjá báðum liðum
76. mín
InnHafdís Bára Höskuldsdóttir
ÚtFreyja Stefánsdóttir
Þreföld breyting hjá báðum liðum
76. mín
InnMargrét Lea Gísladóttir
ÚtKaritas Tómasdóttir
Þreföld breyting hjá báðum liðum
76. mín
InnHrafnhildur Ása Halldórsdóttir
ÚtAndrea Rut Bjarnadóttir
Þreföld breyting hjá báðum liðum
76. mín
InnMikaela Nótt Pétursdóttir
ÚtHeiða Ragney Viðarsdóttir
Þreföld breyting hjá báðum liðum
70. mín
Vigdís með flott skot hér rétt yfir.
67. mín
InnAgla María Albertsdóttir
ÚtSamantha Rose Smith
Agla María kemur inn á í sínum fyrsta heimaleik eftir meiðsli.
65. mín
Telma með allt á hreinu og grípur þennan bolta.
65. mín
Víkingar fá horn.
61. mín
Blikar með sýningu!
Katrín Ásbjörnsdóttir
Andrea Rut fær boltann inn á teig og skýtur góðu skoti út í horn sem að Sigurborg ver vel en Katrín er mætt og potar þessu yfir línuna.60. mín
Erna Guðrún nálægt því að skora hér eftir hornið en Telma grípur boltan.
59. mín
Birta Birgisdóttir með þrumuskot sem að Telma ver í horn.
59. mín
Gult spjald
Karitas Tómasdóttir
Rífur Bergdísi niður rétt við teiginn.49. mín
Game over!
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir (stoðsending: Andrea Rut Bjarnadóttir)
í þetta sinn er það öfugt, Andrea með boltann fyrir og Vigdís klárar virkilega vel. Sigurborg nálægt því að verja þetta en þarf að horfa á eftir boltanum í netið47. mín
Loksins tvöfalda þær!
Andrea Rut Bjarnadóttir (stoðsending: Vigdís Lilja Kristjánsdóttir)
Vigdís með boltann í gegn, Emma ætti að taka þennan bolta en Andrea er á undan og fer framhjá Sigurborgu og setur hann í autt markið.46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Blikar sterkari og ættu að vera með meira forskot. Víkingar þó ennþá inn í þessu og gætu hæglega tekið eitthvað út úr þessu.
45. mín
Samantha með skot sem Víkingar bjarga á línu! Sú er lífleg!
45. mín
Karitas nálægt því að tvöfalda forskotið rétt fyrir hálfleikinn. boltinn dettur fyrir hana eftir hornið við markteiginn og hún setur hann yfir.
45. mín
Andrea með flotta sendingu á Samönthu sem að á skot í varnarmann og aftur fyrir
45. mín
Sex mínutum bætt við
45. mín
Dauðafæri!
Katrín með fullkomna sendingu í gegn á Vigdísi sem að er ein gegn Sigurborgu en setur hann rétt framhjá.
44. mín
Bergdís hér með skot beint úr aukaspyrnu, alls ekki galin tilraun en Telma með allt á hreinu.
41. mín
Shaina tekur vel á móti boltanum rétt utan við teiginn en skotið er slakt og beint á Telmu.
34. mín
InnVigdís Lilja Kristjánsdóttir
ÚtBirta Georgsdóttir
Birta haltrar útaf vegna meiðsla.
29. mín
Víti misnotað
Katrín Ásbjörnsdóttir
Sigurborg ver vítið! Vítið slakt frá Katrínu og nokkuð auðveld varsla fyrir Sigurborgu.28. mín
Gult spjald
Erna Guðrún Magnúsdóttir
Víti! Rífur Birtu niður, heppin að spjaldið var ekki af öðrum lit.26. mín
Næstum því!
Heiða Ragney hér með aukaspyrnu lengst utan af velli sem hún reynir að koma inn á teiginn, boltinn svífur inn á teig og skoppar áður en hann fer rétt framhjá, hreinlega nálægt því að skora bara!
22. mín
Birta Birgisdóttir með skot af löngu færi sem að svífur vel yfir.
20. mín
Rólegt yfir þessu eins og er.
12. mín
Erna og Sigurborg í smá brasi aftast hjá Víkingum, Katrín við það að vinna boltann en brýtur á Ernu.
7. mín
Blikar leiða!
Kristín Dís Árnadóttir
Fyrirgjöf frá Samönthu sem að Víkingar skalla frá tvívegis ekki nægilega langt, boltinn dettur fyrir Kristínu sem að hamrar knettinum í netið.2. mín
Undarleg útfærsla og ekkert verður úr fyrsta horninu.
2. mín
Blikar fá fyrsta hornið!
1. mín
Þetta er farið af stað, það eru Blikakonur sem að hefja leik.
Fyrir leik
Bæði lið sjóðheit
Bæði lið unnu góða sigra í seinustu umferð, Blikar unnu 4-2 sigur á Þrótti og tjáði Nik Chamberlain, þjálfari liðsins, undirrituðum eftir leik að frammistaðan hafi verið sú besta á tímabilinu til þessa. Víkingar unnu hinsvegar stórsigur gegn Tindastól 5-1 þar sem Linda Líf Boama fór á kostum.

Fyrir leik
Lokaumferðin
Þetta er seinasti leikur liðanna í hefðbundinni deildarkeppni. Breiðablik er eins og flestir vita í harðri toppbaráttu við Val en Valur er þar stigi á undan. Minna er undir hjá Víking en eina sem getur gerst í dag er að liðið getur komið sér upp í þriðja sæti ef önnur úrslit eru hagstæð.

Fyrir leik
Velkominn á Kópavogsvöll!
Hér fer fram leikur Breiðabliks og Víkings í Bestu deild kvenna.





