Fotbolti.net
Besta deildin
@gummi_aaGuðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Breiðablik
Breiðablik
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Kópavogsvöllur
Rigningarlegt og mikill vindur
4 - 0
Víkingur R.
Víkingur R.
Samantha Rose Smith 8'1 - 0Samantha Rose Smith 33'2 - 0Andrea Rut Bjarnadóttir 55'3 - 0Agla María Albertsdóttir 64'4 - 0
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson

SKÝRSLAN: Hvernig í ósköpunum var hún að spila í Lengjudeildinni?

Hvað réði úrslitum?

Breiðablik bara með talsvert meiri gæði en Víkingur þessa stundina. Einn besti leikur sem ég hef séð hjá Breiðabliki í sumar. Voru með yfirburði og áttu sigurinn fyllilega skilið.

Bestu leikmenn

1. Samantha Rose Smith (Breiðablik)

Algjör happafengur fyrir Breiðablik og gæti verið púslið sem færir þeim Íslandsmeistaratitilinn. Hvernig í ósköpunum var hún að spila í Lengjudeildinni?

2. Andrea Rut Bjarnadóttir (Breiðablik)

Skoraði bæði og lagði upp. Andrea hefur átt virkilega gott sumar í Blikabúningnum.

Atvikið

Markið sem Agla María skorar stuttu eftir að hún kemur inn á. Það er risastórt fyrir Breiðablik að fá þennan stórkostlega leikmann til baka úr meiðslum.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik skellir sér á toppinn, upp fyrir Val sem gerði jafntefli við Þrótt í kvöld. Það eru eintómir úrslitaleikir framundan fyrir Blika. Víkingar eru í fjórða sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Víkingar fóru á Kópavogsvöll síðasta sunnudag og töpuðu 4-0 og það gerðist aftur í kvöld. Víkingar þurfa að læra af mistökum sínum úr þessum tveimur leikjum því þetta er ekki boðlegt. Vondur dagur líka fyrir veðurguðina og áhorfendafjöldinn var ekki góður, en aðeins 107 áhorfendur mættu á Kópavogsvöll í kvöld. Úff.

Dómarinn - 8

Ekki mjög erfiður leikur að dæma, en mér fannst teymið dæma prýðisvel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.