Fotbolti.net
Besta deildin
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Fram
Fram
Besta-deild karla
Lambhagavöllurinn
3 - 3
FH
FH
Djenairo Daniels 2'1 - 01 - 145' Kristján Flóki Finnbogason1 - 245' Kjartan Kári HalldórssonAlex Freyr Elísson 68'2 - 22 - 377' Kjartan Kári Halldórsson (víti)Alex Freyr Elísson (víti) 91'3 - 3
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Tveir 3-3 leikir milli FH og Fram í sumar

Hvað réði úrslitum?

FH-ingar voru betri heilt yfir í leiknum. Þeir voru bara klaufar inni í sínum eigin vítateig en á endanum var það þessi vítaspyrnudómur sem breytti þessu.

Bestu leikmenn

1. Alex Freyr Elísson

Mjög auðvelt val. Skorar tvö, annað úr víti og hitt þar sem hann gerði vel að koma inn á teiginn og klárar svo. Flottur leikur hjá Alexi.

2. Kjartan Kári Halldórsson

Hann og Alex Freyr deila þessu bara tveir segi ég. Kjartan er einn uppáhalds leikmaðurinn minn í þessari deild og ég hef alltaf haft mjög gaman af honum. Skorar tvö og gerir vel í dag.

Atvikið

Þegar Helgi Mikael bendir á punktinn í stöðunni 3-2 fyrir FH og Fram jafnar svo. Fannst þetta vera ekki víti og skrítin ákvörðun þar sem hann var nýbúinn að taka svaninn og dæmir samt víti síðan.

Hvað þýða úrslitin?

FH-ingar missa ÍA og Stjörnuna upp fyrir sig á meðan Fram endar í 7. sæti eftir hefðbundna deildarkeppni.

Vondur dagur

Varnarleikur FH í dag var ekki góður. Öll mörkin (og vítaspyrnudómurinn) komu eftir lélegar ákvarðanatökur í teignum bara. Ísak, Logi og Ólafur ekki góðir að mínu mati og bara allt FH-liðið þegar þeir voru að verjast.

Dómarinn - 6

Mér fannst Helgi ekki með góða tök á þessu og var að taka vafasamar ákvarðanir í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.