Fotbolti.net
Besta deildin
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Valur
Valur
Besta-deild kvenna - Efri hluti
N1-völlurinn Hlíðarenda
Skínandi sól. Hefst sumarið í mið september?
2 - 0
FH
FH
Nadía Atladóttir 24'1 - 0Nadía Atladóttir 68'2 - 0
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: Valur með þrjú mikilvæg stig eftir óspennandi leik

Hvað réði úrslitum?

FH hóf leikinn vel og voru betri fyrstu mínútur leiksins. Þrátt fyrir að liðin voru frekar jöfn allan leikinn, þá náði Valur að nýta færin sín betur.

Bestu leikmenn

1. Nadía Atladóttir

Nadía var með einu mörk leiksins og flott mörk þar á ferð. Var líka flott í öllu öðru í dag.

2. Natasha Anasi

Átti mjög flottan fyrri hálfleik, þegar FH voru sterkar og var í heild sinni mjög góð í vörn hjá Val.

Atvikið

Þetta var ekkert rosa spennandi leikur, þannig að atvik leiksins voru þá líklegast mörkin tvö sem Nadía skoraði. Það var þó gaman að sjá að þrátt fyrir að FH voru að spila með ungu liði voru þær bara mjög fínar gegn sterku Vals liði.

Hvað þýða úrslitin?

Valur er enn í 2. sæti efri hluta aðeins einu stigi undir Breiðablik. FH liggur í neðsta sæti efri hluta.

Vondur dagur

Efitt að benda hverjir áttu vonand dag. Framherjar FHingar hefðu getað nýtt færin sín betur sem þær fengu. Svo stóð Valur sig ekkert svaka vel að spila frá miðju eins og þær hafa oft sýnt.

Dómarinn - 8

Aðalbjörn og teymið hans stóðu sig vel í dag. Það var flott lína og fór fyrsta spjaldið á loft á 73 mínútu leiksins, sem passaði vel vegna þess að það var ekki mikið sem gerðist í þessum leik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.