SKÝRSLAN: Keflvíkingar komnir á Laugardalsvöll en tæpt var það
Hvað réði úrslitum?
Keflvíkingar mættu til leiks í seinni hálfleik og ákváðu að vera með. ÍR valtaði yfir þá í seinni en höfðu ekki alveg orkuna í að halda það út og því náði Keflavík að klára þetta.
Bestu leikmenn
1. Marc Mcausland (ÍR)
Átti heilsteyptustu frammistöðun hjá ÍR í dag. Nokkrir sóknarmenn sem voru mjög góðir í fyrri hálfleik en ekki jafn góðir í seinni. Marc hinsvegar mjög góður í öllum atriðum leiksins allan leikinn.
2. Kári Sigfússon (Keflavík)
Kári skoraði mark og lagði hitt upp. Þegar Keflavík sótti þá var hann alltaf involveraður.
Atvikið
Þriðja mark ÍR var risa stórt í því augnabliki. Í einvígi sem flestir héldu að væri búið eftir fyrsta leikinn var allt í einu bara allt orðið jafnt. Hleypti gríðarlega spennu inn í þetta þó það hafi ekki verið nóg á endanum.
Hvað þýða úrslitin?
Keflavík fer í úrslitaleik umspilsins á meðan ÍR lýkur tímabilinu sínu í dag.
Vondur dagur
Keflavíkur liðið sem heild í fyrri hálfleik. Þeir voru nálægt því að kasta frá sér unnu einvígi þar sem þeir bara mættu ekki til leiks. Sem betur fer fyrir þá mættu þeir vel inn í seinni.
Dómarinn - 8
Mjög vel dæmdur leikur, lítið hægt að setja út á Twana og hans teymi.



